Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Sport DV
i
Gary Payto
vandræðum
Gary Payton á erfitt
verkefiii f>TÍr höndum.
ef marka má skrif
Steve Kerr, fyrrum
NBA-leikmanns, um
piltinn. Staða faans hjá
Boston Celtics er
langt frá að vera á
hreinu enda hefur r
Payton sýnt reiði sína í
verki með því að mæta
ekki í læknisskoðun hjá
liðinu. Payton sam- át* '
þykkti að klára tveggja J
ára samning sinn við
Los Angeles Lakers en
var, sér að óvorum,
skipt til Ceitics. i x
Hann brást æfur i
við og sagðist v' 1
fremur vilja f
leggja skóna á — J
hilluna en að
leikameð
Boston- Æ- > '
liðinu. ||F''
•Æfinga-
búðir Boston Celtics ý
heíjast 5. október og i.
stóra spuming er; verð- *
ur Payton þar eður ei?," sagði
Kerr. „Þó að hann sé orðinn 36
ára gamall þá getur hann reynst
ungum leikmönnum Boston vei
og tekið þátt í þeirri uppbyggingu
sem félagið stendur frammi fyrir,“
full>Tti Kerr. Kerr iýsti yfir aðdáun
sinni á Payton sem skoraði 14 stig
á síðasta tímabili í sóknarleik sem
hentaði honum afar illa. „Hann
getur sniðið sér stakk eftir vexti
þó að hann sé kominn á eldri ár.
Ef hann tekur ranga ákvörðun,
gæti ijóminn farið af glæsilegum
ferli hans," sagði Steve Kerr.
Bullur í bann
Fimm grískar fótboltabullur
voru handteknar á leik gríska iiðs-
ins PAOK Salonika og AZ Alkmaar
frá Hollandi, í Meistaradeild evr-
ópskra félagsliða. Mennimir fimm
rifu í sundur sæti á ieikvanginum,
kveiktu í þeim og sköpuðu mik-
inn glundroða á leiknum. Þeir
voru dæmdir í 12 mánaða bann
frá leikjum liðsins og er gert að
mæta tii lögreglunnar í hvert
skipti sem lið þeirra spilar næstu
8 mánuði. Takist það, eru þeir
frjáisir allra ferða.
Því má bæta við að Salonika
tapaði leiknum 3-2.
Maradona til
Kúbu
Diego Armando Maradona,
knattspyrnugoðið mikla, berst nú
hatrammri baráttu við kókaínfíkn
sína á Kúbu. Kappinn nýtur
stuðnings frá rQdsstjórn Kúbu
sem er tilbúin að gera hvaö sem
er fyrir Maradona og mun hún
mun kosta meðferð hans. Mara-
dona er fjörutíu og þriggja ára
gamali og á við hjartveiki að striða
af völdum fíknarinnar. Hann hef-
ur dvafist í Argentínu í sumar en
óskaði eftir að komast tii Kúbu
vegna aðdáunar sinnar á Fídel
Castro, forseta Kúbu, og viil
Maradona að auki fá frið frá
fréttamönnum og aðdáendum.
■
M4
Minnast goðsins Blóm og gjafír streymdu til City Ground, heimavallar Nottingham Forest, eftir að fréttir bárust afandláti Brians Clough sem var bæði hæfileikaríkur knattspyrnumaður með
liðinu og kom þvf sfðar sem þjálfari á toppinn f Evrópu. Reuters
Þaö er tvennt sem Nottingham-skíri er þekkt fyrir í heiminum: Hróa Hött og Brian
Clough Clough, sem lést á mánudaginn úr magakrabbameini, hefur verið lýst sem
afar einkennilegum snillingi sem stjórnaði með járnaga og skildi eftir sig einstakt
tímaskeið hjá litlu ensku félagsliði sem hefur aldrei náð að fóta sig á ný.
Umdeildur snillingur
„Ég get fullyrt að hann var einn hinna alira stærstu í boltanum
og sennilega sá stærsti sem ég þekki til,“ sagði Stuart Pearce,
fyrrum landsliðsmaður Englendinga og einn þeirra sem léku
undir stjórn hins stórmerkilega þjálfara, Brian Clough. Fáir hafa
náð jafngóðum árangri með enskt lið og Clough en honum var
gjarna lýst af andstæðingum sínum sem snobbuðum rudda.
Brian Clough Goðsögn ílifandi Iffí enda af
gamla skólanum og einn affáum þjáifurum
sem iét sig engu skipta hvað framkvæmda-
stjórar eöa hiuthafar lögðu til mátanna.
