Jólagjöfin - 24.12.1922, Side 77

Jólagjöfin - 24.12.1922, Side 77
Jólagjdfiit. 75 — Hvers vegna segir þú ekki neitt? sagöi Geronimo. — Jú, eg tala .... Fyrirgefiö, hr. lögregluriddari, hvernig getur þaö átt sér stað .... Hvað eigum við þá .... eöa öllu heldur, hvað á eg .... sannarlega, eg veit ekki .... — Þaö er nú einu sinni þannig. Það getur einnig vel verið, að þú sért saklaus. Að minsta kosti höfum við fengið sím- skeyti, — skipun um að stöðva ykkur, af því að þið eruð grunaðir, fastlega grunaðir, um að hafa stolið peningum frá mönnum þar efra. Nú, það getur auðvitað vel verið, að þið séuð saklausir. En nú af stað! — Hvers vegna segir þú ekki neitt, Carlo ? spurði Geronimo. — Eg tala, já, eg tala .... — Nú, nú, af stað! Hvaða vit er í því, að standa kyr hér á veginum. Sólin steikir. Eftir eina klukkustund erum við komnir áleiðis. Áfram! Carlo tók aftur undir handlegg Geronimo’s; svo gengu þeir hægt áleiðis. Lögregluriddarinn gekk á eftir þeim. — Hvers vegna segir þú ekki neitt, Carlo? spurði Geroni- mo aftur. — En hvað viltu að eg segi, Geronimo? Alt mun verða uppvíst —, eg, sem veit ekki sjálfur .... Og honum flaug i hug: A eg að skýra honum frá því, áður en við verðum kallaðir fyrir réttinn? .... Það er ef til vill ekki rétt .... nú, hvað gerir það. Fyrir réttinum vil eg að minsta kosti segja sannleikann. Hr. dómari, ætla eg að segja, þetta er ekki þjófnaður í venjulegum skilningi. Þaö var nefni- lega þannig .... Svo barðist hann við af finna orð, sem gætu skýrt málið nákvæmlega og fært málsbætur. í gær kom mað- ur nokkur akandi yfir skarðið .... hann getur hafa verið vitskertur — eða ef til vill hefir honum að eins yfirsést .... Og þessi maður .... En þetta er ógnar-vitleysa! Hver myndi trúa þessu? Honum mundi alls ekki verða lofað að tala svo lengi. Enginn getur trúað þessarri heimskulegu sögu .... Geronimo gat ekki trúað henni, hvað þá aðrir ........— Og hann gaf Geronimo hornauga. Höfuð blinda mannsins hreyfð- ist fram og aftur á göngunni, það var orðið að vana; en and- lit hans var svipbrigðalaust, og blindu augun störðu út í bláinn. — Og Carlo vissi alt í einu, hvað Geronimo hugsaði .... Þannig er þvi þá farið, hugsaði Geronimo vafalaust. Carlo stelur, — ekki að eins frá mér, frá öðrum stelur hann einnig .... Nú, hann á gott með það; hann hefir augu, sem sjá, og hann notar þau .... Já, þannig hugsar Geronimo áreiðanlega .... Og það getur ekki einu sinni sýknað mig, að engir pening- ar finnast á mér, — hvorki gagnvart réttinum né Geronimo
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Jólagjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.