Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Minni umferð í verkfalli
Þótt það sé skelfilegt að það sé
verkfall, þá er umferðin léttari þegar
fólkið er ekki að keyra krakkana í
skólann. Venjulega er samt allt fullt á
milli hálfátta og níu á morgnana,
Miklabrautin, Kringlumýrarbrautin
og Sæbrautin. Allt stopp. Það sem
Óli Ómar Óskarsson
ÓliÓmar segir qö rrieð lít•
illi fyrirhöfn sé hægt að
bæta merkingar við
vegaframkvæmdir.
Leigubílstjórinn segir
mér finnst þó leiðinlegast í umferð-
inni eru merkingamar þegar fram-
kvæmdir eru í gangi. Þær eru oftar
en ekki inni á leggjunum þannig að
maður getur ekki valið aðrar leiðir.
Maður þarf að setja upp gleraugtin
til að lesa hvað er lokað og hvert
maður getur farið til að komast
áfram. Mér finnst þetta merkinga-
leysi óvfrðing við umferðina.
Fyrir nokkrum árum var ég að
keyra í laxveiði á Fellsströnd og æd-
aði í gegnum Dalina með öldruðum
foreldrum mínum og fleirum í sam-
floti. Við vorum á fjónim bílum og
5000 sprengjur
til ísraels
Bandaríkjamenn ætla
að selja ísrael 5000 svokall-
aðar smart-sprengjur en
margar slíkar hafa kostað
fjölda Palestínumanna líf-
ið. Um er að ræða ein-
beygðum eins og venjulega þegar við
vorum komin framhjá Borgarnesi en
þegar við vorum komin kílómetra
norður fyrir Borgames kom skilti þar
sem stóð að Brattabrekka væri lokuð
vegna viðgerða. Þetta þýddi að við
þurftum að snúa öllum bflunum við
á þjóðveginum. Þegar ég gerði at-
hugasemdir við lögguna, spurði hún
mig hvort ég væri eitthvað „tens“.
Svona gerist ekki bara úti á landi
heldur lflca í bæjartraffíkinni. Mér
finnst að menn ættu að geta lagað
þetta með lítilli iýrirhöfh og merkt
almennilega hvar framkvæmdimar
em til að fólk geti vaiið aðrar leiðir.
Þannigyrði umferðin greiðari og fólk
kæmist betur þangað sem það ætlar.
hverja stærstu vopnasölu á
milli ríkjanna hingað til.
Verðið er um 25 milljarðar
króna. Að sögn dagblaðs-
ins Haaretz í ísrael er mál-
ið viðkvæmt pólitískt séð
þar sem íraelsmenn hafa
áður notað þessar sprengj-
ur gegn Palestínumönnum
og ein slík drap þannig 15
Palestínumenn í árás á
Gaza-svæðinu árið 2002.
Vændiskonur
með utsölu
Það er hart í ári í vændis-
bransanum í Rúm-
em'u þessa dagana
og mellur í bæ ein-
um þar í landi hafa
því bmgðið á það ráð
að veita mikinn af-
sláttafþjónustu
sinni. Sumar af mell-
unum í bænum
Bacau segja að þær viti að
fólk þar um slóðir sé frekar
að hugsa um vetrarforðann
en kynlíf á þessum tíma árs-
ins. Því hafi þær ákveðið að
veita viðskiptavinum sínum
allt að 50% afslátt. Ein
stúlknanna segir í samtali
við blaðið Ziarul de lasi að
þær hafi leyfi til að bregðast
við minnkandi eftirspurn
með þessum hætti. „Þetta
er jú frjáls markaður, er það
ekki?“ segir hún.
Reisti kross
gegn bölvun
Skólastjóri einn í Rúm-
em'u hefur reist risastóran
kross á skólalóðinni til að
verjast bölvun sem hann
telur að hópur nemenda
hafi sett á sig. Ilie
Verdes hefur ver- ~
ið skólastjóri við
Lovinescu-mennta-
skólann í Focsani und
anfarin 25 ár.
Nemendumir
segja að hann sé
mjög strangur skóla-
stjóri. Er hann
fékk upplýsingar
um að hópur óá-
nægðra nemenda hefði
keypt bölvun gegn honum
af spákonu reisti hann
krossinn á leiksvæðinu á
skólalóðinni.
Ásmundur Jóhannsson, fyrrverandi stórútgerðarmaður, segir að sjávarútvegsráðu-
neytið hafi með óeðlilegum kvótatilfærslum kostað sig hálfan milljarð króna. Þetta
hafi kippt fótunum undan rekstri á skipi hans, Þórshamri GK. Hann segir að skerð-
ingar hafi kostað sig hálfan milljarð og vill bætur.
Boðar samtök hinna
sviknu í sjávarútvegi
Ásmundur Johannsson, fyrrverandi útgerðarmaður nótaskipsins
Þórshamars GK, segir að sjávarútvegsráðuneytið hafi á upphafsár-
um kvótakerfisins haft af sér 500 tonna þorskkvóta og smám sam-
an kippt fótum undan rekstrinum.
Ásmundur starfaði sem sjó- fiski. Þórshamar GK fékk þá sem
Ásmundur Jóhannsson Missti stóran
hluta eigna sinna þegar útgerð hans var
skert á upphafsárum kvótans.
maður í 37 ár. Hann varð árið
1977 einn eigenda loðnuskipsins
Þórshamars og starfaði á skipinu
sem stýrimaður og skipstjóri. Þeg-
ar brestur varð í loðnustofnin-
um, um það leyti sem kvótakerf-
ið var tekið upp, fengu
loðnuskip uppbæt-
ur í þorskkvóta
og öðrum
bol-
nemur 1487 tonnum.
