Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR26. APRÍL 2005
Fréttir DV
Magnusgprsspn
Magnús þykirmjög skemmti-
legur maður og metnaðar-
gjarn i starfi. Hann þykir rosa-
lega frjálslegur, myndarlegur
og á auðvelt með að vinna
með fólki.
Sumir segja fullkomnunar-
áráttu Magnúsar vera hans
helsta galla. Hann reykir
víst líka mikið afstórum
vindlum og er á stöðugum
ferðalögum og þvi ekki nóg
I vinnunni.
„Hann er náttúrulega
sjúklega skemmtilegur
og kemst í splitt ijakka-
fötum sem er mikill
kostur við fram-
kvæmdastjóra. Hann er með
mjög góða rödd og flnn yfir-
maður, topppeyi. Hann á hins
vegar mjög Ijóta íþróttaskó sem
er það versta sem ég get fundið
á hann."
SJöfn Ólafsdóttir, vefstjórisl.is.
„Magnús er léttur og
skemmtilegur maður. Svo
er hann Frammari sem
skemmir ekki fyrir og með
sannkallaðan gullbarka
eins og alþjóð veit. Hann er
ástriðufullur I þvl sem hann er
að gera og metnaðargjarn.
Helsti gallinn viö hann þessa
dagana er að hann er oflítið á
landinu vegna stöðugra vinnu-
ferða."
Snorri Már Skúlason, verkefnastjóri
enska boitans.
„Það fyrsta sem mér
dettur í hug er hversu
hreinn og beinn hann
er. Hann hefur afburða
samskiptahæfileika, er
frjálslegur og óþvingaður. Svo
erhann auðvitað einn myndar-
legasti sjónvarpsstjóri í heimi og
hefur verið nefndur einn kyn-
þokkafyllsti karlmaður þjóðar-
innar. Hans helsti galli er þá
kannski vindlareykingar hans
og þá aðallega fyrir lungun
hans, hann ersamt voðalega
gæjalegur með þá."
Sigrfður Arnardóttir
dagskrárgerðarkon a.
Magnús Ragnarsson er fæddur áriö 1963
og er giftur Lauren Dorothy Hauser. Þau
eiga tvo stráka. Hann er framkvæmdastjóri
Skjás eins og hefur verió mikið I fréttum
undanfarið vegna deilna við Helga Her-
mannsson, fyrrverandi dagskrárstjóra
stöðvarinnar.
Útvarpsráð
tvífrestar
Erfiðlega gengur þessa
dagana að koma á fundi í
útvarpsráði. Síðast fundaði
ráðið 5. apríl síðastliðinn.
Þá var ákveðið að næsti
fundur yrði þriðjudaginn
19. apríl. Þeim fundi var
hins vegar frestað og
ákveðið að í staðinn yrði
haldinn fundur í dag, 26.
apríl. Ekkert verður af þeim
fundi því honum var einnig
frestað. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skrifstofu út-
varpsstjóra er ástæða hinna
ítrekuðu frestana sú að ekki
hafl reynst fundarfært
vegna fjarveru útvarpsráðs-
manna.
Cindy Olveira da Silva sem tekin var með tæpt kíló af kókaíni í Leifsstöð vildi að-
stoða lögreglu við að ná höfuðpaurunum. Cindy leiddi lögreglu á hótel þar sem hún
sagðist hafa átt að hitta kaupendur efnanna. Lögreglan yfirgaf hótelið með Cindy
aðeins hálftíma áður en maður gaf sig fram á hótelinu og spurði eftir Cindy. Sá hef-
ur verið yfirheyrður en Cindy er engu að siður sú eina sem ákærð var í málin.
'PátXJ
Jóhann R. Benediktsson
Náði kókinu og burðardýrinu
en engum höfuðpauranna.
piVinnimEEBw
Tæpum sólarhring eftir að Cindy
Oliveira da Silva, ung móðir og há-
skólanemi frá Brasilíu, var tekin með
tæpt kfló af kókaíni í Leifsstöð var
hún flutt af lögreglu á Hótel Frón þar
sem hún hafði bókað herbergi.
Cindy sagðist hafa fengið þau fyrir-
mæli frá mönnum sem réðu hana til
smyglsins að setja sig í samband við
mann einn eftir að hún hafði bókað
sig inn á hótelið. Ædaði lögreglan að
fylgjast með því ferli til að afla sér
frekari upplýsinga um kókaíninn-
flutninginn.
Burðardýrið tekur alla sök
Áætlunin gekk ekki eftir
því klukkan hálfsex yfirgaf
lögreglcm hótelið ásamt
Cindy. Hálftíma síðar kom
hins vegar maður inn á
hótelið og spurði eftir brasil- «
ískri konu. Telja má víst að sá
maður tengist innflutningi
efnanna.
DV hefur
heimildir fyrir
því að þessi
maður hafi
tvisvar sinn-
um verið
tekinn í
skýrslu-
töku hjá
lögreglu
eftir
heim-
sóknina á
Hótel Frón
en engin
ákæra var
gefln út á hendur honum. Því er það
Cindy Oliveira da Silva sem tekur
ein á sig sökina í þessu stórfellda
smyglmáli þótt enginn dragi það í
efa að hún sé aðeins burðardýr í
þjónustu umsvifameiri höfuðpaura.
