Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 49
verkstæði, netagerðir, prentsmiðjur, efnagerðir, nið-
ursuðuverksmiðjur, ölg'erðir o. fl. í Rvík var stofnað
nýtt skipasmíðafyrirtæki, h.f. „Skipanaust“. Félag
þetta hefur i hyggju að reisa dráttarbrautir á Gelgju-
tanga við Elliðaárvog og stunda skipasmiðar og
skipaviðgerðir. 8 skip voru smiðuð á Islands á ár-
inu. í Hafnarfirði var smíðað stærsta skip, sem smið-
að hefur verið á íslandi, vélskipið „Edda“, 184
brúttósmálestir. (Auk þess hefur Verið samið um
smíð 45 vélbáta í Svíþjóð, sem skulu afhendast eftir
stríð.) Mikið var unnið að húsagerð, einkum í Rvík.
Tilraunir voru gerðar til að nota jarðgufu til að knýja
túrbínur og nota hana þannig sem aflgjafa. Bóltagerð
var mjög mikil eins og undanfarin ár.
íþróttir. „íþróttablaðið“ kom út í 6 heftum og „Skin-
faxi“ í 2 heftum. Gefnar voru út reglur um tennis-
og badmintonleik og finnsku afrelcsstigatöflurnar.
Þá kom og út árbók frjálsiþróttamanna. „Einingin“
kom út i 12 tölublöðum. Iþróttakennaraskóli íslands
útskrifaði 11 kennara. Á skólanum i Haukadal voru
22 nemendur. Skíðaskólinn á ísafirði útskrifaði 8
kennara, en 10 voru á skólanum alls. Haldið var i
fyrsta sinn námslceið fyrir dómara í frjálsum íþrótt-
um. Föst íþróttakennsla fór fram i félögum allra
kaupstaða og 3 kauptúna. Skíðakennsla fór fram við
marga skíðaskála. Fenginn var Ameríkumaður til að
kenna g'olf. 12 íþróttakennarar fóru um landið á veg'-
um U. M. F. í. og kenndu íþróttir á 56 stöðuin í 208
vikur. Á vegum í. S. í. fóru 16 íþróttakennarar um
landið og kenndu íþróttir á 82 stöðum í 263
vikur. Tveir þessara kennara voru sérkennarar í
glímu og knattspyrnu. Þeir kenndu einnig í skólum
og voru að hálfu leyti á vegum fræðslumálastjórnar-
innar. Nokkrir menn störfuðu að iþróttakennslu í
sumarleyfum sínum.
Bindindissýning var haldin i Rvik. Ársþing í. S. í.
(47)
L