Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Side 11
r
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 11
SAGA STEFÁNS LOGA
íf
Viö upphaf afbrotaferilsins
Þessi mynd afStefáni er tekin um
það leyti sem afbrotaferill þeirra
þræðra hefst.
1992
Börðu unga móður
Stefán Logi og Kristján
Markús Sívarssynir eiga að
baki langan afbrotaferil.
Fyrstu afskipti lögreglu af
piltunum voru árið 1992 en
þá gengu þeir í skrokk á
ungri móður á Eiðistorgi er
hún reyndi að vernda börn
sín fyrirdrengjunum sem
hrellt höfðu börn sem
héldu tombólu á staðnum.
Þeir bræður höfðu þá stolið
peningum aftombólubörn-
unum og hrækt á borð sem
þau höfðu til afnota.
1997
Árás á ölstofu
Árið 1997 þegar Stefán
Logi var 16 ára réðst hann
á starfsmann Rauða Ijóns-
ins á Eiðistorgi sem þá var
að loka ölstofunni. Stefán
kýldi manninn ítrekað og
stal að lokum gsm-síma
hans. Bræðurnir létu svo
næst til skarar skríða við
áramótabrennu á Ægisíðu
áramótin þar á eftir. Þá
varð maður á sextugsaldri
fyrir barðinu á bræðrunum
sem réðust að honum og
veittu áverka.
1998
Sex dómar
og ofbeldi
Bræðurnir stunduðu inn-
brot árið eftir og fengu
dóma fyrir sex þeirra.
Samkvæmt heimildum DV
var fíkniefnaneysla þeirra
orðin grlðarlega mikil á
þeim tíma og innbrotin til
fjármögnunar neyslunni.
Þann 23. apríl réðust
bræðurnir svo á mann I
Hveragerði. Síðar sama ár
kýldi Stefán Logi tönn úr
manni við Meöferðar-
stöðina Vog.
2002
Skeljagranda-
hryllingurinn
Þetta ár voru Skeljagranda-
bræður dæmdir I fangelsi
fyrir stórfellda líkamsárás
en fórnarlamb þeirra var þá
skilið eftir í blóði sínu I ná-
grenni heimilis þeirra.
Stefán Logi hlaut tveggja
ára fangelsisdóm og Krist-
ján Markús þrjú og hálft ár.
Þeir voru einnig sakfelldir
fyrir líkamsárás á Eiðistorgi
sama dag i ágúst 2002.
2003
Reynslulausn
Stefáni er sleppt úr haldi á
reynslulausn eftir að hafa
afplánað tvo þriðju tveggja
ára dóms.
2004
Ofbeldið
heldur áfram
Stefán Logi er handtekinn
fyrir líkamsárás á hendur
ungum dreng I byrjun apríl.
Sleppt að loknum yfír-
heyrslum. Tveimur dögum
síðar er hann handtekinn
vegna tveggja annarra lík-
amsárása I félagi við Óskar
Þór Gunnlaugsson. Settur I
gæsluvarðhald og bíðurnú
dóms vegna þriggja
ofbeldisbrota og eins
umferðarlagabrots.
Vitnaleiðslur fóru fram í máli Stefáns Loga Sívarssonar, annars svokallaðra
Skeljagrandabræðra, sem ákærður er fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir á jafn
mörgum dögum í apríl síðastliðnum. Vitni sem einnig er fórnarlamb einnar árás-
arinnar dró fyrri framburð sinn svo gott sem til baka í gær enda stangaðist fram-
burður þess þá í veigamiklum atriðum á við fyrri yfirlýsingar þess hjá lögreglu og
frásögn annarra vitna.
ískaldur í réttarsal Stefán Logi Sívarsson
sat meö krosslagðar hendur og starði fram
fyrir sig meðan vitni lýsti atburðum fyrsta
dags ofbelsdisöldu sem stóð íþrjá daga.
f< *- S ■:
§! A
■ > g •. *«/ y
í- m M m
Jfe §&
** ^ , 'sl
% M fj %
M *£ fS ■ -
jj ij| :W; - ’ííi'
: "
•^0;" - J0W
Ifihii minnislaust og hrætt
við Skeliagrandabnóður
Aíleiðingar alvarlegrar fiknieftianeyslu blöstu við hverjum sem
vildi þegar vitnaleiðslur héldu áfram í þriggja árása máli Stefáns
Loga Sívarssonar, annars hinna alræmdu Skeljagrandabræðra í
gær. Tvö vitni komu fyrir dóminn í gær og báru vitni um sitt
hvorn ákæruliðinn. Fyrra vitnið var förnarlamb fyrstu árásar
Stefáns í þriggja daga ofbeldisöldu sem vakti mikla athygli í
þjóðfélaginu og varð tilefni til lagabreytingar sem kvað á um rétt
lögreglu til að setja þá í gæsluvarðhald sem ekki héldu lögin á
reynslulausn.
