Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 113
Ásgeir Ásgeirsson. Jakob Kristinsson.
(1877). Að Jóni Þórarinssyni látnum varð Asgeir Ás-
geirsson fræðslumálastjóri og gegndi því embætti,
þar til hann varð bankastjóri 1. nóv. 1938, nema þann
tíma, er hann var fjármála- og forsætisráðherra
(1931—1934). Ásgéir beitti sér mjög fyrir endur-
skoðun fræðslulaganna 192G og 1936 og fyrir hans at-
beina voru samþykkt lög um fræðslumálastjórn 1930.
Eru i þeim lögum ákvæði um störf fræðslumála-
stjóra, kennslueftirlit (námsstjóra), skólaráð o. fl.
Meðan Ásgeir var ráðherra, gegndu þeir Freysteinn
Gunnarsson skólastjóri og Helgi Elíasson fulltrúi
fræðslumálastjóráembættinu þannig, að Freysteinn
annaðist afgreiðslu mála, er varðaði framhalds- og
sérskólana, en Helgi mál barnafræðslunnar.
Séra Jakob Kristinsson tók við fræðslumálastjóra-
embættinu eftir að Ásgeir Ásgeirsson varð banka-
stjóri og gegndi því til 1. ágúst 1944, er hann sagði
því lausu, og var Helga Elíassyni þá veitt það.
Hér að framan hefur verið drepið lauslega á hið
helzta og markverðasta, sem gerzt hefur í skólamál-
um hér á landi til þessa, og þá einkum þær ráðstaf-
anir, sem hið opinbera — þing og yfirstjórn fræðslu-
(111)