Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2005
Menning DV
Reumert-verðlaunin veitt
Á mánudagskvöld var bein útsend-
ing á DR2 frá dönsku leikhúsverð-
laununum sem kennd eru við Paul
Reumert, íslandsvininn góðkunna,
eiginmann Önnu Borg. Afhendingin
fór fram i Konunglega leikhúsinu og
var afar látlaus og afslöppuð. Mætti
biðja um að útsendingarstjóri og
stjórn Eddunnar næðu sér i kópíu.
Sýning ársins var valin Lýðræði
eftir Mickeal Frayn en texti verksins
birtist á síðasta ári í íslenskri þýð-
ingu i Ritinu. Segirþar frá viðskipt-
um Willys Brandt við njósnarann og
aðstoðarmann sinn Guillieme. Peter
Langdal var verðlaunaður fyrir svið-
setningu verksins.
Leikkonur í sviðsetningu á Önnu
Karenínu tóku verðlaun fyrir besta
kvenhlutverk og besta aukahlutverk
konu, þær Meike Bahnsen og Marie
Louise Wille. Besti höfundur ársins
varJokum Rohde og verk hans Aska
Gosa, en úr þeirri sýningu þess Kon-
unglega kom besti karlleikarinn,
Henning Jensen.
Tónlistarsjóður veitti fyrir helgina fimmtíu og níu aðilum styrk til starfsemi á
komandi ári. Það er í fyrsta sinn sem þessi sjóður deilir út styrkjum sem munu
móta tónlistarlíf okkar á næstu misserum. Þar kennir margra grasa.
Er leið út?
Bókaforlagiö Bjartursendi frá sér
þrjár nýjar bækur fyrir heigina síð-
ustu. Þar á meðal var nýtt safn
texta eftirSteinar Braga sem hann
kallar Ijóðabókina Útgönguleiðir.
Það er sannast sagna að textarnir
eru afar Ijóðrænir en eru allir frá-
gengnirsem laust
mál.nánast sögur.
Á bókarkápu
hefur útgefand-
inn Bjartur klippt
saman nokkrar
setningar úr
köflum verkins
sem allireru
sjálfstæöir þó
þeirséu flestirúr
sama heimi: samklippið er svona:
„Sá sem talar er mjög drukkinn og
yfirgefur barinn með sköllóttum,
andlitsþrútnum manni. Sama sól-
arhringinn erhann á kvöldgöngu
meðfram sjónum og gengur fram á
dauðan fugl, máv. I millilendingu á
flugvellinum í H*** kaupir hann sér
kaffi og samloku og fínnur sér sæti
innan um fleira þreytulegt fólk sem
angar af kæfísvefni. Hann vaknar
um nóttina við dynk, utan við
kýraugað er myrkur. Hann heyrir
lágværan þyt og þegar hann lltur
yfír öxlina á sjálfum sér, að glugg-
anum, molnar flöturinn, dúkkan
skellur á gólfinu; höfuðið hangir við
búkinn á vír, glerbrotin snúast
hægt og glitra eins og stjörnur.
Steinar Bragi hefur áður sent frá
sér Ijóðabækur og skáldsögur, þar
á meðal táknsöguna Turninn,
Ljúgðu, Gosi, Ijúgðu sem er vísun í
gamlan brandara, og samtlmasög-
urnarÁhyggjudúkkurog um síð-
ustu jól Sólskinsfólkið. Bókin ber
snotra kápu eftirÁstu S. Guðbjarts-
dóttur. Og leiðbeinandi verð er kr.
1.680 sem aödáendum Steinars
þykirlltið.
Kveðiðvið
fornar súlur
Það skellur á með Skáldaspiru-
kvöldi á Kaffi Reykjavík I kvöld kl.
21 ásamatímaog
forstöðumaður
þessa merka menn-
ingarfyrirbæris
sendir frá sex bækur
með verkum ís-
lenskra skálda og
höfunda I nafni
Lafíeur-útgáfunnar.
Þá þykja það tíðindi
lljóðaheimum að
Þorsteinn
frá Hamri
stórskáldið Þorsteinn frá Hamri les
upp úr verkum sínum.
Upplesarar að þessu sinni verða I
kvöld: Eyvindur P. Eiríksson les úr
nýrri skáldsögu: Örfok. Þorsteinn
Antonsson les úr nýju smásagna-
safni: Ugla sat á kvisti og Þorgerð-
ur Mattía Kristiansen les ný Ijóð.
Þorsteinn frá Hamri les slðan úr
verkum sínum. Og að lokum les
Hörður Gunnarsson úr nýrri Ijóða-
bók: Meö mér er Regn.
