Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
„Ég er örvhentur, en hefverið að
reyna að leika golfundanfarin tvö,
þrjú ár með hægri, eins og ég lærði
á fyrsta námskeiðinu. Hafði ekki
prufað vinstrihandarsett fyrr en fyr-
ir tilviljun um síðustu helgi og átti
auð-
vitaö
Hvað liggur á?
Helgi Pétursson,
verkefnisstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur
alltafaö fylgja mínu vinstra eðli. Nú
er að æfa sig afkappi fram á haust-
ið og taka svo til fyrir alvöru með
réttri vinstri sveiflu."
Leikskólakennari í Reykjavík ráðleggur foreldrum að leita á námskeið hinnar um-
deildu Gitte Lassen sem landlæknir hefur opinberlega varað við. DV náði tali af
Maríu AntalTek sem á tvö börn á leikskólanum. María hefur snúið baki við
kærasta sinum og foreldrum eftir að Gitte náði heljartaki á henni. Sjálf vill hún
sem minnst segja um Gitte.
Leikskólastjóri til varnan
arkunámskeiDum
„Gitte hefur breytt lífi mínu," segir Lilja Oddsdóttir leikskóla-
stjóri á leikskólanum Höfn í Vesturbæ Reykjavíkur, sem aðhyllist
þá lífsstefnu sem Daninn Gitte Lassen hefur kennt á svokölluð-
um orkunámskeiðum. Samkvæmt heimildum DV vísar Lilja for-
eldrum hiklaust á Gitte eigi börnin við einhvers konar vandamál
að stríða, andleg eða líkamleg. Gitte segir lausnina á vanda
barnsins alltaf að finna hjá foreldrunum sem smiti neikvæðri
orku til barna sinna.
Námskeið þau sem Gitte hefur
staðið fyrir hafa verið sögð sundra
fjölskyldum. Aðstandendur þátttak-
enda segja námskeiðin leiða til
höfnunar á ættingjum og jafnvel
skilnaðar. „Móðir mín yfirgaf mig
þegar ég var aðeins þriggja ára og
alla mína ævi hef ég þurft að kljást
við tilfinningar móðurmissis," segir
Lilja. „Það var samt ekki fyrr en ég
byrjaði á meðvirkninámskeiðum
Gitte að ég komst að því hvað var að
hrjá mig. Vandamálið kom upp á
yfirborðið."
Og vandamálið var leyst. Lilja
ítrekar að eftir kynni sín við Gitte sé
hún ný manneskja.
Barðist við meðvirkni
Meðvirkni er tilfinningalegur
vanþroski. Gitte hjálpaði mér að
standa með sjálfri mér og leyfa mér
að vaxa og vera hamingjusamari. Ég
hef aldrei verið eins hamingjusöm
og nú," segir Lilja og fær sér vatn
með sjálfstyrkjandi olíu.
Þriggja ára börn á sjálfshjálp-
arnámskeiði
DV fékk spurnir af því að Lilja
hjálpaði foreldrum að leysa vanda-
mál barna sinna með því að koma
þeim í kynni við Gitte Lassen í stað
þess að vísa þeim til menntaðra fag-
aðila. Gitte Lassen er reyndar jarð-
eðhsfræðingur en hefur enga form-
lega menntun í meðferðarráðgjöf.
Lilja neitar því að hún beini foreldr-
um til Gitte en segir þá foreldra sem
sendi börnin sín í Waldorfleikskóla
mjög meðvitaða.
Erfiðar breytingar
MyndUstarkonan María Edit An-
tal á tvö börn í leikskóla Lilju. Hún
staðfesti að þegar vandræði komu
upp með bömin ráðlagði Lilja henni
að leita tU Gitte Lassen.
„Ég var ekki í nógu góðu sam-
bandi við börnin," segir María. „Eft-
ir að Gitte kom til sögunnar er sam-
bandið orðið mun betra. Það er frek-
ar unnustinn og ættingjarnir sem
eiga erfitt með að sætta sig við breyt-
ingarnar."
Sjálfshjálp og orkulæknar
Gitte mælir með því að foreldr-
arnir taki börnin með á sjálfshjálp-
arnámskeið sín sem meðal annars
hafa verið haldin yfir helgi á Sól-
heimum í Grímsnesi. Auk þess að
ffytja inn „orkulæknana" hefur Gitte
verið með austurríska aðstoðar-
menn sem hafa komið henni til
hjálpar á námskeiðunum á Sólheim-
um þar sem foreldrar mæta með
ung böm sín, aUt niður í þriggja
ára gömul.
Landlæknir hefur varað
við námskeiði sem Gitte
hélt með breskum
„orkulæknum" um síð-
ustu helgi, þar sem fóUc
var meðal annars var-
að við nútíma lækna-
vísindum.
Óútskýranleg-
ur kraftur
Á gólfinu í
stofu Maríu liggja
tvær dýnur. Á
miUi þeirra er
stór steinn. j
María er hins f
vegar ófáanleg í
tU að útskýra
tUganginn með
dýnunum og
steininum.
