Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Page 124
Stephan G. Stephansson: Bréf og ritgerðir.
Árið 1938 hóf' þjóðvinafélagið að gefa út Bréf og rit-
gerðir eftir Stephan G. Stephansson. Upplagið var lítið,
um 16 hundruð eintök ætluð til sölu hér á landi, og fór
mestur hluti þess til fastra áskrifenda að bókum félagsins.
II. bindi þessa verks var prentað 1942. Vegna þess
hversu áskrifendum hafði fjölgað siðan 1938, var ekki unnt
að láta bókina koma með ársbókum félagsins, og var hún
því seld sér í lagi við mjög vægu verði, 12 kr. bindið, til
þess að gamlir félagsmenn ættu sem hægast með að eign-
ast hana. I. bindi er nú uppselt með öllu og lítið eftir af
II. bindi. Skal þvi öllum, sem eiga I. bindið eitt, bent á
að láta ekki dragast að kaupa II. bindi meðan kostur er.
Bókin er nú mjög eftirsótt og verður torgæt vegna þess,
hve lítið upplagið er í hlutfalli við tölu þeirra manna,
er safna góðum íslenzkum bókum, en þar verða bréf
Stephans jafnan í fremstu röð.
III. bindi bréfanna verður prentað að forfallalausu á
næsta ári og IV. og síðasta bindið á árinu 1947.
Prófessor Sigurður Nordal kemst svo að orði um bréfin
i formála sínum að útgáfu úrvalsins af kvæðum Stephans
(Andvökur, úrval, 1939):
„Hið íslenzka þjóðvinafélag hóf í fyrra (1938) út-
gáfu bréfa og ritgerða Stephans G. Stephanssonar.
Það verður seint fullþakkað dr. Rögnvaldi Péturssyni,
að hann skuli hafa safnað þessum bréfum, áður en
meira eða minna af þeim fór forgörðum, og búið
þau til prentunar, og þjóðvinafélaginu, að það skuli
hafa ráðizt í að gefa þau svo myndarlega út ... ég
hef getað gengið úr skugga um, hve geysimerkileg
heimild bréfin yfirleitt eru um Stephan og kvæði hans.
Ég vil því ekki láta þetta tækifæri ónotað til þess
að hvetja alla, sem Andvökum unna, til þess að ná í
þessi bréf til lestrar. Þau eru allt í senn einlæg og
hispurslaus, efnismikil og spakleg. Það hefur enn
verið of lítið gert til þess að vekja athygli almenn-
ings á þessari útgáfu, sem hiklaust má telja til stór-
viðburða í íslenzkum bókmenntum.“