Jólagjöfin - 24.12.1922, Blaðsíða 36
34
Jólagj'ófÍn
um birkigreinum fyrir framan sig á gólfinu, en tágarnar, sem
hún haföi til aS reyra meS vendina, voru ónýtar. Á stórstof-
unni var lítill, lágur gluggi meS smáum rúSum, og þaSan
lagöi bjarmann frá baSstofunni inn í stofuna, hann lék um
gólfiS og gylti kvistina. En því glaSari sem eldurinn varð,
því hryggari varS stúlkan. Hún vissi, aS vendirnir mundu
detta í sundur, jafnskjótt sem viö þeim yröi hreyft, og henni
myndi verða brígslað um það sí og æ, þar til nýtt bál logaði
á næstu jólum.
En meðan hún sat þarna í öngum sínum, kom sá inn í stof-
una, sem hún hræddist mest allra. Það var húsbóndinn sjálf -
ur, Ingimar Ingimarsson. Hann hafði auðvitað verið í bað-
stofunni til að sjá um, að ofninn yrði nógu heitur, og nú
ætlaði hann að líta eftir, hvernig vöndunum liði. Hann var
gamall, þessi Ingimar Ingimarsson, og hann unni því, seni
gamalt var. Og einmitt vegna þe'ss, að menn voru farnir að
hætta baðstofuböðunum og vandafleingingum, þá lét hann
sig það miklu skifta, að þetta yrði gert á sínu heimili og
rækilega gert.
Ingimar Ingimarsson var í gömlum sauðskinnsfeldi, í skinn-
brókum og á biksaumsskóm. Hann var óhreinn og órakaður,
seinn og silalegur og kom svo hægfara inn, að menn hefðu
eins vel getað ímyndað sér, að þarna væri korninn betlari.
En sömu andlitsdrættirnir og sami ljótleikinn sem hjá konu
hans, því að þau voru skyld, og stúlkan hafði, frá því að hún
fór að vitkast, lært að bera helga virðingu fyrir öllum þeirn,
sem þannig voru útlits. Því það eitt var mikið, að vera í ætt
við hið gamla kyn Ingimaranna, sem jafnan hafði verið göf-
ugast í sveitinni; en engin manneskja gat komist hærra en
að vera Ingimar Ingimarsson sjálfur, að vera ríkastur, vitrast-
ur og voldugastur í heilli sókn.
Ingimar Ingimarsson gekk til stúlkunnar, laut niður eftir
einum af bundnu vöndunum og sveiflaði honum. En þá flugu
þegar í stað greinarnar út um alt og ein lenti á jólaborðinu,
önnur í himinsænginni.
„Jæja, telpan mín,“ sagði Ingimar gamli hlæjandi. „Heldur
þú, að menn noti þess konar vendi, þegar menn fara í bað