„Þú getur
ekki fengið
mig
„Eftir að Gitte kom til
sögunnar er sam-
bandið orðið mun
betra. Það eru frekar
unnustinn og ættingj-
arnir sem eiga erfitt
með að sætta sig við
breytingarnar
að útskýra aðferðir Gitte," segir hún
og bætir svo við:
„Þú getur ekki útskýrt fyrir nein-
um bragðið af óh'fum. Þú verður að
bragða þær sjálfur."
simon@dv.is
Leikskólinn Höfn Samkvæmt heimildum
DV hefur Lilja beint foreldrum barna á leik-
skólanum til Gitte.
Gitte Lassen Skipuleggur nám-
skeiö sem eiga aö hindra orkuleka
úrlikömum fólks.
Lilja Oddsdóttir leikskóla-
stjóri Segir námskeiö Gitte
Lassen hafa breytt lifi slnu.
Verjendur í líkfundarmálinu fá ekki gögn um heilsufar Vaidasar
Verjandi segir ekki vilja til að leysa málið
„Það er greinUega ekki vUji tíl að
leysa málið," sagði Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður Jónasar Inga
Ragnarssonar, eins sakborninganna
í líkfundarmálinu, að loknu þing-
haldi í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Beiðni verjenda um að réttur-
inn aflaði gagna um heilsufar Vaid-
asar Jucievicius fyrir komu hans til
íslands var hafnað þar í gær. Enginn
hinna þriggja sakborninga í málinu
mætti fyrir dóminn í gær.
Vaidas þessi kom til íslands 2.
febrúar síðastliðinn en lést fjórum
dögum síðar, að því er talið er, í
íbúð landa síns Tómasar Mala-
kauskas við Furugrund í Kópavogi
vegna umbúða 230 gramma af am-
fetamíni sem stífluðu meltingarveg
hans. Lík hans fannst svo 11. febrú-
ar þegar kafari í Neskaupstað hugð-
ist athuga skemmdir á bryggju við
Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar
þar í bæ. Líkið var vafið í plast og á
því voru fimm stungur.
Krafa verjenda í máhnu snýst um
upplýsingar sem komu fram í frétt
DV skömmu eftir hkfundinn þar
sem móðir Vaidasar ber að heilsa
hans hafi verið slæm fyrir íslands-
förina. Heilsu hans hafi farið hrak-
andi frá því hann fór í fangelsi fyrir
bflþjófnað.
„Hann varð alvarlega veikur í
fangelsinu, fékk bæði magasár og
lungnabólgu. Eftir að hann losnaði
út var hann stöðugt undir læknis-
höndum og dvaldi lengi á sjúkra-
húsi. Hann var með magasár og
lungnabólgu og ég einfaldlega trúi
því ekki að hann hafi svona veikur
farið til íslands sjálfviljugur," sagði
Irena Juceviciene, móðir Vaidasar
heitins í samtali við DV stuttu eftir
að lík hans fannst í Neskaupstað.
Ákæruvaldið taldi ekki nauðsyn-
legt að afla gagnanna heldur, fannst
þau ekki tengjast málinu beint þar
sem krufning hefði leitt í ljós að um-
búðir af fíkniefnunum hefðu valdið
dauða Vaidasar heitins.
„Með fullri virðingu, þá veit
ákæruvaldið ekki allt," sagði Sveinn
Andri í gær og Ragnheiður Harðar-
Jónas Ingi Ragnarsson
Lögmaöur hans bendir á
aö móðir Vaidasar hafi
sagt son sinn veikan áöur
en hann flutti fíkniefni
hingaö til lands.
dóttir saksóknari svaraði strax: „Það
er réttarmeinafræðingur á vitnalist-
anum."
Aðalmeðferð verður 18. og 19.
október.
hetgi@dv.is
Landsvirkjun
sýknuð
Landsvirkjun ber ekki að
greiða landeiganda í
Mývatnssveit, Reykja-
hhð ehf., 47 þúsund
krónur vegna þátttöku
fulltrúa félagsins í vali á
stæði fyrir vegaslóða
um land Reykjahlíðar.
Héraðsdómur Reykja-
vflcur segir ekki hafa verið
sýnt ffarn á að samið hafi
verið um slíka greiðslu til
landeigandans. „Þvert á
móti hafi hann verið að gæta
sinna eigin hagsmuna þegar
hann, að eigin ósk, var hafð-
ur með í ráðum varðandi
ákvörðun um lagningu um-
rædds vegslóða." Reykjahh'ð
efh. á að greiða Landsvirkjun
100 þúsund krónur í máls-
kostnað.
Leita að textíl
á Reykjanesi
Bæjarbúar í Reykjanes-
bær eru nú hvattir til leita í
fataskápum og uppi á háa-
lofti að textflvörum fyr-
ir Byggðasafn Reykja-
nesbæjar. Textfleign
safnsins er flokkuð í
dúka, púða, teppi og
mottur, gardínur, eld-
hústau, famað og bún-
inga, rúmfatnað og
fána og veifur. Leitað er
eftir textfl með menningar-
söguleg tengsl við svæðið.
Bæði er leitað að dæmigerð-
um, venjulegum textfl og að
sérstökum textfl sem tengist
ákveðnum persónum, til
dæmis handprjónuðum
peysum og heimasaumuð-
um flflcum. Einnig hsku-
textfl.
tm mtw