Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Side 50
50 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 Helgarblað DV Laugardagskj allar i stað, gera góðlátlegt grín að öllu. Sá sera setur upp nasistahúfu á hins vegar á hættu að vera lögsóttur. Nasistaþorrablót myndi ábyggilega lenda á forsíðu DV og gera aila sem tóku þátt ærulausa. í huga okkar er stigsmunur á glæpum nasista og kommúnista; þar af leiðandi líka á fórnarlömbum nasista og kommún- ista. Hin síðamefndu hafa fengið óæðri sess í sögunni. Nasisminn er talinn hreinn barb- arismi. Kommúnisminn á hins vegar enn sína afsakendur; sú skoðun hef- ur verið útbreidd að í raun sé kenn- ingin góð, það sé bara framkvæmd hennar sem hafi farið í handaskol- um. Yfirhylmingin nær langt aftur. Hún var ekki bara ástunduð af kommúnistum sem boðuðu það sem hefur verið kallað „stærsta lygi tutt- ugustu aldarinnar", heldur líka af þeirri tegund manna sem Lenín kall- aði nytsama idjóta. Þetta voru menn sem vildu trúa því £ lengstu lög að í kommúnistaríkjum væri eitthvað markvert á ferðinni sem þyrfti að veita stuðning. í raun er ótrúlegt hvað tókst vel að fela og rugla sann- leikann um það sem gerðist. Hér var hann kallaður Morgunblaðslygin. Niirnberg-lygin Önnur lygi hefúr verið kennd við Númberg. Eftir stríðið var efiit til mik- illa réttarhalda yfir hinum sigruðu nasistum í þeirri borg. Þeir sem komu frá Sovétríkjunum til að dæma nas- istaböðlana vom böðlar sjálfir, blóði drifnir ekki síður en nasistamir sem þeir áttu að dæma. Þetta vissu Vestur- veldin vel en samt veittu þau sam- þykki sitt. f þessu fólst stór uppgjöf gagnvart glæpum kommúnismans; yfirlýsing um að það væri afstætt hvaða glæpir teldust alvarlegir og hverjir mættu gleymast ef svo hent- aði. Á þessum tíma var líka deilt um skilgreininguna á þjóðarmorði hjá Sameinuðu þjóðunum. Sérstaklega var reynt að passa upp á að hún for- dæmdi ekki glæpi Sovétríkjanna og annarra kommúnistastjóma sem beindust að miklu leyti inn á við, gegn eigin þegnum. Margir álíta að hún sé enn gölluð að þessu leyti. Mesta morðstjórnin? Öll þjóðarmorð eða glæpir gegn mannkyninu em náttúrlega einstæð á sinn hátt. Um viðurstyggð Helfarar- innar þarf ekki að efast; sjálfur hef ég skoðað mörg söfii og minnismerki sem fjalla um hana. Ég er ekki ennþá farinn að nefiia það sem er hugsan- lega mesta morðstjóm sögunnar - kommúnistana í Kína. En við erum ekki miklu nær ef við höldum því fram að eitt fjöldamorð sé merkilegra en hin, ef við förum að raða þeim í mikilvægisröð frá Hitler, niður í Stalín, Maó, Pol Pot og Rúanda. Það opnar altént ekki fyrir mikinn skiln- ing á hinni morðóðu 20. öld. Hin morðóða 20.