Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Fórnarlamb
skemmdi bíl
Snemma morguns um
helgina var fólksbifreið ekið
á lamb neð-
an við bæ-
inn Núp
undir Eyja-
fjöllum í
Rangárþingi
eystra með
þeim afleiðingum að fólks-
bifreiðin er mikið skemmd
á eftir. Lambið drapst. Sök-
um þessa viO lögreglan á
Hvolsvelli taka fram að rétt
er að minna á að bændur
og aðrir þeir sem eru með
búfénað gæd þess að bú-
fénaðurinn sé ekki á eða
við vegi. Búfé getur reynst
hættulegt á þessum árstíma
þegar myrkur er á kvöldin
og langt frá á morguninn.
Varasöm
brúargerð
Síðustu daga hafa
staðið yfir framkvæmdir
við brúna yfir Rauðalæk
í Rangárþingi ytra en þar
er meðal annars verið að
lagfæra brúargólfið og
hefur önnur akreinin yfir
brúna verið opin meðan
hin er lokuð vegna fram-
kvæmdanna. Lögreglan
á HvolsveUi segir öku-
menn verða að sýna ítr-
ustu varkárni, sérstak-
lega í rnyrkri þegar þeir
fara þarna um en
leyfilegur umferðarhraði
er aðeins í 30 km.
Roman reif
nýbyggingu
Roman Abramovich,
eigandi knattspyrnuliðs
Chelsea, leit aðeins einu
sinni á nýja 500
milljón króna
viðbyggingu við
hús sitt og sagði
smiðunum síðan
að rífa hana. MUlj-
arðamæringurinn
segir að viðbyggingin
sé of lítil fyrir heilsu- og
líkamsræktarstöð sem
hann ædar að
koma upp á lóð
sinni. í staðinn pantaði
hann nýja 600 miUjón kr.
viðbyggingu.
Landsíminn
„Hér er norðanátt og rigning
og frekar kalsalegt, “ segir Kári
Þorgrímsson, bóndi í Garði 2 í
Mývatnssveit. „Sumarið hefur
verið sólrikt og þurrt og ekki
mikið grasár
en þó gott
fræár. Veiði i
Mývatni hefur verið slök eins
og undanfarin sumuren vel
hefur veiðst afurriða í Laxá.
Lokun Kísiliðjunnar hangiryfir
mönnum og kemur mörgum
illa. En þess má geta að upp-
gangur er á ýmsum öðrum
sviðum. Nýju baðlónin í Mý-
vatnssveit hafa gengið vel.
Mikið hefur verið afferða-
mönnum og því nóg að gera
hjá Mýflugi og öðrum í ferða-
þjónustu."
Sjómannasamtökin eru á öðrum endanum vegna samnings sem rekstrafélag gerði
við áhöfn Sólbaks EA. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar,
kallar útgerðarmanninn „aumingjans mann“ og hótar hörðu. Guðmundur M.
Kristjánsson, eigandi Brims, segir breytingarnar vera til góðs fyrir sjómenn og að
hann sé ekki ljóti kallinn.
Útgeröarmaðiir lagfærir
heimilisbókhald sjóara
Forystumenn sjómannasamtakanna eru ævareiðir eftir að áhöfn
Sólbaks EA samdi við nýtt rekstrarfélag um að hafnafrí yrðu af-
lögð og uppgjörsaðferðum beitt. Samningarnir eru utan við
hefðbundna samninga sjómanna og útgerðarmanna.
Konráð Alfreðsson, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir að
sér lítíst „djöfuUega" á þetta mál og
það sé ljóst að félagið muni beita
hörðu tíl að reka útgerð Brims á Ak-
ureyri tU baka með ákvörðunina.
Áformað er að ísfisktogarinn Sólbak-
ur haldi úr höfn undir merkjum hins
nýja rekstrarfélags á næstu dögum.
„Þetta er aðför að verkalýðshreyf-
ingunni og við förum 100 ár aftur í
tímann takist þessum aumingjans
manni að ná fram áformum sínum.
Það er ekki nokkur spurning að ef
þetta tekst þá munu aðrar útgerðir
fylgja á eftir. Við þekkjum nú útgerð-
armenn," segir Konráð.
Hann segir að einungis einn sjó-
maður hafi sagt sig úr félaginu vegna
þess enda skUjist honum að áhöfnin
sé víða af landinu. Komáð hefur
óskað eftir hjálp heUdarsamtaka
launafóUcs vegna þessa.
„Við höfum leitað aðstoðar Sjó-
mannasambandsins og Alþýðusam-
bands íslands. Það er morgunljóst
að við munum berjast. Þetta eru ger-
ræðisleg vinnubrögð og menn voru
neyddir til þess að fallast á þetta fyr-
irkomulag," segir Konráð.
