Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Page 32
JT* Y £ t CjJí 0 i Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndarergætt. r-> r-1 f j f \ C
i—' <—' r \ i—*
2)2jU 2J
SKAFTAHLIÐ24,10SREYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910] SÍMISSOSOOO
McOstborgari,
jógúrt meö ferskum
ávöxtum og
miðstærð af gosi
| Stjörnulið borgarfulltrúans DagurB.
Eggertsson með félögum sínum. Þarna
má sjá Andra Snæ Magnason, séra Þór
Hauksson og Björk Vilhelmsdóttur.
Hannes Hólmsteinn
Fylgir bók eftir með sjón■
varpsmyndaflokki um
forsætisráðherra.
Stöð 2 sýnir Englana aftur
„Við sýndum Angels in America í
sumar en verðum að gera það aftur
eftir öll þessi Emmy-verðlaun sem
þættirnir fengu,“
segir Björn Sigurðs-
son, dagskrárstjóri
á Stöð 2. „Þættirnir
verða á dagskrá hjá
okkur á milli jóla og
nýárs og sýndir í
þremur köflum,
tveir þættir í einu.“
Alls eru þættirnir
um Englana í Amer-
íku sex talsins og
hafa vakið gríðarlega athygli í
Bandaríkjunum þó þeir hafi farið
fyrir ofan garð og neðan hjá flestum
þegar Stöð 2 sýndi þá síðastliðið
sumar. Þættirnir hlutu Emmy-verð-
launin sem besta þáttaröðin og eru
skreyttir með stjörnum á borð við A1
Björn Sigurðs-
son Jólagjöftil
áskrifenda.
Al Pacino Emmyífyrsta sinn.
Pacino, Meryl Streep, Mary-Louise
Parker og Jeffrey Wright sem öll
hlutu Emmy-verðlaun fyrir leik
sinn.
Englar í Ameríku var sett upp á
sviði Borgarleikhússins fýrir ellefu
árum í leikstjórn Hlínar Agnarsdótt-
ur og var þar um sama verkið að
ræða og nú sópaði til sín Emmy-
verðlaununum um helgina.
f
I
• Bogi Ágústsson
yfirfréttastjóri
ríkisins hefur
viðrað þá skoðun
sína að ekkert
liggi á að auglýsa
eftir nýjum
fréttastjóra Ríkis-
útvarpsins nú
þegar Kári Jónas-
son lætur af störfum og verður
ritstjóri Fréttablaðsins. Innan
stofnunarinnar er vilji fyrir frek-
ari sameiningu fféttastofa út-
varps og sjónvarps en
þegar er orðin og
líklegt að menn
sæti nú lagi og ráði
alls ekki fréttastjóra í
stað Kára. Gæti því
stefnt í að Elín
Hirst yrði sett
yfir eina stóra
sameiginlega
fréttastofu
ríkisins...
Hannes yrði fínn
fréttastjóri!
Ævlntýri í Árbæ Borgarfulltrúi
með elgið knattspyrnuliö
Dagur B. Eggertsson, læknir og
borgarfulltrúi, hefur nú bætt enn
einni skrautfjöður í hatt sinn. Stofnað
knattspyrnulið sem vann glæstan sig-
ur í Árbænum þegar liðið lagði meist-
araflokk Fylkis frá 1973 um síðustu
helgi. Tilefni leiksins var vígsla nýs
gervigrasvallar hjá Fylki sem lagður
var ofan á gamla malarvöllinn „... sem
aldrei var kallaður annað en besti
malarvöllur landsins", eins og Dag-
ur orðar það. Sjálfur skoraði hann
sigurmarkið en leikurinn fór 3-1.
Dagur er alinn upp íÁrbæjar-
hverfinu og í tilefni vígslu gervi-
grasvallarins fór hann um hverfið
og valdi í liðið eftir minni. Reyndi
ná saman helstu fótboltahetjum
æsku sinnar og það með þessum ár-
angri. Þama mátti sjá séra Þór Hauks-
son og Andra Snæ Magnason rithöf-
und en hann er hverfisskáld Árbæjar-
ins og liðtækur á kantinum.
að
Hannes selur RÚV
fleiri myndir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
hefur enn og aftur selt Ríkissjón-
varpinu sjónvarpsþáttaröð og núna
um alla forsætisráðherra íslenska
lýðveldisins. Forráðamenn Ríkis-
sjónvarpsins hafa áður borið það af
sér að hafa keypt nýtt sjónvarpsefni
af Hannesi Hólmsteini en nú munu
þættirnir sem um ræðir vera á borði
Rúnars Gunnarssonar dagskrár-
stjóra. Þeir verða á dagskrá í vetur.
Heiti sjónvarpsmyndaflokksins
er Forsætisráðherrarnir og er í raun
sama verk og kom út á bók á dögun-
um á kostnað skattgreiðenda. í
vinnuskýrslum Ríkissjónvarpsins er
Hannes Hólmsteinn þó ekki skráður
fyrir myndaflokknum sem keyptur
hefur verið, heldur kvikmyndatöku-
maður hans, Sigurgeir Orri Sigur-
geirsson, en þeir tveir hafa lengi
unnið saman. Áður hefur Hannes
Hólmsteinn selt Rfkissjónvarpinu
mynd um Halldór Laxness, 20. öld-
ina og fjölda þátta undir nafhinu
Maður er nefndur.
„Ég kannast við að Ríkissjónvarp-
ið sé að kaupa heimildarmynd sem
heitir Forsætisráðherrarnir og Sigur-
geir Orri Sigurgeirsson
firamleiðir," segir
Bjarni Guðmunds-
son, framkvæmda-
stjóri Ríkissjón-
varpsins.
Líta má á lið læknisins og borg-
arfulltrúans sem grunninn að því
stórveldi sem knattspyrnan er orð-
in í Árbænum undir nafni Fylkis.
Þegar Dagur lék þar fótbolta var
hann hafður í vörninni:
„Hins vegar talaði ég svo mikið að
ég kjaftaði mig í það að verða fyrirliði.
Við vorum kallaðir mömmustrákarn-
ir vegna þess hversu vel foreldrarnir
studdu við bakið á okkur og í raun
voru það þeir sem lögðu grunn-
inn að því starfi sem hér hefur
þróast," segir Dagur sem er orð-
inn 32 ára og neitar því að hann sé
farinn að hlaupa hægar en hann gerði
áður. Reyndar hafi hann aldrei hlaup-
ið svo hratt. Seiglan hafi verið aðals-
merki hans.
„í þessu liði okkar var líka kven-
maður, Björk Vilhelmsdóttir stjóm-
arformaður Fasteignastofu borg-
arinnar. Hún hvatti okkur til
dáða og færði okkur vam,“ segir
Dagur sem á eins von á að liðið
haldi áfram að leika. í raun sé
það ósigrandi.
Dagur er fluttur úr Árbænum og
býr nú á Óðinsgötu í 101 Reykjavík.
Hann á eins von á því að flytja aftur
upp í Árbæ þegar árin færast yfir:
„Þarna er gott að vera. Ætli maður
fari ekki hringinn eins og margir."
M
Þu ve,ur•••
W TILBOÐA
McOstborgari,
Iftill McFranskar
eóa gulrætur
og mióstærö af gosi
TILBOÐ C
McOstborgari
lítill McFranskar
eóa gulrætur
og McFlurry
...og borgar^!
i’m lovin’it
f