Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 110
Benedikt Sveinsson.
Jón Iljaltdlin.
Á nokkruin þingum var flutt frumvarp um há-
skóla —• eða landsskóla —. Gekk á ýmsu með sam-
þykkt frumvarpa og synjun á staðfestingu eða fram-
kvæmd. Ekki vantaði áhuga margra menntamanna á
málinu. Lá þó kyrrt um hrið.
Árið 19.07 var samþykkt tillaga um að skora á
landsstjórnina að undirbúa frumvarp til laga um há-
skóla, er leggjast skyldi fyrir Alþingi 1909. Forstöðu-
menn embættismannaskólanna þriggja störfuð að
samningu frumvarpsins. Máli þessu lauk þannig, að
á Alþingi 1909 voru samþykkt lög um Háskóla Is-
lands, og var hann settur i Alþingishúsinu á aldar-
afmæli Jóns Sigurðssonar. Deildir háskólans voru
4: Guðfræðideild, læknadeild, Áagadeild og heim-
spekideild, en þar skyldi kenna auk heimspeki: ís-
lenzka málfræði og' sögu íslands og íslenzkra bók-
mennta að fornu og nýju.
Árið 1914 var bætt við kennaraembætti i klassisk-
um fræðum, en það var lagt niður 1927. Ýmsar
smábreytingar voru síðar gerðar á háskólalögunum,
flestar til aukins náms í ýmsum deildum skólans. Á
Alþingi 1934 var flutt frumvarp um Háskóla íslands,
að fengnum tillögum háskólaráðs, en náði ekki fulln-
(108)