Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Side 71
vita á Digranesi milli Bakkafjarðar og Vopnafjarðar.
Hafin var smíð vita í Bjarnarey og Æðey. Unnið var
að Hafnarfjallsvegi (milli Akraness og Borgarness),
á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og i Öxnadal. Unnið
var að veginum ofan við Búðir á Snæfellsnesi og
veginum milli Hamraenda og Arnarstapa í Breiðu-
vík. Enn fremur var unnið að Kerlingarskarðsvegi.
Á Vestfjörðum var unnið að Patreksfjarðarvegi,
Rafnseyrarheiðarvegi, Langadalsvegi (Þorskafjarðar-
lieiðarvegi) og Bitruvegi. Á Norðurlandi var auk þess,
sem fyrr er getið, unnið að Skagastrandarvegi, Út-
Blönduhlíðarvegi, Siglufjarðarskarðsvegi, Svalbarðs-
strandarvegi (sem liggja á út i Höfðahverfi) og á
Brekknaheiði (milli Þórshafnar og Gunnólfsvíkur).
Á Austurlandi var mest unnið á Fjarðarheiði og á
Oddsskarði (milli Norðfjarðar og Eskifjarðar). Á
Suðurlandi var unnið að Krísuvíkurvegi, bæði að
austan og vestan. Gerðar voru brýr á Laxá í Svína-
dal (Dalasýslu), Haukabergsá á Barðaströnd, Þverá
í Dýrafirði, Hafnardalsá á Langadalsströnd, Vestur-
hópshólaá í Vestur-Húnavatnssýslu, Kornsá i Vatns-
dal, Brúnastaðaá í Fljótum, Reykjadalsá í Suður-
Þingeyjarsýslu, Hengifossá og Bessastaðaá i Fljóts-
dal, Jóku og Eyrarteigsá í Skriðdal. Öxarárbrú á
Þingvöllum var breikkuð og endurbyggð að nokkru
leyti.
Efnisskortur bagaði mjög framkvæmdir í símamál-
um. Hafinn var undirbúningur að lagningu jarðsíma
um Norðurland og byggingu sjálfvirkrar símstöðvar
á Akureyri. Lagðir voru notendasímar til nokkurra
sveitabæja, og mikið var unnið að viðhaldi lands-
símalínanna. Hafin var bygging nokkurra símstöðv-
arhúsa og stækkun annarra.
Verzlun. Viðskipti voru enn langmest við Banda-
ríkin og Bretland. Innflutningur á vörum var lang-
mestur frá Bandaríkjunum, en útflutningur til Bret-
(69)