Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 48
Albertssyni veitt lausn frá prestsembætti i Hestþinga-
prestakalli, BorgarfjarSarsýsIu. 11. júlí var frú Mar-
gréti Rasmus veitt lausn frá embætti sem forstöðuk.
Málleysingjaskólans í Rvík. 16. sept. var Stefáni
Guðnasyni veitt lausn frá héraðslæknisembættinu í
Svarfdælahéraði. 9. okt. var sr. Jóni J. Skagan veitt
lausn frá prestsembætti í Landeyjaprestakalli, Rang.
27. nóv. var Birni Sigurðssyni veitt lausn frá héraðs-
læknisembættinu i Miðfjarðarhéraði.
Fulltrúar erlendra ríkja. 8. jan. var A. N. Krassilni-
kov skipaður sendiherra Sovétsambandsins á Is-
landi. 8. jan. var I. J. Korchagin skipaður 1. sendi-
ráðsritari við sendiráð Sovétsambandsins i Rvik, en
P. L. Egerov 2. sendiráðsritari og N. A. Gusev ráðu-
nautur við söniu sendisveit. 14. mai var Magnús
Kjaran skipaður ræðismaður Svia í Reykjavík (áður
vararæðismaður). 8. maí var O. Kiilerich viður-
kenndur ráðunautur við sendisveit Dana í Rvik. 14.
júni var L. G. Dreyfus viðurkenndur sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi. 15. júni var B. M. Hulley
viðurkenndur ræðismaður Bandarikjanna í Rvík. 4.
ág. var Fr. L. Spalding viðurkenndur ræðismaður
Bandaríkjanna í Rvík. 18. ág. var Guðlaugur Gísla-
son viðurkenndur •vararæðismaður Svia i Vest-
mannaeyjum.
Heilbrigði. Yfirleitt var lieilsufar manna gott. Frem-
ur lítað kvað að farsóttum. Kveffaraldur gekk í des-
ember. Skarlatssótt stakk sér niður hér og hvar.
Hernám. Nokkuð kvað enn að vinnu íslendinga lijá
hinu erlenda setuliði. Þýzkar flugvélar sáust nokkr-
um sinnum yfir íslands, en ollu ekki tjóni svo að
vitað sé.
Iðnaður. Iðnaðarframkvæmdir voru miklar á árinu,
Jjrátt fyrir nokkurn skort á efni og vinnuafli. Stofn-
uð voru ný bila- og vélaviðgerðaverkstæði, skipa-
smíðastöðvar, frystihús, raftækjaverkstæði, trésmíða-
(46)