Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 9. MAÍ2005
Fréttir DV
Rólegt á
Akureyri
Helgin fór rólega fram á
Akureyri. Ekkert var um
slagsmál og engin alvarleg
umferðaróhöpp áttu sér
stað. Þrír voru hins vegar
teknir við ölvunarakstur
frá föstudagskvöldi til
laugardags og er það að
sögn varðstjóra með því
mesta sem gerist. Enginn
af þeim var sviptur öku-
réttindum á staðnum en
mál þeirra eru nú í rann-
sókn.
,W.-r ' ' IvS?
- - l **
Súðavíkur-
hreppur
sterkurfjár-
hagslega
Rekstur Súðavíkur-
hrepps skilaði 87,7 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári
sem er tæpum áttatíu millj-
ónum yfir áætlun. Þar mun-
ar mestu um sölu hluta-
bréfa í Hraðfrystihúsinu -
Gunnvöru ehf. en hreppur-
inn hagnaðist um rúmar 86
milljónir króna á þeirri sölu.
Tap var af rekstri hreppsins
fyrir fjármagnsliði og sölu-
hagnað af hlutabréfum en
hreppurinn er engu að síður
í góðum málum. Handbært
eigið fé var 120 miUjónir um
áramótin en sveitarífélagið á
að auki eignarhluti í fyrir-
tækjum sem metnir eru á
200 milljónir.
Samkeppnis-
ráð að líða
undir lok
Meirihluti Alþingis hefur
lagt fram breytingartillögu
við lagafrumvarp Valgerðar
Sverrisdóttur iðnaðarráð-
herra um samkeppnismál.
Þar kemur fram
að Samkeppnis-
eftirlitið þurfi
ekki að bera
ákvörðun um
upphaf rann-
sókna á málum
sem upp koma.
Meirihlutinn
hefur gagnrýnt seinagang
Georgs Ólafssonar, forstjóra
Samkeppnisráðs, og hans
manna í málum eins og
rannsókn ráðsins á samráði
tryggingafélaganna sem
hefur staðið yfir í átta ár og
telja sig með þessu geta flýtt
afgreiðslu mála.
Lára Ósk Viðarsdóttir var aö leik við Strandgötuna á Akureyri þegar henni datt í
hug að fara út á lítinn fleka sem var undir brú við Pollinn. Fyrst var þetta saklaus
leikur 10 ára stúlku en þegar hana rak lengra út á haf breyttist leikurinn í
martröð. Hún þurfti að synda í land og það er guðsmildi að ekki fór verr.
„Henni var afar brugðið og skalf öll og titraði af kulda," segir
Guðrún Ásmundsdóttir, móðir Láru Óskar Viðarsdóttur sem rak
út á sjó á fleka á föstudagskvöldið. Flekann fann Lára við Strand-
götu á Akureyri og ætlaði að leika sér í kringum ströndina en rak
svo langt út á Pollinn að hún þurfti að stinga sér til sunds í ís-
kaldan sjóinn. Hún komst í land við illan leik og það er mildi að
ekki fór verr.
„Ég fór með hana upp á sjúkra-
hús þegar hún kom heim, blauta og
hrakta og hún átti erfitt með andar-
drátt," segir Guðrún en Láru sakaði
ekki eftir hremmingarnar fyrir utan
hálfgert taugaáfall sem hún fékk
eftir volkið. Hún hafði verið að leika
sér við fjöruborðiö með vinkonu
sinni þegar atburðurinn átti sér stað.
Að sögn Guðrúnar var þetta frekar
ólíkt Láru þar sem hingað til hafi
hún verið frekar hrædd við að leika
sér við sjóinn.
Vel synd
Lára var komin nokkuð langt út
á Pollinn þegar hún áttaði sig á því
að flekinn var stjórnlaus og hún gat
ekki stýrt honum aftur að landi.
