Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Blaðsíða 47
ráðherra og Pétur Magnússon fjármálaráðherra. 23.
okt. var Svanhildur Ólafsdóttir skipuð fulltrúi í ut-
anríkisráðuneytinu. 31. okt. var Daníel Á. Daníelsson
skipaður héraðslæknir i Svarfdælahéraði. 1. nóv.
var Henrik Sv. Björnsson skipaður deildarstjóri í
utanríkisráðuneytinu. 14. nóv. voru þeir Ármann
Helgason og Bragi Sigurjónsson skipaðir kennarar
við Gagnfræðaskóla Akureyrar. 14. nóv. var Svein-
björn Árnason skipaður skólastjóri við barnaskól-
ann í Gerðum í Gullbringusýslu. 1. des. var Guðjón
Klemenzson skipaður héraðslæknir í Hofsóshéraði.
8. des. voru þessir menn skipaðir í Nýbyggingarráð:
Jóhann Þ. Jósefsson (form.), Einar Olgeirsson (vara-
form.), Erlendur Þorsteinsson og Steingrímur Stein-
þórsson. 21. desember var Þorgeir Sveinbjarnarson
ráðinn forstjóri Sundhallar Reykjavíkur. 28. desem-
ber var séra Sigurjón Árnason skipaður prestur i
Hallgrímsprestakalli í Reykjavik. í desemberlok
voru þeir Haukur Helgason, ísafirði, og Kjartan
Ólafsson, Hafnarfirði, skipaðir i Viðskiptaráð í stað
Jóns Guðmundssonar og Gunnlaugs Briems frá 1.
jan. 1945 að telja.
Lausn frá embætti: 31. jan. var Pétri Benedikts-
syni veitt lausn frá störfum sem sendiherra íslands
i Stóra-Bretlandi og hjá Noregskonungi. 31. jan. var
Stefáni Þorvarðssyni veitt lausn frá störfum sem
skrifstofustj. i utanríkisráðuneytinu. 11. febr. var sr.
Jóni Péturssyni, presti á Kálfafellsstað, veitt lausn
frá embætti. í apríl var Jakobi Kristinssyni fræðslu-
málastjóra veitt lausn frá embætti frá 1. ág. að telja.
4. apríl var sr. Ragnari Benediktssyni, presti í Hruna,
veitt lausn frá embætti. 24. apríl var Sigurði Einars-
syni veitt lausn frá docentsembætti við guðfræði-
deild Háskóla íslands. 15. júni var sr. Hermanni
Hjartarsyni veitt lausn frá prestsembætti i Eydala-
prestakalli, S.-Múl. 28. júní var dr. theoi. sr. Eiríki
(45)