Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1938, Blaðsíða 23
Mars er við upphaf ársins í vatnsberamerki og reikar austur á bóginn
um fiskamerkið, hrútsmerkið, nautsmerkið, tvíburamerkið, krabbamerkið,
ljónsmerkið, meyjarmerkið og er kominn inn í metaskálamerkið við árslok.
Hann er í hásuðri frá Reykjavík p. 23. jan. kl. 4 e. m., 13. marz kl. 3 e. m.,
5. nóv. kl. 10 f. m. og 12. dez. kl. 9 f. m.
Júpíter er í steingeitarmerki í ársbyrjun og reikar fyrst austur eftir og
inn í vatnsberamerkið; snýr samt við þ. 21. júní og heldur aftur vestur á leið
inn í steingeitarmerkið. Þ. 19. október snýr hann enn við og reikar úr því
austur eftir og er við árslok í merki vatnsberans. Hann er í hásuðri frá
Reykjavík þ. 3. jan. kl. 2 e. m., þ. 12. apríl kl. 9 f. m., 30. apríl kl. 8 f. m.,
15. ágúst kl. 1 f. m., 27.-28. ágúst á miðnætti, 10. sept. kl. 11 e. m., 24.
september kl. 10 e. m., 8. október kl. 9 e. m., 24. október kl. 8 e. m., 8.
nóv. kl. 7 e. m., 25. nóv. kl. 6 e. m. og við árslok kl. 4 e. m.
Satúrnus er í fiskamerki í ársbyrjun og reikar austur á við, en snýr
við 30. júlí og heldur vestur eftir til 14. dezember. t>á snýr hann aftur austur
á bóginn. Við árslok er hann enn í fiskamerki. Satúrnus er í hásuðri frá
Reykjavík: Þ. 13. jan. kl. 5 e. m., 30. jan. kl. 4 e. m., 16. febr. kl. 3 e. m.
5. marz kl. 2 e. m., 22. marz kl. 1 e. m., 17. júlí kl. 6 f. m., 1. ágúst kl. 5
f- m., 16. ág. kl. 4 f. m., 31. ág. kl. 3 f. m., 15. sept. kl. 2 f. m., 29. sept.
hl. 1 f. m., 12. —13. október á miðnætti, 26. okt. kl. 11 e. m., 10. nóvember
hl. 10 e. m., 24. nóv. kl. 9 e. m., 9. dezember kl. 8 e. m. og 25. dez.
kl. 7 e. m.
Úranus sést næstum aldrei með berum augum. Hann er allt árið í hrúts-
merki og verður gegnt sólu 8. nóvember; þá er hann í hásuðri frá Reykjavík
um lágnættið 42° yfir láréttan sjóndeildarhring.
Neptúnus sést ekki með berum augum. Hann heldur sig austarlega í
ljónsmerki mest allt árið; við árslok er hann samt kominn vestast inn í
meyjarmerkið. Hann er gegnt sólu þ. 10. marz og er þá um lágnættið í
hásuðri frá Reykjavík 31 ® yfir sjóndeildarhringinn.
(21)