Ferill Brian Clough er með ólík-
indum bæði sem leikmaður og þjálf-
ari. Hann flosnaði upp úr námi
fimmtán ára gamail og gerði ári síð-
ar samning við Middlesbrough en
þá hófst stuttur en frábær ferill hans
sem leikmanns. Með Middles-
brough og síðar Sunderland skoraði
hann 251 mark í 274 leikjum.
Aðeins þrítugur að aldri tók hann
við stjómartaumunum hjá Hart-
lepool í ensku þriðju deiidinni og
varð þar með yngsti þjálfari á
Englandi. Eftir tvö tímabil þar fór
orðspor hans að aukast sem hæfi-
leikaríkur þjálfari en einnig fyrir sér-
kennilega hegðun og stórar yfirlýs-
ingar á stundum. Frá Hartlepool fór
Clough til Derby þar sem hann
leiddi liðið til sigurs í annarri deild-
inni. Hann var látinn taka pokann
sinn þegar hann neitaði að hlíta
ákvörðunum stjórnar Derby en alla
sína tíð fór hann sínar eigin leiðir og
gaf engum öðrum gaum þegar kom
að stjórnun. Eftir það dvaldi hann
um tíma hjá Brighton og níu mán-
uðum síðar bauðst honum að stýra
Leeds United sem þá var eitt af stóra
liðunum í Englandi. Leikmenn
Leeds þoldu þó ekki járnkrumlur
Cloughs og var hann látinn fara eftir
rúman mánuð í starfi.
Koman til Forest
1975 lá leið Cloughs tii Notting-
ham Forest og þar gerði hann hluti
sem verða lengi í minnum hafðir í
knattspyrnusögunni. Á fjóram áram
þar kom hann félaginu í fyrstu deild,
vann þá deild og bikarkeppnina að
auki og setti svo punktinn yfir i-ið
með því að sigra Evrópubikarinn tvö
ár í röð. Ólíklegt er að nokkrum öðr-
um hefði tekist slflct afrek með ekki
stærra félagi en Nottingham Forest
en klúbburinn hefur síðan Clough
hætti varla borið sitt barr.
Mörgum þótti Clough mjög sér-
kennilegur en hann gat tekið upp á
ótrúlegustu hlutum þegar sá gállinn
var á honum. Eitt hið frægasta er
þegar hann elti uppi nokkra áhang-
endur sem létu illum látum, húð-
skammaði alla saman og sló einn
þeirra. Seinna bauð hann builunum
í bjór þar sem hann baðst afsökunar.
í annað skipti tók hann einn leik-
mann sinn út af fyrir grófan leik, hélt
yfir honum þramandi ræðu fyrir
ailra augum og bað hann hunskast í
sturtu. Hann var ekkert að hafa fyrir
„Eina ástæðan fyrír því að ég tók aldrei við
enska landsliðinu varsú að knattspyrnu-
sambandið óttaðist að fá þá ekkert að segja
um liðið. Þeir höfðu rétt fyrir sér."
Brian Clough
„Fyrsta flokks framkvæmdastjóri og sannar-
lega skortur á fleira fólki eins og honum í
fótbolta."
Alex Ferguson
því að skipta öðram leikmanni inn á
í hans stað. „Ég man eftir að hafa
hugsað, þegar ég fylgdist með gengi
Forest þegar það var sem best, að
þetta ætti eftir að komast í sögubæk-
ur,“ sagði Arsene Wenger, þjálfari
Arsenal, en met það sem lið hans
setti um daginn þegar Arsenal lék
sinn 43. leik án taps tilheyrði áður
Forest.
„Það era engar ýkjur að segja að
ég hafi metið það afar mikils að
heyra Clough iýsa því yfir fyrir
skömmu að Arsenal léki það vel að
þeir ættu skilið að brjóta metið."
Fjölmargir stuðningsmenn For-
est auk ýmissa úr knattspyrnuheim-
inum hafa vottað Brian Clough virð-
ingu sína. Ber þar kannski hæst Alex
Ferguson, þjálfara Manchester
United, en þeim lenti oft saman hér
á áram áður. „Hann gerði einstaka
hluti með lítið félag." aiben@dv.is
Á fjórum árum kom
hann félaginu í fyrstu
deild, vann þá deild
og bikarkeppnina að
auki og setti svo
punktinn yfir i-ið með
því að sigra Evrópu-
bikarinn tvö ár í röð.
„Fyrír mér var hann algjör snillingur og ég er
viss um að hann væri sammála þessu mati
mínu."
Martin ONeill
„Það voru heiður og forréttindi að
fá að spila undir hans stjórn."
Trevor Frands
Sannarlega sönn goðsögn í enskum fótbolta.