Sævar Gunnarsson,
forseti Sjómannasam-
bands íslands, hefur þeg-
ar bmgðist við
tilmælum Konráðs og
sagði í fréttum Bylgj-
unnar að Guðmundur
M. Kristjánsson
væri með sið-
ferðisvit-
undina
niður í rassgatí.
Sjálfur seg-
ist
mundur vi
hinn rólegasti og
kannast ekki við siðferðisbrest.
„Ég held að þessi ummæli dæmi
sig sjálf og ég er enginn ljóti kaU í
þessu máli,“ segir hann.
Guðmundur segir að sjómenn á
Sólbaki séu aUs ekki hlunnfarnir
með hinum nýja samningi svo sem
sjómannasamtökin haldi fram.
Þvert á mótí sé kjörum þeirra hag-
rætt og aUir hagnist á breytingunni.
Með því að vera með skiptiáhöfn sé
tryggt að sjómenn fái
vikufrí í senn í stað
þess að fá
snubbótt 30
klukkutíma
frí í senn. Þá
sé aflahlut
mánaðarins
deUt niður á
úthaldsdaga
og aUir fái
sama hlut
samkvæmt því.
Uppgjör komi
síðan eftir hver
mánaðarmót
sem leiði af
sér betri yf-
irsýn
manna
yfir fjár-
mál
„Við erum að færa launamál sjó-
manna til nútímans. Okkar
reynsla er sú að
flestír sjómenn
vUji fastar
greiðslur og
það styrkir
heimUisbók-
hald þeirra að
fá uppgert
einu sinni í
mánuði.
Við erum
ekkert að
krukka í
enda hef
ég aUtaf verið góður við sjómenn,"
segir Guðmundur M.
Hann segir að ef fyr-
irkomulagið á Sól-
bak reynist vel þá
muni það verða
reynt víðar en
útgerð Guð-
mundar er ein
sú stærsta á
landinu.
„Ef þetta
reynist vel þá
verða aUir glaðir
og við munum
halda áffarn," segir
Guðmundur.
rt@dv.is
Guð-
A.jý- >-:■ . ■
„ Við förum 100 ár aftur i 'hifmtm*aki$pessum
aumingjans manni ná fram áformum sínum.
Þrjátíu metra háar háspennulínur munu prýða Reyðarfjörð vegna álvers
Engar raflínur sýndar á álversteikningum
Eins og menn vita eru
nú að hefjast framkvæmd-
ir við stórt álver í norðan-
verðum Reyðarfirði. Alcoa
hyggur á bygginguna en
rafmagn til vinnslu álsins fá
Alcoa-menn frá Kára-
hnjúkavirkjun sem nú er í
byggingu.
Reyðfirðingar eru flestir
kátir og glaðir með álverið - enda
búnir að bíða lengur en nokkur
kærir sig um að muna. Búið er að
ganga frá öUum lausum endum
við byggingu versins og meðal
ALCDA
annars búið að efna til samkeppni
um útlit þess sem nú er í hönnun að
sögn talsmanns fyrirtækisins.
Athygli hefur
vakið að tölvugerð-
ar myndir sem
sýna fyrirhugað ál-
ver og staðsetn-
ingu þess í firðin-
um sýna sjaldnast
raflínurnar tvær
sem liggja munu
frá Kárahnjúkum
um Skriðdal niður
íbotn Iíeyðarfjarð-
ar og út með firð-
inum að álverinu.
Þetta hefur mörg-
um þótt sérkennUegt þar sem for-
senda byggingar álversins hafi verið
að nægt rafmagn yrði tryggt tU vinnsl-
Alcoa Hefur ekki verið að
fela rafHnurnar og ætla
að frumsýna nýtt útlit ál-
versins fljótlega - þar
verða háspennlínunum
frá Kárahnjúkum gerð
góö skil á mynd.
unnar. Þeir sem mesta furða sig á
týndu raflínunum segja enda sérstakt
að ekki skuli vera gert ráð fyrir aUt að
þrjátíu metra háum möstmm Fljóts-
dalslínu 3 og 4 við álverið.
„Þetta á sér nú eðUlegar skýringar
sem liggja í tvennu," segir Hrönn Pét-
ursdóttír, talskona Alcoa á íslandi, í
samtali við DV. ,Annars vegar hefur
endanleg lega Unanna ekki verið á
hreinu og svo er endanlegt útlit ál-
versins ekki alveg klárt. Við emm ekk-
ert að reyna að fela
neitt þama enda er
það tæpast hægt."
Reyðfirðingar og
aðrir áhugasamir geta
því virt fyrir sér útlit
háspennulínanna
í landslagi ál-
verslóðar-
innar áður
en langt
um líður.
helgi@dv.is
Hrönn Pétursdóttir Talsmaður
Alcoa á Islandi segir að bráðum
verði kynntar teikningar afnýja
álverinu þar sem rafllnurnar koma
fram, ólíkt áður.