Stefán mætti í fylgd fangavarða í
héraðsdóm í gær enda hefur hann
verið í gæslu á Litla-Hrauni frá því í
byrjun april er árásirnar voru gerðar.
Hann leit talsvert betur út en þegar
málið gegn honum var þingfest í júní
og ræddi við lögfræðing sinn milli
þess sem vitni voru leidd í salinn.
Stefán vill sem minnst kannast við
téðar þijár ofbeldiskærur á hendur
sér; ber við minnisleysi, neitar, eða
játar að litlum hluta þeim kærum
sem liggja fyrir gegn honinn.
Móðir fórnarlambs horfði á
Stefán
Rekistefna varð við þinghaldið í
héraðsdómi í gær þegar ljóst varð að
eitt þriggja vitna sem mæta áttu fyrir
dóminn mætti ekki. Það vitni er talið
geta varpað ljósi á tvo hluta ákær-
unnar. Árásina á stúlkuna, sem sam-
kvæmt ákæru var framin í bíl sem
vitnið keyrði niður Skólavörðustíg og
aðra árás sem framin var fyrr sama
dag í heimahúsi við Hverfisgötuna.
Reynt var að fá aðstoð lögreglu til að
finna vitnið og koma því á staðinn en
ekkert gekk.
Næsta vitni var kallað inn í salinn
stuttu síðar: Ungur drengur sem varð
fyrir árás Stefáns Loga á heimili
Stefáns við Skeljagranda í Vesturbæ
Reykjavíkur þá 16 ára gamall.
Vitnið gekk í salinn ásamt móður
sinni sem settist sömu megin í saln-
um og ákærðu, Stefán Logi og Óskar
Þór. Hún horfði þungum augum í átt
til Stefáns Loga sem sonur hennar
„Ég sá bara augun í
honum fyllast afreiði
og hann blés allur út."
segir að hafi barið sig ítrekað í andlit
og kvið með þeim afleiðingum að
miltað sprakk og tönn brotnaði.
Stefán leit tmdan þegar móðir pilts-
ins horfði í átt til hans. Annars horfði
hann beint fram fyrir sig allt réttar-
haldið og virtist lítið brugðið við lýs-
ingar vitnanna.
Keypti kókaín og var barinn
Ungi drengurinn lýsti því hvernig
hann, daginn áður en meint árás var
gerð, setti sig í sambandi við Stefán
sem vitnið bar að „hefði átt helvíti
gott kók“, eins og hann kallaði kóka-
ín sem Stefán virðist hafa selt eða út-
vegað á þeim tíma.
Vimið lýsti svo næstu kynnum
þeirra Stefáns þannig að daginn eftir
að umrædd viðskipti vitnisins og
Stefáns með kókaín hefðu farið fram
hafi þeir hist í miðbæ Reykjavflcur og
haldið heim til Stefáns Loga að
Skeljagranda þar sem þriðji aðili hafi
bæst í hópinn.
Þar segir vitnið að Stefán hafi byrj -
að að hóta sér í gríni með öxi sem var
á heimilinu. Smám saman hafi þó
Stefán gengið lengra og lengra í að
ógna sér. Vitnið bar svo að vegna ótta
og ekki síst vitneskju um fyrri afbrot
Stefáns hafi hann fyllst mikilli
hræðslu þegar þarna var komið sögu
og þegar Stefán hafi í eitt skipti gripið
um axlir sér hafi hann kippst við en
æði þá runnið á Stefán: „Eg sá bara
augun r honum fyliast af reiði og
hann blés allur út.“ Síðan ber vitnið
að Stefán hafi kýlt sig föstum högg-
um í andlit og kvið áður en hann hafi
sparkað í sig liggjandi á stofugólfinu.
