Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Síða 26
Útdráttur
úr logum nr. 25, 27. jún( 1921, um einkaleyfi handa háskóla íslands
til útgáfu almanaks.
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja eða af-
henda með öðrum hætti almanök og dagatöl á fslandi.
5. gr.
Það er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maðuri
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eöa dagatöl
en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða dagatöl
eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök háskólans eða dagatöl eða kafla úr þeim
til þess að selja eða láta af hendi með öðrum hatti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa msð sektum frá 100—2000 kr., e
það er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri refsing við að
öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt til landsins,
gefin hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr., og skal síðan gera
þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiöa, sem sekur veröur eftir 5. gr. Miða skal
bætur, ef því verður viö komiö, við samanlagt söluverð ólöglega seldra eða
afhentra eintaka að frádregnum hæfilegum sölulaunum. Ella skal ákveða bstur
eftir atvikum.
Hiö íslenzka þjóðvinafélag hefir meö samningi keypt einkaleyfi þetta í ár
(1946), og nær það til allra almanaka 7 bókarformi.
Áriö 1947 ber páskana upp á 6 apríl.
(24)