Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 23. APRlL 2005
Helgarblað UV
~T
var sendur á spítala en flúði þaðan
kvöldið fyrir aðgerðina, „með nálina
í hendinni", eins og móðir hans orð-
ar það. „Hann hélt hann gæti ennþá
gert upp skuldina," segir móðirin
sem kom að syni sínum illa förnum
á heimilinu. Kailaði á lögregluna og
fékk vernd fyrir hana og soninn um
nóttina. Morguninn eftir fór hann í
skurðaðgerð og var síðan sendur úr
bænum á viðeigandi meðferðar-
heimili.
inni þar sem ofbeldisverk eru nánast
daglegt brauð.
Óttast ekkert
Á meðan þetta fór fram voru Þor-
steinn Hafberg og Daníel Christen-
sen í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Þorsteinn, sem átti frumkvæðið að
ofbeldisverkinu, játaði snemma.
Hann sagði blaðamanni DV sem
hitti þá félaga á miðvikudaginn að
hann hefði ekkert að óttast. Davíð
Ingi myndi hvort sem er ekki greina
rétt frá fyrir rétti.
Kannski hefur Þorsteinn rétt fyrir
sér því Davíð vildi í upphafi ekki
greina lögreglunni frá því hvað hefði
gerst. Skáldaði upp sögu sem móðir
hans segir hafa verið afar ótrúlega.
Hann hafi einfaldlega verið hræddur
og ekki viljað segja sannleikann.
Erfið ævi
Drengurinn hennar, Davíð Ingi,
hefúr átt erfiða ævi. Ánetjaðist fíkni-
efnum ungur og hefur margsinnis
þurft að leita sér hjálpar. Móðir hans
segir atburð helgarinnar ógnvæn-
legan en þó hafi hana grunað að
svona gæti farið. Harkan í fikniefna-
heiminum sé svo mikil.
„Það er sorglegt að hafa grunað
að svona gæti gerst. Ég vil bara
hvetja foreldra á Akureyri til að fylgj-
ast með börnunum sínum," segir
móðirin sem telur samstöðu for-
eldra mikilvæga ef nást eigi árangur
í þessari baráttu. „Það þýðir ekki að
þagga þetta niður. Dópið er stórt
vtmdamál hér á Akureyri sem verður
að glíma við."
Leit að hjálp
Eitt af því sem móðir Davíðs Inga
segir að hafi hjálpað sér eru svokall-
aðar vinalínur eða hjálparlínur. Hún
segir að fyrir nokkrum árum hafi
símtöl foreldra á Akureyri verið orð-
in svo mörg að ákveðið hafi verið að
stofna eins konar útibú af þessari
þjónustu í bænum. Þegar stofnfund-
urinn hafi verið haldinn mættu hins
vegar svo fáir að hætt var við áform-
in. „Það er eins og foreldrar þori ekki
að stíga fram," segir móðirin.
Aukin harka
Lögreglumenn á Akureyri
sem DV ræddi við gátu
staðfest frásögn móður-
innar um hina auknu
hörku á Akureyri. Daníel
Snorrason, lögreglufull-
trúi hjá Lögreglunni á
Akureyri, sagði ofbeldi
hafa færst í vöxt síðustu
fimm árin.
Daníel bendir einnig á
að sömu helgi og Þor-
steinn og Daníel fóru með
17 ára piltinn út fyrir bæj-
armörkin og skyldu eftir í
blóði sfnu handtók lög-
reglan fjóra aðila í tengsl-
um við dópmál á Bolung-
arvflc. Lögreglumenn eru
fáir og álagið mikið hjá
Lögreglunni á Akureyri.
„Undirheimarnir eiga
sér engin landamæri,"
sagði Daníel og átti við
að Akureyri væri farin að
líkjast æ meira stórborg-
Breyttar sögur
Eftir greinina í gær þar sem frá-
sögn þeirra félaga birtist, eins og
þeir lýstu henni fyrir blaðamanni á
rúntinum á Akureyri, höfðu Þor-
steinn og Daníel margsinnis sam-
band við blaðið. Þeir vildu fá borgun
fyrir greinina og sögðu ýmislegt
rangt með farið. Þeir hefðu til dæm-
is ekki skotið af gasskammbyssu
heldur túttubyssu.
Eitt skotið úr byssu Þorsteins fór
þrjá sentímetra inn í lærlegg Davíðs
Inga og aðspurður hvort slflct væri
mögulegt með lítilli túttubyssu sagði
Þorsteinn:
„Þú hefur greinilega verið mjög
heimskur krakki ef þú hefur ekki
kunnað að búa til alvöru túttubyssu,
kallinn."
Sekir ofbeldi
Handrukkarar
Þorsteinn Hafberg sparaði held-
ur ekki stóru orðin þegar kom að
greinaskrifúm DV. „Ég hugsa að þið
verðið afgreiddir," sagði Þorsteinn
Hafberg, handrukkari á Akureyri,
þegar DV hafði samband við hann í
gær. Spurður hvort hann ætlaði að
sjá um verkið sjálfur bætti hann við.
„Nei, ekki af mér."
Síðar um daginn hafði Þorsteinn
aftur samband til að segja blaða-
manni að hann væri í „vondum mál-
Fréttir af ofbeldismönnum í vikunni hafa vakið óhug. Um
síðustu helgi voru tveir menn barðir til óbóta af
ofbeldisklíku í miðbæ Reykjavíkur sem stærði sig af
verknaðinum á heimasíðu á netinu. Sömu helgi var 17 ára
ára piltur handrukkaður á Akureyri, látinn afklæðast og
skotinn fyrir utan bæinn. Ofbeldismennirnir ganga þó allir
lausir og halda áfram uppteknum hætti. Kerfið virðist
ráðþrota þegar ofbeldið harðnar.
„Heldurðu að þetta verði kúl þeg-
ar við bönkum upp á hjá þér?"
sagði hann, að því er virúst
æstur.
Trúin
Varðandi son sinn segir móðirin
að hún sé nánast búin að afskrifa
hann í dag. „Ég get ekki lengur kennt
sjálffi mér um hvemig komið er fyrir
honum," segir hún. „Hann hefur lif-
að í þessum heimi of lengi og ég hef
ávallt kennt sjálfri mér um hvernig
fyrir honum er komið. Nú hef ég hins
vegar sagt stopp. Hann verður að ná
tökum á sjálfiim sér í dag."
Móðirin segist einnig leita
hjálpar í trúnni. Hún hafi fundið
mikla hjálp hjá prestinum sín-
um auk þess sem hún hafi far-
ið á fundi fyrir aðstandendur
alkóhólista.
Ekki þegja
Þetta eru væg
dæmi um þær
aðferðir sem |
handrukkarar |
nota. Eins og
sést í greininni
um Annþór
Kristján Karls-
son óskar enginn
sér þess að hand
rukkari banki uppá
á heimili sínu. Móð-
ir Davíðs Inga, sem
varð fórnarlamb Þor-
steins og Daníels um
síðustu helgi, segir þó
mikilvægt að láta óttann
ekki ná yfirtökunum.
„Foreldrar mega ekki láta
undan óttanum," segir móðir-
in og hvetur aðstandendur
þeirra sem lenda í klóm trndir-
heimanna að leita hjálpar en
þegja ekki yfir vandamál-
inu. „Aðeins með sam-
stöðu næst árangur,"
segir hún.
simon@dv.is
um
Daníel Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn á Akureyri
Segir ofbeldið verða haröara með
hverju árinu.
Þorsteinn Hafberg
handrukkari
Misþyrmdi 17 ára
dreng með
gasskammbyssu um
slðustu helgi.