Helmingi fleiri umsóknir bárust
en veittir styrkir voru, alls bárust 123
umsóknir og 6 að auki sem bárust
fyrir auglýsingu um sjóðinn. Þau
voru 59 verkefnin sem fengu styrk og
þar af eru þrír starfsstyrkir til þriggja
ára: Kammersveit Reykjavíkur fær
styrk til tónleikahalds, útgáfu og
annarrar starfsemi til þriggja ára að
upphæð kr. 4, 5 milljónir á ári. Það
fær líka Caput en ögn lægri upphæð,
4 milljónir á ári, og Stórsveit Reykja-
víkur 2 milljónir.
Á fjárlögum 2005 eru 50 millj.kr.
til tónlistarsjóðs og nema styrkveit-
ingar að þessu sinni um 35 millj.kr.
Síðar á árinu verður aftur auglýst
eftir umsóknum.
Ferðastyrkir
Sjóðurinn er meðal annars hugs-
aður sem útflutningssjóður enda
sækja margir í hann til að koma
verkum á framfæri erlendis: meðal
þeirra sem hyggjast leggjast í víking
eru: Tólf tónar, Atón, Sigurður Bald-
ursson söngvari, Tónslistarskóli
Húsavíkur sem vill á kóramót á ítal-
íu í sumar. Gunnhildur Einarsdóttir
vill slá hörpu á írlandi. Smekkleysa
ætlar að leggja Bretland undir Jagú-
ar og Ske og fær til þess gull. Rúnar
Óskarsson fer til Niðurlanda og
Skólahljómsveit Kópavogs herjar á
þá í Þrándheimi og Gautaborg.
Höldum hátíð
Þá eru hátíðarstyrkir áberandi í
afgreiðslu sjóðstjórnar: Aldrei fór ég
suður á ísafirði og Þjóðlagahátíðin á
Siglufirði fá smáaura, Djass á Egils-
stöðum og Blús í Reykjavík sömu-
leiðis. Þá sækja menn um styrki til
að hljóðrita: Áshildur Haraldsdóttir
fær styrk til að taka upp flautuverk
Atla Heimis og Voces Thules heldur
áfram að vinna með eldri tónlist í
handritum og Carmina hyggst vinna
úr Melódíu. Elín Gumflaugsdóttir
hyggst hljóðrita sín eigin verk. Bjarki
Sveinbjörnsson ætlar að rannsaka
verk Páls ísólfssonar.
Smáupphæðir
Svo eru margs konar verkefni
innanlands á lista styrkhafa: Dóm-
kirkjukórinn og Viólufélagið, Hóla-
nefnd og Sumartónleikar í Skál-
holti. Listinn er langur og verkefn-
in margvíslega en æri eru margar
upphæðir lágar og hætt við að
margt verkið verði unnið fýrir lítil
daglaun í tónlistarlífl sem nýtur
svo lágra styrkja. En þessi sjóð-
stoftiun var þörf og sjóðstjórn
hefur sett saman lista yfir kröftuga
sveit tónlistarfólks sem eru full-
hugar í sókn listarinnar til áheyr-
enda heima og heiman. Mjór er
mikils vísir.
Veldi Andrews Lloyd-Webber er til sölu fyrir rúma sex milljarða
Leikhúskóngur losar eignir
Veldi Andrews Lloyd-Weeber á West
End I London er til sölu og kostar hálfan
milljarð punda. Kompaniið heitir Really
Useful Company og stofnaði tónskáldið
það til að halda utan um rekstursinn á
söngleikjum sem hann var þá með í
rekstri eftir sigurgöngu Jesus Christ
Superstar og Evitu, en þó einkum Cats
sem lagöi grundvöllinn að veldi hans. I
kjölfarið fylgdu Song and Dance, Star-
light Express, Phantom ofthe Opera,
Sunset Bouleward og fleiri söngleikir.
Webberlétsér ekki nægja aö semja
söngleiki I félagi við ýmsa textahöfunda
og kosta sjálfur sviðsetningu þeirra bæði
fLondon og New York: hann tók
snemma til við að sanka aö sér leikhús-
um sem nóg var aftil sölu I leikhúshverfi
London. Fyrirtæki hans á um þessar
Tónskáldið í hópi listamanna;
frumsýningu Óperudraugsins
fyrir mörgum, mörgum árum.
mundir ellefu ieikhús afýmsum stærð-
um I West End, fjórum fleiri en Cameron
Mackintosh, helsti samkeppnisaðili hans
I framleiðslu söngleikja, en hann hófferil
sinn með Litlu hryllingsbúðinni og i kjöl-
farið fylgdu Vesalingarnir og fleiri söng-
leikir.
Webber er auðugur maður: eignir hans
eru metnar á 700 milljónir punda. Hann
hefurselt 125 milljónir hljómplatna og
stóru tekjupóstarnir I söngleikjum hans
eru Phantom sem hefuraflað honum 1,6
billjón punda en Cats aðeinsyfir billjón.
Fáir átta sig á hvers vegna hann vill
selja hlut sinn. hann hefur tapað óheyri-
legum upphæðum á framleiðslu söng-
leikja undanfarin árog eru menn farnir
að örvænta um getu hans til að ná aftur
stórum vinsældastykkjum á svið.