Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Fréttir J>V
í gær var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mál Hafdísar Perlu Hafsteinsdóttur
gegn Tryggingamiðstöðinni vegna dánarbóta Hlyns Þórs Sigurjónssonar sem lést í
bílslysi á Spáni fyrir fjórum árum. Tryggingamiðstöðin greiddi foreldrum Hlyns
Þórs tíu milljónir króna sem Hafdís Perla telur sig eiga rétt á í ljósi sambúðar sinn-
ar með hinum látna.
Dáni kaldi
formaður
Bolvíski trillukarlinn
Guðmundur Halldórsson,
betur þekktur sem Gvendur
Golli, hefur látið af for-
mennsku í Eldingu, félagi
smábátaeiganda á Vest-
fjörðum norður. Nýr for-
maður félagsins er Hálfdán
Kristjánsson frá Flateyri, en
Vestfirðingar þekkja hann
sem Dána kalda. Gvendur
Golli hefur vakið mikla at-
hygli íyrir skelegga baráttu
sína í þágu trillukarla, ekki
síst þegar línuívilnun var í
hámæli. Náði barátta hans
þeim fáséða hátindi að út-
gerðarmaður í Bolungarvík
hótaði að yfirgefa bæinn,
meðal annars eftir orða-
skak við hann. Dáni kaldi
hefur að sama skapi vakið
mikla athygli fyrir baráttu
sína og orðfæri.
Kaupmáttur
á uppleið
í gærmorgun birti
Hagstofan launavísitölu
fyrir ágúst og hækkaði
hún um 0,2% frá fyrri
mánuði. Síðustu 12
mánuði hefur vísitalan
hækkað um 5,2% en á
sama tímabili hækkaði
vísitala neysluverðs um
3,7%. Kaupmáttur launa
hefur því hækkað um
1,5% síðastliðna 12 mán-
uði og er þetta sama
meðaltalshækkun og í
júlí. Hækkun húsnæðis-
verðs skýrir 0,97% af
hækkun vísitölu neyslu-
verðs á tímabilinu. Þessi
hækkun hefur einungis
áhrif á lítinn hluta laun-
þega og því má álykta aö
kaupmáttur annarra
launþega hafi verið
meira en meðalkaup-
máttur gefur til kynna.
Greining Landsbanka
segir frá.
Flýti mislægi
Sjálfstæðismenn
í borgarstjórn
Reykjavíkur lögðu í
gær fram tillögu um
að undirbúin yrði
gerð mislægra
gatnamóta Miklu-
brautar og Kringlu-
mýrarbrautar.
„Lögð verði áhersla á að
ljúka skipulagsþætti máls-
ins sem fyrst og markvisst
haldið áfram því ferh sem
þegar er hafið, að leggja
mat á umhverfisáhrif á
þeirri mislægu lausn sem
legið hefur fyrir frá því í
ársbyrjun," segja sjálfstæð
ismenn óánægðir með
„stórlega ámælisverða"
framgöngu R-listans í mál-
Tryggingamiðstöðin Borgaöi foreldrum manns sem fórst í bilslysi á Spáni 10 milljónir króna.
Reykurinn við slökkvistöðina
Stuttu fréttirnar í blöðunum geta
oft verið stærri en þær löngu. Svart-
höfði veit yfirleitt meira eftir að hafa
lesið stutta frétt en langa. Og hann
les þær líka oftar af því þær eru svo
stuttar.
Eins og fféttin „Jónan kostaði
vinnuna" í blaðinu í gær. Þar sagði
frá tveimur mönnum sem höfðu
tyllt sér við slökkvistöðina á Selfossi
og fengið sér smók. Lögreglumenn
sem leið áttu hjá sáu hvar reykur
stóð upp úr slökkvistöðinni og tóku
mennina því tali. Gátu þeir rétt reist
sig upp frá slökkvistöðvarveggnum
og voru bæði reikulir í spori og tO
Hvernig hefur þú það?
