Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 61
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 23. APRlL 2005 61
Hinn raunverulegi Forrest Gump
Heimildarmyndin Mayor of Sun-
set Strip fjallar um Rodney nokkurn
Bickenheimer sem er lifandi goð-
sögn úti í Los Angeles. Hann þekkir
allt fræga fólkið og allt fræga fólkið
þekkir hann. Það mætti kannski lfkja
honum við karaktera hér í Reykjavik
eins og Frikka Weisshappel eða Þor-
stein Högna hér í denn. Hann er
ffægur um alla borgina og víðar, en
af hverju hann er frægur eru ekki all-
ir með á hreinu.
Við fylgjumst með ævi þessa
hægláta og vinalega manns frá barn-
æsku til dagsins í dag. Galleríið af
þekktum persónum sem hann hefur
látið mynda sig með er óþrjótandi.
Þarna eru viðtöl við heimsþekkta
einstaldinga, eins og Nancy Sinatra,
Cher, Debbie Harry, David Bowie,
Joey Ramone, Brian Wilson, Ray
Manzarek ofl. ofl. um Rodney og
hvernig hann hefur komið við sögu
þeirra í gegn um tíðina.
Hann kom fyrst ffarn á „sjónar-
sviðið" í kringum 1965, þegar hann
var notaður sem tvífari Dave Jones í
Monkees-þáttunum. Upp úr því
varð hann maðurinn sem kynnti
Hollywood fyrir öllum ensku liljóm-
sveitunum og stofnaði klúbbinn
English Disco á glamrokk-u'mabil-
inu. Hann hefur síðan séð um sinn
eigin útvarpsþátt á útvarpsstöðinni
KROQ og á heiðurinn af því að hafa
verið fyrstur til að spila liljómsveitir
eins og Slade, Sex Pistols, Blondie,
Nirvana og No Doubt í bandarísku
útvarpi.
Það er í sjálfu sér alveg nógu
merkilegt til að gera mynd um
þennan mann, en leikstjórinn,
George Hickenlooper, fókuserar
meira á líf þessa manns í þessari
undarlegu borg yfirboðsmennsk-
unnar. Hver er hann og hvað fær
hann til að vera sá sem hann er?
Þekkir hann einhver í raun og veru?
Við sjáum lún og þessi fræg móment
í roldcsögunni þar sem hægt er að
greina Rodney einhvers staðar í
áhorfendaskaranum. Hann sést bak
við bassamagnarann þegar Blondie
flytja Heart of Glass í einhverjum
sjónvarpsþætti árið 1978. Hann situr
á sviðinu á meðan Mamas and the
Papas syngja Califomia Dreaming
Mayor ofSunset Strip
SýndállFF
Leikstjóri: George Hickenlooper
Aðalhlutverk: Rod- -'■'-■v
ney Bicken-
heimer, Kim
Fowley, David
Bowie ofl.
★ ★★ . .
Sigurjón fór í bíó
árið 1966. Hann er alls staðar. Minn- t
ir helst á Forrest Gump.
En bak við vinalegt yfirborðið
virðist vera mikill tregi og einmana-
leiki. Hann á í raun enga vini nema
þá sem þurfa á einhvern hátt á hon-
um að halda. Heimili hans er alsett
árituðum myndum af honum með
frægu fólki. Hann virðist hafa átt
einstakt samband við móður sína
sem er fallin ffá og faðir hans hefur
h'tið samband við hann. Hann á
enga kærustu, þó að hann reyni að
ljúga því að okkur nokkrum sinnum.
Hann er í raun sorglegur maður,
sem hefur fyrst og ffemst þann ein-
staka hæfileika að koma sér inn
undir hjá hinum ffægu.
Mayor of Sunset Strip er vafa-
laust ein besta heimild um Los Ang-
eles sem gerð hefur verið í langan
tíma. Þarna sýnir borg hinna
brostnu drauma sitt rétta andlit.
Siguijón Kjartansson
.tunJP*-5
Plant bauð
ásatrúarmönn-
um á tónleikana
Robert Plant og félagar í
Strange Sensation gerðu allt vit-
laust á tónleikunum í Höllinni í
gær með kraftmiklum flutningi
á nýjum lögum og vel völdum
sniÚdarverkum Led Zeppelin.
Þeir komu til landsins á mið-
vikudaginn og er Robert mjög
ánægður með dvölina hér.
Hann og félagar hans gerðu
margtafþví
helsta sem
ferðamenn
telja
nauðsyn-
legt að
gera þeg-
arþeir
heimsækja
okkur og var
Einar Öm
Benediktsson
sérstakur leiðsögumaður hóps-
ins. Robert skoðaði borgina, fór
í Bláa Lónið og tók „gullna þrí-
hyrninginn" svokallaða. Þá fór
Robert á sumarblót ásatrúarfé-
lagsins og átti
þar m.a.
gott spjall
við Hilm-
arörn
Hilm-
arsson,
ailsherj-
argoða.
Ro-
bert
ogfé-
lagar
úr hljómsveitinni drukku bjór í
blótinu og horfðu á skemmtiat-
riðin, sáu t.d. Erp Ey-
vindarson rappa,
horfðu á þjóð-
legan maga-
dans og
hlustuðu
á rímna-
kveð-
skap.
Robert
var svo
hrifinnaf
starfssemi fé-
lagsins að hann
bauð öllumsem
vildu að koma á tónleikana.
Mætti því stór hópur ásatrúar-
manna á rokkið og skemmti sér
konungslega eins og aðrir.
Robert Plant flýgur af landi brott
í dag. Næstu tónleikar verða í
Scala í London á miðvikudag-
inn.
RR ehf kynnír
ELECTRIC WONDERLAND SHOW
■. ÆÍÉI
MIÐASALA A WWW.FARFUGLINN.IS
ÍSLANDSBANKA KRINGLUNNI OG SMÁRALIND.
PENNINN AKRANESI OG VESTMANNAEYJUM,
HLJOÐHUSINU SELFOSSI.
DAGSLJOSI AKUREYRI,
HLJÖMVAL KEFLAVÍK,
TÓNASPIL NESKAUPSSTAÐ
tilboð í Skífunni
i