Hún sá því þann kost vænstan að
stökkva í jökulkaldan sjóinn og
synda í land. Vegfarendur sáu hana
og tóku á móti henni i fjörunni og
færðu hana heim til sín. „Ég var
skelfingu lostin og er eiginlega
ennþá í sjokki. Það er þvílík lukka
að Lára skuli vera vel synd, annars
veit maður ekki hvernig þetta hefði
endað," segir Guðrún sem greini-
lega var brugðið eftir þessa lífs-
reynslu.
Hrædd við sjóinn
Guðrún hefur sjálf lent í lífsháska
en þegar hún var tveggja ára lenti
hún milh skips og bryggju. „Ég man
Það er þvílík lukka að
Lára skuli vera vel
synd, annars veit
maður ekki hvernig
þetta hefði endað.
óljóst eftir því þegar þetta gerðist en
ég var hætt komin. Ég minnist þess
að systir mín var að draga mig upp á
hárinu," segir Guðrún og bætir við
að hún hafi aUar götíir síðan verið
hrædd við sjóinn á vissan hátt; verið
sjóveik og hræðst það að einhver fari
í sjóinn.
Séð yfir Poliinn Lára
Ósk Viðarsdóttir komst i
hann krappann þegar
hana rakútá Pollinn
sfðastliðið föstudags-
kvöld og þurfti að
synda / land.
i*' *
ÍSBÍjft
iiiffi? iiu ææ l’áííí:;
ÍJU&'kJÍL-^U-i:
w«. oS nl
~i m u jifii
Dagur B. er flottur gaur
Svarthöfði hefur mikið dálæti á
mönnum sem eru duglegir við að
nota og jafnvel misnota aðstöðu
sína til að hygla sínum. Það hefur
allt verið krökkt af slíkum mönnum í
þjóðfélaginu á undanförnum ára-
tugum, mönnum sem Svarthöfði
hefur litið upp til með lotningu og
nú hefur tiltölulega ungur maður
skotist á ógnarhraða upp í þennan
fríða flokk manna. Það er borgarfull-
trúinn og Fylkismaðurinn Dagur B.
Eggertsson. Hann er einn af aðal-
mönnunum í því að Fylkismenn í
Grafarvoginum geti sölsað undir sig
Grafarholtið, hverfi sem er víst
Svarthofði
eyrnamerkt Frömurum til að þeir
deyi ekki út í Safamýrinni. Dagur
spilaði fótbolta með Fylki á sínum
yngri árum og þótti liðtækur nokk
en þó ekki jafn liðtækur og í eigin-
hagsmunapólitíkinni. Á meðan
Dagur kokkar upp stórkostleg fram-
tíðarplön fyrir Fylki þá sitja Framar-
ar í Safamýrinni með brunnið
íþróttahús og eintóma ellih'feyris-
þega. Dagur B. hyggst gera Fylki að
stórveldi og er sama þótt Framarar
Hvernig hefur þú það
„Ég hefþað bara glimrandi fínt/segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri LA. „Núna
erum við að leggja lokahönd á að skipuleggja næsta vetur og klára verkefni þessa
vetrar. Það hefur gengið mjög vel sem sést á aösókninni og þaö er búið að vera rosalega
gaman. Við ætlum að fyigja því eftir næsta vetur og stefnum á að hafa hann ekki síðri."
deyi út, hægt og örugglega.
Þetta er alvöru stjómmála-
maður, harður, miskunnar-
laus og lætur stjórnast af eig-
in hagsmunum. Þetta er
stjórnmálamaður sem Svart-
höfði vill fá þing strax. Guð
má vita hvað Fylkismenn
uppskera þegar Dagur B. er
kominn á þing en miðað við að
hann getur reddað þeim heilu
borgarhverfi á kostnað annars fé-
lags sem borgarfulltrúi þá er rétt
hægt að ímynda sér hvað hann
getur gert sem fulltrúi allr-
ar þjóðarinnar.
Svarthöfði