Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2005, Side 3
DV Fyrst og fremst
MÁNUDAGUR 9. MAl2005 3
Þeir sem leggja leið sína niður Laugaveginn um þessar
mundir eiga eftir að finna fyrir þeim sorglega og drungalega
blæ sem hvílir yflr miðbænum. Svartir sorgarborðar hafa veriö
strengdir yfir framhliðar ákveðinna húsa. Þetta eru þau hús
sem borgaryfirvöld ætía að rífa niður til þess að rýma fyrir ný-
byggingum sem koma eiga í stað gömlu risanna. Miklar deilur
hafa átt sér stað í samfélaginu þar sem borgaryfirvöld og
ákveðið verslunarfólk heldur því fram að engar stoppistöðvar
séu hjá strætisvagni framfaranna en aðrir borgarar geta ekki
hugsað sér að leyfa þessum djásnum að hverfa úr landslagi
miðbæjarinns.
Einn þeirra er Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður sem
stóð, ásamt öðrum, fyrir því að koma upp sorgarborðunum.
„Tilgangurinn var sá að koma í veg fyrir að þessi umræða logn-
aðist út af. Við vildum auðkenna hvaða hús þetta væru svo fólk
gerði sér almennilega grein fýrir þessu. Annars eru þetta bara
einhver húsanúmer sem koma ffarn í fréttunum sem segir nátt-
úrulega ekki jafnmikið. Mér finnst pérsónulega að við höfum
ekki efni á því að rífa þessi hús. Við erum búin að taka svo mik-
ið af gömlum húsum nú þegar. Ég get bara ekki skiiið rökin fýrir
því að rífa það sem fyrir er og byggja svo ný hús í sama anda.
Húsin sem eru á þessum lista eru eru mjög sérstök hús.“
Spurning dagsins
Óttastu fuglaflensuna?
Ekkiaðsinni
„Nei, hún er svo langt í burtu og þetta
hefur ekki smitast á miili manna
ennþá þannig að ég óttast hana að
minnsta kosti ekki að sinni."
Þorvaldur Ágústsson, kennari.
„Já, afhverju ætti hún ekki að
koma hingað
eins og á aðra
staði með öll-
um þessum
fólks-
flutningum?
Við erum bara
ekkert undirbú-
in fyrirhana."
Guðrún Björgvinsdóttir,
húsmóðir og vinnur í að-
hlynningu.
„Nei, ég óttast hana bara ekki
neitt, hún er
svo langt í
burtu.
Þeir fínna ör-
ugglega leið til
þéss að lækna
fólkafþessu
þegar þar að kemur."
Erlingur Leifsson,
verkfræðingur.
„Nei, ég fæ
aldrei flensur
sjálfurog er
ónæmúr fyrir
þessum pestum
sem ganga á
milli manna."
Franz Gíslason, þýðandi.
„Nei, það geri
ég ekki. Ég sé
bara enga
ástæðu til þess
núna, akkúrat
á þessu augnabliki."
Sigrún H. Jónsdóttir,
sölumaður.
Fuglaflensan hefur öðru hvoru verið til umfjöllunar í fjölmiðlum
enda telja menn að hún geti orðið að faraldri á borð við svarta
dauða fari hún að berast á milli manna.Viðmælendur DV virðast
þó ekki óttast að hún muni valda miklum skaða.
Á kafi í Stundinni okkar
Gamla myndin er að
þessu sinni frá 1986. Það
eru stöllurnar Agnes Jo-
hansen og Helga Möller,
sem nú vinnur sem flug-
freyja, sem prýða mynd-
ina, skælbrosandi og kátar.
„Ég man eftír þessu,
þetta var líklega þegar
Helga var að taka við
Stundinni okkar, en veturinn áður
hafði Jóhanna Thorstensen séð um
þáttinn með mér. Við Helga vorum
síðan með Stundina okkar seinni
veturinn minn," segir
Agnes og segir það hafa
verið skemmtilegt að sjá
um þennan ódauðlega
barnaþátt. „Þetta var
virkilega skemmtilegur
tími og ég sökkti mér á kaf í
þetta," segirhún.
í dag er Agnes að vinna
hjá kvikmyndagerðinni
Sögn sem Baltasar Kormákur á. „Það
gengur bara mjög vel og við erum á
fullu í bíómyndagerð, alltaf nóg að
gera.“
Drusla og drussi Allir kannast
við orðið drusla en það hefur
ýmsar merkingar, s.s. tuska, lé-
leg flík, skrudda,
sóðafengin kona,
dugleysingi. Til
er karlkynsorð sem hefur
sömu merkingu og kvenkyns- -
orðiö drusla, en það er drussi. Wú
Málið
Það hrísiaðist frelsistilfinning um mann
því nú er hægt að komast um allt án
þess að snikja far eða hringja á
leigubíl." Siv Friðleifsdóttir er farin
að geta ekið eftir hnéaðgerð.
Það er staðreynd..-
I ...að febrúar ereini mánuð-
rihn sem fullt tungl hefur
ekki átt sér stað sfðan skrán-
ingar hófust ffebrúar 1865.
ÞEIR ERII FEÐGAR
Pönkarinn & raftónlistarstrákurinn
Utangarðsmaðurinn Mike Pollock og Marlon Lee Úlfur Pollock
raftóniistarmaður eru feðgar. Mike Pollock, eða Michael Dean
Óðinn Pollock eins oghann heitir fullu nafni, gerði garðinn fræg-
an i Utangarðsmönnum á áttunda og nlunda áratug siöustu
aldar. Hann hefur samið tónlist megniö afævi sinni og farið með
listsköpun sína vitt og breitt um jarðkringluna. Tónlist Mikes er
mjög fjölbreytiieg. Þar er. t.d. að finna kántrí, pönk og rokk.
Itilfeili Marlons féll eplið ekki langt frá eikinni. Marlon hefur verið
að gera nýja hluti í tónlistmeð frænku sinniTönyu. Þau standa
fyrir raf-fusion dúettnum Anonymus og hafa farið i víking austur
um hafog vestur.
ARIST
NVONGOOSE
—Blvöru fjallahjól
Sumartilboð
Frábært tilbod á Mongoose barna og
krakkahjólum. Mikid úrvai af hjálmum
verd frá 2.990
Argerð 2005
Rockadile 20"
llnmtoiBaiibnim
Argerð 2005
Rockadile AL
sb| ’nWSwaaaser'
ArgsraaXB
MOTO Micro 12"
Árgerð 2005
MOTO Micro
Verð
14.900
verð nú
11.900
www.gapJs
fardu inn á gap.is og skodadu
tilbodin...