Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Page 107
veiddust 1.911 laxar, 8,6 pund að meðalþyngd, næst henni
kom Laxá í Dölum með 1.600 laxa, þá Þverá í Borgarfirði
með 1.550 laxa og í fjórða sæti Grímsá og Tunguá í Borgar-
firði með 1.463 laxa. Stangveiði nam 47,7% af heildarlax-
veiði ársins, netaveiði var 22,5% og frá hafbeitarstöðvum
komu 29,8%. Mikill fjöldi seiða var seldur til Noregs, t.d.
150.000 regnbogasilungsseiði frá Laxalóni.
Búnaðarþing var að venju haldið í Reykjavík í febrúar.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda var haldinn á Laugar-
vatni og var minnzt 40 ára afmælis sambandsins. Nokkrar
hræringar voru í félagsmálum bænda. Var stofnað félag
kúabænda á Suðurlandi og landssamband sauðfjárbænda.
Formaður hins síðarnefnda er Jóhannes Kristjánsson,
bóndi á Höfðabrekku í Mýrdal.
Nokkuð bar á búfjársjúkdómum á árinu, og varð t.d.
vart við fjárkláða í Reykhólasveit. Þá kom upp riðuveiki á
bænum Hörgshlíð í Mjóafirði við Djúp, og var öllu fé þar
slátrað. Um miðjan marz var gripið til einstæðra aðgerða til
þess að lóga riðusjúkum kindum í Barðastrandarsýslu.
Fékk sýslumaður þyrlu landhelgisgæzlunnar til þess að
fljúga með fram fjallinu Tálkna, og voru um 30 kindur þar
skotnar á færi.
Hinn 1. júlí var kjarnfóðurgjald hækkað um 200%.
Kjúklinga- og svínabændur mótmæltu þessu mjög harðlega,
og töldu verð á afurðum þeirra til neytenda mundi hækka
um 15%. í júlí neituðu BSRB og ASÍ að tilnefna menn í
verðlagsnefnd búvara. í ágúst samdi Stéttarsamband bænda
við ríkisstjórnina um framleiðslu verðlagsársins frá 1. sept-
ember 1985 og til 31. ágúst 1986. Samið var um fullt verð
fyrir 107 millj. lítra af mjólk og 12.000 tonn af kindakjöti.
Er þetta fyrsti samningur ríkisvalds og bænda af þessu tagi.
Vegna tregrar kindakjötssölu um haustið var í nóvember
efnt til útsölu á kjötinu og það lækkað um 20%. í kjölfarið
fylgdi sama verðlækkun á kjúklingum. Ágæti, nýtt sölufé-
lag matjurtaframleiðenda, tók til starfa 1. desember. —
Kýrin Freyja 28 frá Sólheimum í Staðarhreppi í Skagafirði
mjólkaði mest allra kúa á landinu á árinu, 9.059 kg.
(105)