öld Séra Baldur Kristjánsson í Þor- lákshöfn skrifaði grein í Moggann nýskeð í framhaldi af umræðum sem höfðu orðið um gyðingdóm. í grein- inni fullyrti Baldur að hin endanlega lausn Hitlers, nasistatíminn og út- rýmingarbúðirnar, ætti sér „einfald- lega enga hliðstæðu". Það mætti ekki •útvatna þessa atburði með samlík- ingum. Steinþór Heiðarsson svaraði Baldri í vefritinu Múmum. Hann mælti gegn því að litið væri á nas- ismann sem einstætt hliðarspor, nefhdi til að mynda þjóðarmorð Tyrkja á Armenum og grimmdarverk á tíma nýlendustefnunnar. Steinþór sagði að þessir atburðir stæðust fylli- lega samanburð við Helförina hvað varðar „mannfall og grimmd“. Hins vegar nefndi Steinþór af ein- hverjum ástæðum (kannski af því hann skrifar í róttækt vinstrisinnað vefrit?) ekki fórnarlömb kommúnista á 20. öldinni. Samkvæmt svokallaðri Svartri bók um kommúnismann sem kom út í Frakklandi árið 1997, afar r vönduðu verki og ítarlegu, eru þau talin vera 100 milljónir. Glæpir iðnvæddrar menningarþjóðar Baldur, sem hefur verið ffamar- lega í baráttunni gegn rasisma, rekur ýmis nokkuð kunnugleg rök fyrir því að Helförin sé einstök. Hún sé dæmi um hvað „menntuð, menningarlega sinnuð, tæknilega þróuð þjóð getur aðhafst þegar viss jarðvegur er fyrir hendi". Jú, þetta eru einmitt tvær helstu röksemdir þeirra sem telja Helförina einstæðan atburð; það er „menningarþjóð" sem fremur glæp- inn, morðin eru svo að segja „iðn- vædd". Gleymska og sakaruppgjöf Við skulum skoða þetta aðeins betur. Franski sagnfræðingurinn Alain Besan^on skrifar að glæpir kommúnismans séu umluktir bæði „amnesi" og „amnesti"; gleymsku og uppgjöf saka. í Rússlandi hefur til dæmis aldrei neinn verið dreginn fyrir dóm vegna glæpsamlegs atferlis kommúnistastjórnarinnar. Fórnar- lömbin eru þögul, enda að miklu leyti fábromir bændur og ómenntað fólk. Það er líkast því að sagan hafi gleypt það. Állt annað var uppi á teningnum í Þýskalándi. Þýskaland hmndi til grunna eftir stríðið - lyppaðist ekki bara niður eins og Sovétrfldn. Stærstur hluti landsins varð fljótt opið lýðræðissamfélag; það hefur beinlínis verið opinber stefna að halda vakandi sektarkennd vegna glæpa nasista. Helförin er á hvers manns vömm; nöfn helstu glæpa- mannanna em alþekkt. Hins vegar em einhver mesm glæpaverk 20. ald- arinnar, hungursneyðimar sem vom beinlínis skipulagðar af bolsévíkum, ^em mestanpart gleymdar. Helför með stórum staf Helförin er skrifuð með stórum staf. Hún er Holocaust. Fórnarlömb nasismans hafa átt ótal góða tals- menn sem hafa skrifað merkilegar bækur, gert kvikmyndir og stofnað söfn til að halda minningunni lif- andi. Það er búið að rýna í merkingu - atburðanna frá öllum hliðum. Ger- endumir hafa verið dregnir fyrir dóm allt fram á síðustu ár; þeir fundu hvergi griðastað í heiminum. Auschwitz er helgur staður. Helförin er „íkon" eins og danski sagnfræð- ingurinn Bent Jensen kallar það í merkilegri bók, Gulag og glemsel. Þeir sem lfkja henni við eitthvað annað em ásakaðir um að gera lítið úr henni. Það er hins vegar ekki til neitt kvik- myndaefni um Gúlagið eða hung- ursneyðina miklu í Úkraínu; varla neinar ljósmyndir. Það hafa ekld ver- ið gerðar vinsælar sjónvarpsþáttarað- ir um þessa skelfilegu atburði - ekki nein Schindler’s List. Gamlar fanga- búðir em ekki eftirsóttir ferðamanna- %staðir. Það hefur löngum verið litið á Solshenitsyn, helsta skrásetjara