„Af þessu spratt mikil öfund og
næstu árin var tekinn af okkur
kvótinn í skömmtum og án þess
að sjáanleg rök væru fyrir því með
hvernig var að skerðingum staðið.
Á þessum árum átti sér stað eigna-
upptaka sem er fínna orð yfir
þjófnað," segir Ásmundur.
Hann segir að með skerðingun-
um hafi rekstur skipsins verið stór-
skaðaður. „Þegar upp var staðið var
búið að skerða kvótann okkar
þannig að einungis voru eftir 156
þorskígildi. Þá var okkur boðið að
skipta á þeim kvóta og 250 tonna
rækjukvóta," segir hann.
Asmundur sló til og í fram-
haldinu keypti hann rækjuverk-
smiðju á Árskógssandi. Árið 1990
seldi Ásmundur sinn hlut í Þórs-
hamri. Að hluta var ástæðan
hjónaskilnaður sem Ásmundur
gekk í gegnum. „Ég var kvæntur
Ég var kvæntur kell-
ingu sem vlldi skilja
og fá peninga út úr
fyrirtækinu„
kellingu sem vildi skilja og fá pen-
inga út úr fyrirtækinu," segir
hann.
Þá hafði verðmæti skipsins
dregist saman um það sem nam
kvótaskerðingunni. Ásmundur
áætlar að á núvirði nemi rýrnunin
500 milljónum króna.
„Þegar ég seldi var hlutur minn
orðinn verðlítill. Það var misjafn-
lega farið með útgerðarmenn
enda var kvótinn settur á fyrir þá
sem vantaði veð. Nú vil ég að þeir
sem lentu í svipuðum sporum og
ég stofni með sér samtök hinna
sviknu í sjávarútvegi. Með réttu
ætti ég að fá skaðabætur upp á
500 milljónir króna. Ég vil að allir
sem standa í svipuðum sporum
berjist fyrir rétti sínum og myndi
með sér samtök," segir Ásmund-
ur.
Hank Marvin, einn merkasti gítarleikari heims, mætir með Fenderinn
Gítarsveitin Shadows kemur til landsins
Varað við
ísingu
Tólf ökumenn á Suður-
lands- og Þykkvabæjarvegi
vom í vikunni kærðir fyrir
of hraðan akstur og vom
flestir þeirra á yfir 120 km
hraða og sá sem hraðast
ókvarmældurá 131
km/klst. í svartamyrkri í
Kolavatnsmýri. Lögreglan
á Hvolsvelli segir að það
gefi augaleið að þetta sé
alltof mikill hraði í ljósi
þess að myrkur er nú á
kvöldin og ffarn á morg-
uninn auk þess sem búast
má við ísingu á yfirborði
vega þegar þessi árstími er
kominn.
Shadows mun leika í Kaplakrika 4.
maí næstkomandi. Þetta hefur DV nú
fengið staðfest hjá Einari Bárðarsyni
tónleikahaldara. Tónleikar Shadows
em liður í ferðalagi sveitarinnar um
Evrópu en héðan heldur hún til Bms-
sel þar sem búið er að bóka tónleika 7.
maí. Til íslands koma þeir frá Dan-
mörku.
Vart þarf að kynna þessa sögu-
frægu hljómsveit. Þeir em þekktir fyrir
sitt sérstæða og ljúfa gítarrokk og hlýt-
ur sólógítarleikari hljómsveitarinnar,
Hank Marvin, að teljast eitt af stóm
nöfnum rokksögunnar. Shadows varð
fræg á bítlaárunum bæði fyrir eigin
plötur og einnig sem hljómsveitin sem
Cliff Richard studdist við þegar hann
var að koma sér á toppinn.
DV greindi frá því fýrir nokkm að
Laugardalshöll verður lokuð næsta
sumar vegna breytinga. Þetta hefur
sett fýrirætlanir hinnar vaxandi stéttar
tónleikahaldara á íslandi í uppnám.
Concert ehf., fýrirtæki Einars Bárðar-
sonar, hefur leitað logandi ljósi að
húsi sem gæti þjónað þessu hlutverki.
Kaplakriki, íþróttahús hinna ný-
krýndu íslandsmeistara FH-inga í
Hafnarfirði kemst næst því að geta
þjónað því hlutverki sem Laugardals-
höllin hefur gegnt. Hins vegar hlýtur
það að vera umhugsunarefhi íslend-
inga allra, einkum í ljósi þessarar
sprengju sem orðið hefur í innflutn-
ingi ýmissa tónlistarmanna, hvort
þetta ástand geti talist boðlegt.
„Ég hef á vissan hátt skiling á lok-
uninni sem slíkri og þá því sem vinnst
með breyttri og betri Höll. En hjá því
verður vart litið að Laugardalshöll er
eina „tónlistarhúsið" okkar og varla í
önnur hús að venda. En Consert verð-
ur ekki lokað þótt Laugardalshöllin sé
það og Kaplakriki er ekki slæmur kost-
ur,“ segir Einar Bárðarson og ber sig
vel sem fyrri daginn.
jakob@dv.is
Hank Marvin Eittafstóru nöfnunum
þegar talað er um gítar og gítarsound
I rokkinu. Þessi maður verður á svið-
inu IKaplakrika í maimánuði.