„Ég veit svo ekki fyrr en hann gefur
mér bara einn „gúmoren"," sagði
drengurinn þegar hann lýsti árásinni.
Hló að grátandi fórnarlambi
Pilturinn segir Stefán og vin hans
hafa helgið að sér þegar hann sagði
þeim grátandi að lokinni árásinni að
honum væri iilt í maganum og hann
væri mikið kvahnn. Hann segist
síðan hafa haltrað upp að verslunar-
miðstöðinni Eiðistorgi, sem er í ná-
grenni Skeljagranda, hringt í móður
srna sem hafi sagt honum að hafa
samband við lögregluna. Drengurinn
bar fyrir dómi í gær að hann hefði nú
snúið baki við frkniefhaneyslu, flust
búferlum til útlanda með móður
sinni og gengi nú í skóla. Stefán sýndi
engin svipbrigði meðan vitnið, sem
var 16 ára þegar meint árás átti sér
stað, lýsti tiidrögum hennar.
Við þingfestingu máisins í sumar
lýsti Stefán sig saklausan af árásinni á
drenginn og sagðist einungis hafa
slegið fórnarlambið með flötum lófa
og svo ýtt við honum með fætinum til
að athuga hvort hann væri með með-
vitund.
Vitni hrætt við ákærða
Áður en næsta vitni, ung stúlka,
gekk í salinn bar Kolbrún Sævarsdótt-
ir, fulltrúi ríkissaksóknara, ffarn
beiðni fýrir hönd þess um að ákærðu
yfirgæfu dómsalinn meðan viðkom-
andi bæri vitni. Þeirri kröfu varð Guð-
jón Marteinsson, dómari í málinu, að
hafna þar sem ekki eru til lagaákvæði
um að verða við slrkri bón að sögn
hans. Þegar vitnið svo gekk í salinn
leyndi sér ekki að unga stúlkan var
hrædd; hún forðaðist að horfa r átt til
sakbominganna sem samkvæmt
ákæru veittu henni áverka þegar hún
var farþegi í bfl með þeim auk þess
sem hún átti að bera vitni vegna
annars ákæruliðs vegna árásar sem
gerð var í heimahúsi við Hverfisgötu
þar sem stúlkan, ákærðu og fómar-
lamb þeirrar árásar vom í annarlegu
ástandi að sögn stúlkunnar.
Dró framburð sinn til baka
Stúlkan var mjög óöragg í vitnis-
burði sínum því eins og verjendur
bæði Óskars Þórs og Stefáns Loga og
Kolbrún sækjandi bentu á þá var
veigamikill munur á fr ásögn hennar í
lögregluskýrslu, fr ásögn vima og þess
sem hún bar við dóminn í gær.
Stúlkan sagði mikla fQcniefria-
neyslu, en hún hefði verið spraum-
frkill á þeim tíma sem árásin var gerð,
hafa sveipað dagana sem árásirnar
vora gerðar og næsm á eftir miklu
óminnisskýi.
Hún sagði það ekki rétt, sem ffam
hefði komið hjá vitnum að árásinni á
hana, að Stefán, þá sitjandi ber að
ofan í ff amsæti bflsins, hefði slegið sig
tvfvegis, einungis Óskar hefði slegið
sig í andlitið og það laust. Þá var ffá-
sögn stúlkunnar af atburðum tengd-
um árás í húsi við Hverfisgötu óljós og
ekki í takt við lögregluskýrslu. Stúlkan
sem nú dvelur í Byrginu var augljós-
lega hrædd og dró í raun fyrri fram-
burð sinn til baka fyrir dómi í gær
enda virtist hún engar skýringar geta
gefið á minnisleysinu aðrar en að hún
hefði verið í mikiili neyslu harðra
vímuefria þegar árásin var gerð og
skýrslutaka hjá lögreglu fór fram.
Að loknu þinghaldi í gær spurði
blaðamaður Kolbrúnu Sævarsdóttur,
fulltrúa ríkissaksóknara, hvort hún
teldi að viminu hefði jafnvel verið
ógnað eða hún látin breyta fram-
burði sfnum. Kolbrún sagðist ekkert
geta sagt um það. „Henni var að
minnsta kosti ekki vel við að vera
innan um sakbomingana og kvaðst
hrædd," sagði Kolbrún. helg'mdv.is