Iðnvædd morð Eins og áður segir er eitt viðkvæð- ið að Helförin sé einstök vegna þess að þar var notuð nútímaleg tækni. Járnbrautarlestir til að ffytja fórnar- lömbin, gas til að drepa þau: settar vom upp verksmiðjur til að vinna af- urðimar. Þetta var skipulagt af kaldri tæknihyggju. Hannah Arendt skrif- aði um „the banality of evil"; morð sem vom ffarnin af kerfiskörlum. Það er mjög útbreidd hugmynd að það sé einhver stigsmunur á þessu og öðrum glæpum gegn mannkyn- inu. Það sé hvort sem er varla við öðm að búast af hinum fmmstæðu Rússum; þeir hafi alltaf verið nær Dsjengis Khan en Goethe. En athæfi Leníns og Stalíns og fylgismanna þeirra var ekki svo ýkja ólíkt. Sjálfur orðaði StaKn það svo að sósíalismanum skyldi komið á með „öllum tiltækum ráðum". Sovét- stjómin notaði líka gripavagna. Hún flutti heilu þjóðimar langvegu og setti þær niður í einskismannslandi þar sem fólkið hrundi niður eins og flugur: Tsétsénar, Kalmúkar, Krím- Tartarar, Volgu-Þjóðverjar. Hún kom upp þrælabúðum sem vom rík- ur þáttur í hagkerfi rfkisins, þar sem fangamir vom gernýttir í þágu fram- leiðslunnar. Heimspekingurinn Tzvetan Todorov segir að alræði sé helsta uppfinning tuttugustu aldarinnar. Birtingar- myndir þess em nasisminn sem er talinn vera á hægri væng stjórnmál- anna, kommúnisminn á þeim vinstri. En munurinn er kannski ekki svo mikill. Grunnhugmyndin er að einstaklingnum sé fórnandi fyrir heildina; sjálfur hafi hann í raun ekkert gildi. Markmiðið er að skapa samfélög þar sem rikir algjör sam- hljómur, heildin gengur fyrir öllu - alhr em stétthreinir og kynhreinir. Nútímaleg vísindi Alræðinu, segir Tsodorov, er stefnt gegn einstaklingshyggjunni sem hefur verið vaxandi í vestrænni menningu í mörg hundmð ár. Það er í senn nútímalegt og hlaðið fortíðar- þrá. Bæði nasisminn og kommún- isminn vísa í forn samfélög þar sem ríkir eindrægni; hjá nasistum er það frumgermanskt samfélag, hjá marx- istum óljós hugmynd um frum- kommúnískt ástand. Um leið gefa báðar kenningarnar sig út fyrir að vera nútímalegar, ffamfarasinnaðar og vísindalegar. Díalektísk efnishyggja var kennd eins og hrein vísindi, rétt eins og kynþáttafræði nasista. Hjá komm- Egill Helgason veltir fyrir sér hvort eitt fjöldamorð sé merkilegra en önnur. glæpa Sovétstjómarinnar, sem sér- lundaða íhaldsbullu. Samt var það hann sem öðrum ffemur gaf fómar- lömbunum rödd í einu merkilegasta riti síðustu aldar, Eyjahafinu Gúlag. Kynþáttamorð og stéttamorð Hvert fjöldamorð er vissulega einstætt, en hliðstæðurnar milli nas- isma og kommúnisma em þó marg- ar. Hitler vildi skapa þjóð og á end- anum heim sem væri laus við gyð- inga. Sjálfur Lémn sagði að ekki væri hægt að tala um fullnaðarsigur kommúnismans fyrr en búið væri að útrýma borgarastéttinni. í báðum tílvikum er tilgangurinn að skapa nýja veröld, fullkomnara mannkyn - útópíu. Kenningin segir að það sé ekki hægt án þess að hluti mann- kynsins sé þurrkaður út; annars veg- ar fólk sem er af röngum kynþætti, hins vegar fólk sem er af rangri stétt. Það er