Fóru með hana til dómara
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, stjórn-
aði rannsókninni. „Auðvitað taka
menn stundum rangar ákvarðanir
en ég get ekki sagt til um hvort það
hafi verið tilfellið í þetta skiptið,"
segir Jóhann.
Cindy Oliveira da Silva átti að
mæta í gæsluvarðhaldsúrkurð
klukkan sex þennan dag og
ekki var talin ástæða til frest-
unar. Því var ákveðið að yfir-
gefa hótelið þrátt fýrir að
miklivægur hlekkur í innflutn-
ingnum væri líklega á leið að
hitta hana. Það
gekk eftir því
spurt var eftir
henni aðeins
háiftíma eftir
að lögreglan
gafst upp á
biðinni.
„Málin
eru flókn-
ari en
þessi
mynd
sem birt-
ist,“ segir
Jóhann.
Hann tek-
það
Hálftíma eftir að lögreglan yfirgaf hótel þar sem hún ætlaði að
fylgjast með leynilegum fundi í stóru fikniefnamáli kom þangað
ónafngreindur aðili og spurði eftir burðardýrinu sem var í fylgd
með lögreglu. Ekki hefur tekist að upplýsa málið að fullu og er
burðardýrið eini aðilinn sem fær dóm vegna þess.
Hótel Frón Hér átti burðar-
dýrið að hitta tengilið sinn. Að-
eins hálftíma munaði að lög-
reglan næöi tengiliðnum.
einnig fram að sá sem fyrst vitji burð-
ardýranna hérlendis búi ekki endi-
lega alltaf yfir miklum upplýsingum.
Höfuðpaurar með eldveggi
Rannsókn Sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli leiddi ekki til þess
að kaupandinn að átta hundruð
grömmum af kókaíni næðist. „Okk-
ur þykir það náttúrulega leitt," segir
Jóhann R. Benediktsson. „Auðvitað
er það alltaf lokatakmark okkar að
ná þessum höfuðpaurum en okkur
getur ekki alltaf orðið að ósk okkar.
Þetta eru atvinnuglæpamenn sem
við er að eiga og þeir hafa afar þró-
aðar starfsaðferðir."
Jóhann segir einn hluta af þess-
um starfsaðferðum vera að notast
við eins konar eldveggi, eða milli-
liði, sem búa yfir takmörkuðum
upplýsingum. Þetta er gert til að
„Þetta eru atvinnu-
glæpamenn sem við
eraðeiga ogþeir
hafa afar þróaðar
starfsaðferðir"
erfitt sé að rekja sig til toppanna.
„Við erum alltaf að reyna að finna
leiðir til að brjótast í gegnum þessa
eldveggi og við munum berjast
áfram."
Cindy Oliveira da Silva fékk
tveggja ára fangelsisdóm fyrir helgi í
Héraðsdómi Reykjaness. í refsi-
ákvörðun sinni tók dómari hins veg-
ar tillit til vilja Cindy að aðstoða lög-
regluna við að upplýsa máhð að
fullu. andri@dv.is
Hjálparstofnun kirkjunnar neitar ásökunum um skemmdan mat
Öryrki veiktist eftir matargjöf
„Þetta er alveg skelfilegt og ekki í
fyrsta sinn sem svona kemur fyrir,"
segir Sigrún Ármanns Reynisdóttir,
sem er í forsvari fyrir Samtök gegn
fátækt.
Sigrún fór í gær og sótti töluvert
magn af mat heim til öryrkja sem
hafði fengið matinn hjá Hjálpar-
stofnun kirkjunnar fyrir nokkrum
dögum. Matinn hafði hann geymt í
frysti þannig að ekki gat hann hafa
skemmst hjá honum. Hún segir ör-
yrkjann hins vegar hafa orðið maga-
veikan eftir að hafa snætt mat úr
sendingunni.
„Það var ekld dagsetning á neinu
af þessu þannig að það er engin leið
að vita hvenær þetta rann út,“ segir
Sigrún en hún hefur áður haft sam-
band við heilbrigðiseftirlitið vegna
hliðstæðs máls. Hún segir þó ekkert
hafa breyst til batnaðar síðan sú
athugasemd var gerð. Vilborg Odds-
dóttir hjá Hjálparstofnun kirkjunnar
neitar því alfarið að maturinn frá
þeim geú hafa verið skemmdur.
„Matarinnkaup hjá okkur fara
fram eins og hjá öllum öðrum. Við
fáum engar gjafir heldur borgum við
fyrir allan þann mat sem við fáum,
hvort sem það er kjöt, fiskur eða
brauð. Það eina sem hugsanlega get-
ur verið komið fram yfir síðasta sölu-
dag er kex og fólk ræður því hvort
það fær svoleiðis kex eða ekki. Það er
hins vegar ekki hægt að fá matareitr-
un af því, við erum til dæmis með
það á boðstólum á kaffistofunni hjá
okkur," segir Vilborg.
„Ég veit til þess að kona nokkur
kvartaði eitt sinn vegna þess að mat-
urinn var bragðvondur og illa lykt-
andi en viðbrögðin voru ekki önnur
en þau að hún fékk engan mat næst
þegar hún kom,“ segir Sigrún og
bendir á að það sé nógu slæmt að
þurfa að leita á náðir fátækraaðstoð-
ar þótt það þurfi ekki að hnekkja enn
meira á stolú fólks með því að gefa
mat sem ekki nokkrum manni sé
bjóðandi.
krb@dv.is