Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Síða 70
kr.), söltuð hrogn fyrir 1.1 millj. kr. (árið áður
650 000 kr.).
Verklegar framkvæmdir. Húsagerðir voru mjög
miklar víða um land, einkum í Rvik. Unnið var að
smíð Sjómannaskólans í Rvík og hornsteinn hans
lagður í júní. Unnið var að smið barnaskóla og
kirkju í Laugarneshverfi í Rvik. Hafin var bygging
MejLaskóla í Rvík. Þá var og unnið að þvi að fullgera
Þjóðleikhúsið í Rvík, er setuliðið hafði rýmt það.
Hafin var bygging á flokkshúsi Sjálfstæðisflokksins
við Austurvöll. Leikfimihús Menntaskólans í Rvík
var mjög endurbætt. Glímufél. „Ármann“ reisti skíða-
skála mikinn í Jósefsdal. Hafin var smíð vinnuheim-
ilis íslenzkra berklasjúklinga á Reykjum i Mosfells-
sveit. Mjög var unnið að gatnagerð og viðhaldi gatna
í Rvík. Reykjavíkurbær eignaðist ný grjótmulnings-
og sandnámstæki. Lokið var viðbótarvirkjun Ljósa-
foss. Nokkuð var unnið að Hitaveitu Reykjavíkur.
Víða um land var unnið að byggingu skólahúsa,
læknabústaða, sjúkrahúsa, íþróttahúsa o. s. frv. Lok-
ið var að mestu við smið ráðhúss í Hafnarfirði. Á
Akranesi var lokið byggingu sundlaugar til minn-
ingar um Rjarna Ólafsson skipstjóra. Rafveitu var
komið upp í Ólafsvík. Ný síldarbræðslustöð var reist
i Ingólfsfirði, og unnið var að stækkun síldarverksm.
á Siglufirði. Unnið var að virkjun Skeiðfoss i Stíflu,
og var henni langt komið. í Ólafsfirði var unnið að
hitaveitu, og var hún nær fullger í árslok. Ný stór
gistihús voru reist á Akueryri.
Unnið var að hafnargerð og endurbótum á hafnar-
mannvirkjum á Akranesi, Borgarnesi, Hellissandi,
Stykkishólmi, Hnífsdal, Ólafsfirði. Hauganesi á Ár-
skógsströnd, Húsavík, Vopnafirði, Borgarfirði eystra,
Neskaupstað, Stöðvarfirði, Vestmannaeyjum, Grinda-
vík, Keflavik og Hafnarfirði. Lokið var við smið
Akranessvita og Garðskagavita. Unnið var að smíð
(68)