„Ég uni mér vel,"segirJón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaöur og prófessor við Há-
skólann i Reykjavík. Hann vill ekkert tjá sig um umsögn Hæstaréttar um hæfni umsækjenda um
dómaraembætti en segist ánægöur við málflutningsstörf sín og kennslu.„Ég er að kenna réttar-
far ÍHáskólanum í Reykjavík og kenni þar skemmtilegum nemendum. Ég er með bók í smíðum
ummálskot til Hæstaréttar en er nervös aðtala um það fyrr en maður hefur pródúktið I hendi.
augnanna. í fram-
haldinu fundu lög-
reglumennirnir lítil-
ræði af marijúana í
fórum þeirra sem enn
var óreykt. Að auki kom
í ljós að annar mann-
anna var frá Bandaríkj-
unum og hafði ekki at-
vinnuleyfi hér á landi.
Hvað þá leyfi tíl þess að
reykja marijúana við
slökkvistöðina. Var hald lagt á vega-
bréf hans og honum gert að mæta
daglega á næstu lögreglustöð og tO-
kynna sig á meðan mál hans er í
rannsókn.
í raun er stórmerkOegt að at-
I burður sem þessi geti átt sér stað í
| lidu þorpi eins og Selfossi um
miðjan september. Kjarni málsins
er hins vegar sá að það voru lög-
reglumenn en ekki slökkviliðs-
menn sem urðu reyksins við
slökkvistöðina varir. Svona svip-
að og ef slökkviliðsmenn hefðu
handtekið innbrotsþjóf á lög-
reglustöðinni.
Eins og aðrar góðar fréttír
sldldi þessi eftir bergmál úr
hirslum sannleikans sem jafnan
fylgir almæltum tíðindum. Sem
sagt að þar sem er reykur, þar er
líka eldur. Og ekki síður hitt:
ar sem er slökkvistöð, þar á ekki að
vera reykur. Svaithöfði
Kærastan vill milljóna-
bætur foreldranna
„Málið snýst um réttindi sambýlisfólks og óljósa skilmála trygg-
ingarfélaga," segir Einar Gautur Steingrímsson hæstaréttarlög-
maður sem stefnt hefur Tryggingamiðstöðinni fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur. Fyrir hönd Hafdísar Perlu Hafsteinsdóttur gerir
hann kröfu um að Tryggingamiðstöðin greiði skjólstæðingi sín-
um tíu milljónir króna í formi bóta eftir að sambýlismaður
Hafdísar Perlu lést í bílslysi á Spáni árið 2000. Tryggingamið-
stöðin greiddi foreldrum hins látna hins vegar tíu milljónirnar.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Hafdís
Perla, sem nú er 25 ára, hafði verið
kærasta Hlyns í fjögur ár en í sam-
búð með honum í eitt ár þegar hann
lést í bflslysi á Spáni. í ljósi þess, svo
og vegna árslangrar sambúðar
þeirra, telur Hafdís Perla að hún eigi
rétt á dánarbótunum upp á tíu mfllj-
ónir króna. Tryggingamiðstöðin
túlkaði málið hins vegar á annan
hátt og greiddi féð aflt tfl foreldra
Hlyns Þórs.
Þar sem Tryggingamiðstöðin hef-
ur þegar greitt út dánarbæturnar á
Hafdís Perla engan kröfurétt á féð
sem er í höndum foreldra sambýlis-
manns hennar fyrrverandi. Hitt er
Hafdís Peria, sem nú
er 25 ára, hafði verið
í sambúð með Hlyni
Þór Sigurjónssyni (
eitt árþegar hann
lést i bilslysi á Spáni.
lfldegra að Tryggingamiðstöðin
verði að greiða henni sömu upphæð
á ný og tvígreiði þannig líftryggingu
Hlyns Þórs.
Að mati lögfræðinga er oft
erfiðara að gera upp
fjármál sambúð-
arfóUcs en giftra
við skflnað en
fordæmi má þó
finna þar sem '
sambúðarfólk
hefur haft betur
þegar farið hefur
verið með shk mál <
fyrir dómstóla.
Jafnvel er for-
dæmi þess í
hæstaréttardómi
að sambúðarkona
hafi verið tekin fram
yfir börn látins föður
við greiðslu líftrygging-
ar.
Verjandi Trygginga-
miðstöðvarinnar í máh
þessu er Valgeir Pálsson
hæstaréttarlögmaður en dóm
ari Sigríður Ólafsdóttir.
Einar Gautur Steingrfmsson
Lögmaöur Hafdisar Perlu
Hafsteinsdóttur færir rök fyrir
réttindum sambýlisfólks þegar
kemur aö tryggingum.