kannski ekki svo ýkja mikill munur. Menn em ekki ofsóttir fyrir það sem þeir hafa gert, það er ekki nauðsyn að hafa framið glæp; sektin liggur í því sem menn em. Hreinlætisæði Þessu hefur stundum verið jafiiað við hreinlætisæði. Þessi „social- hygenie" einkennir bæði kommún- ismann og nasismann. Það þarf að eyða hinu gamla og óhreina: gyðing- um, sígaunum, borgarastéttinni, bændum. Óvininum er úthúðað á svipaðan hátt. Nasistar töluðu um „untermenschen", kommúnistar um „fyrrverandi manneskjur". Áróðurs- efhi nasista og kommúnista er furðulega líkt. Gyðingar em skordýr, stórbændur em skordýr. Lenín kall- aði rússneska menntamenn skít. Það vom líka notuð orð eins og svín, lýs, refir, kakkalakkar, flær, óðir hundar. Málið er að gera óvininn ómennsk- an; eftir það em engin takmörk fyrir því hvað gildi mannsfifa getur faihð hratt. Ofbeldi gegn slíkum meindýr- um verður dyggð. önnur vinsæl líking, bæði hjá kommúnistum og nasistum er að óvinurinn sé smit, drep sem verði að koma í veg fyrir að breiðist út. Eftir einum helsta samverkamanni Stalíns, Lazar Kaganovitsj, var haft; „Maður verður að líta á mannkynið sem einn líkama sem þarfhast stöð- ugra skurðaðgerða. Það er ekki hægt að skera upp án þess að úthella blóði, fjarlægja og eyðileggja vefi." Kaganovitsj dó í hárri elli 1991 og var aldrei saksóttur fyrir glæpi sína, ekki heldur Molotov sem dó árið 1986. Samyrkjuvæðingin Sá glæpur sem útheimti flest mannslíf var þó samyrkjuvæðingin; sú nútímalega hugmynd að troða hinni risastóru bændastétt inn í samyrkjubú. Til þess þurfti að brjóta algjörlega niður gamla samfélagið, flæma alla bændur af jörðum sínum. Nasistar myrtu sex milljón gyðinga; í tilbúnu hungursneyðinni í Sovétríkj- unum 1932-33 dóu ekki færri, það er talað um sjö til tíu milljón fórnar- lömb. Þetta var af ráðnum hug; hungrið var notað sem morðvopn. í Úkraínu er þetta þjóðarmorð kallað Holodomor - um það hefur annars ríkt furðuleg þögn. Helsta upþfinning 20. aldarinnar Nútímaleiki sjálfrar drápsaðferð- arinnar skiptir kannski ekki svo miklu máli heldur, fremur hug- myndirnar sem liggja að baki. Hungursneyð í Úkraínu Talið erað 25 þusund manns hafi látist á dag þegar hung- ursneyðin i Úkralnu stóð yfir. Hungrið var af mannavöldum, notað sem morðvopn gegn oæskilegu fólki sem átti að útrýma. únistum felur öreigastéttin í sér sjálft markmið mannkynssögunnar, hjá nasistum er það hinn germanski kynstofn. Mannkynsfrelsun öllu er fórnandi fyrir mannkyns- frelsunina; lofað er sæluástandi sem muni vara í meira en þúsund ár. Því þetta eru þúsundárarflá. í því borg- aralega lýðræði sem við þekkjum eru hins vegar ekki önnur fyrirheit en að hver einstaklingur getí leitað ham- ingju og lífsfyllingar; það er á hans eigin ábyrgð ef honum mistekst. Það er kannski ekki furða að stjómmálin virki stundum daufleg f kerfi sem læt- ur sér nægja svo látlaus markmið. Nytsamir idjótar og Moggalygin Þeir fara ennþá í stalínsleik á þorrablótunum austur í Neskaup-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.