Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1938, Side 2
Forstöðumenn þjóðvinafélagsins.
Forseti: Pálmi rektor Hannesson.
Ritnefnd: I)r. Porkell Jóhannesson, bókavörður.
Barði Guðmundsson, þjóðskjalavörður.
Dr. Guðm. Finnbogason, landsbókavörður.
Endurskoðnncinnenn: Bogi yfirkennari Olafsson,
Pórarinn hafnarstjóri Kristjánsson.
Fyrir árstillagið, sem er aðeins 10 kr., fæst í
ár Andvari 62. ár, verð 3 kr., Almanak 64. ár,
verð 2 kr., og Tónlistin eftir Erik Abrahamsen,
verð 7 kr.
Eins og kunnugt er, er Þjóðvinafélagið eitt elzta menn-
ingarfélag hér á landi, stofnað árið 1871 að forgöngu Jóns
Sigurðssonar. Hefir það hin siðari árin verið langafkasta-
mesta bókaútgáfufélag landsins. Framan af árum var bóka-
útgáfa þess minni. Þó gaf það árlega út Andvara og Al-
manak, auk nokkurra annarra rita, stærri og smærri. Arið
1919 varð sú breyting á starfsemi þess, að það hóf að
gefa út hókaflokk, er nefnist Bókasafn Þjóðvinafélagsins,
alþýðleg fræðirit, eitt hefti á ári. 1929—1933 varð hlé á
þessari útgáfu, en i þess stað gaf félagið þá út hið mikla
ritverk dr. phil. Páls E. Ólasonar, Jón Signrðsson, fimm
stór bindi alls. 1934 og 1935 hélt félagið svo áfram að gefa út
Bókasafnið. Gaf það annað árið út hið fræga rit belgiska
skáldspekingsins Maeterlinck um býfhtgnrnar, en hitt árið
Bakterínveiðar, eftir ameriska lækninn Paul de Ivruif, heims-
fræga bók og vafalaust bezta og skemmtilegasta fræðirit,
sem til er á vorri tungu. 1936 gaf það út hið mikla sögu-
verk Helga P. Briem um byltingu Jörundar liundadaga-
kóngs: Sjálfslœði tslands 1809. í ár gefur það út merkilegt
rit um tónlist eftir próf. Erik Abrahamsen. Auk þess, sem
nú var talið, hefir félagið öli þessi ár gefið út Andvara og
Almanak. Andvari er nú 64 ára gamall. Hefir liann að
geyma fjölda stórmerkra ritgerða, en merkastur er hann
vegna þess, að hann liefir árlega flutt æfisögu einhvers ís-
lenzks merkismanns, og er þetta æfisagnasafn nú orðið al-
(Framh. á 3. kápusiðu)