Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 9. MAÍ2005
Fréttir DV
Bifreið á far-
aldsfæti
Mannlaus bíll ferðaðist
50 metra leið í Keflavík á
laugardaginn til þess eins
að hafna á gömlu timbur-
húsi. Nokkrar skemmdir
urðu á bifreiðinni og hús-
inu. Ekki er Ijóst hvað varð
til þess að bíllinn rann af
stað, en einhver halli er á
Vesturgötunni í Keflavík
þaðan sem hann lagði af
stað.
flf barnumá
spítala
Lögreglan í Reykja-
nesbæ segir ekki Ijóst
hvort einhverjir eftirmál-
ar verði af átökum dyra-
varðar og gests barsins
Paddys við Hafnargötu í
Keflavík aðfaranótt upp-
stigningardags. Gestur
staðarins var sendur á
sjúkrahús í Reykjavík eft-
ir átök við dyravörð sem
reyndi að vísa honum út.
Maðurinn er sagður hafa
fallið aftur fyrir sig á
gangstéttina á leiðinni
út.
Aðskilnaður
ríkis og kirkju
Friðrik Þór Guðmundsson,
oddviti sambands um aöskilnað
rlkis og kirkju.
„Aðskilnaður ríkis og kirkju er
eitthvað sem varðar grund-
vallarmannréttindi og sann-
girni í trúmálum. Annars hefur
þetta ekkert meö trúmál að
gera. Þá meina ég, það á ekki
að velja ein trúarbrögð og
segja að þau séu rétt og öll
önnurséu annars flokks. Það
er ekkert sem réttlætir það
lengur að mismuna fólki, trú-
uðum og trúlausum."
Hann segir / Hún segir
Rúmlega tvítugur maður með alvarlega geðveilu var fluttur á bráðamóttöku geð-
deildar „á siglingu inn í geðveikisástand“. Maðurinn var útskrifaður morguninn
eftir og upphófst um leið atburðarás sem stefndi vegfarendum í stórhættu. Hann
byrjaði á að henda konu út úr bíl skammt frá bráðamóttökunni.
Utsnöur ut geðdelld
eltir degpurt ug brjúluðist
Mos • Lönd
Keyrði 50 metra út af
Maður með geðveilu olli
stórhættu á stolnum bíl
við Hlégarð ÍMosfellsbæ.
Þar skemmdi hann einn
bll og rændi öðrúm.
Geðveikur maður, sem rændi tveimur bflum og ók á ofsahraða
frá Vesturbænum upp í Mosfellsdal í gærdag, hafði verið sendur
á geðdeild kvöldið áður vegna vaxandi sturlunarástands. Geð-
deild útskrifaði manninn um morguninn, og þá upphðfst
atburðarás sem stefndi fjölda manns í stórhættu.
„Ég er mjög hissa á því að hann
hafi verið útskrifaður," segir Svanur
Hauksson, umsjónarmaður á með-
ferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti.
Maðurinn leitaði til Svans á laugar-
dagskvöldið vegna vanlíðunar.
„Hann var að sigla inn í geðveikisá-
stand. Ég fékk lækni til mín og hann
ákvað að senda hann upp á geð-
deild. Maður veltir því fyrir sér af
hverju hann var strax útskrifaður, en
geðdeildin verður að svara fyrir
það,“ segir Svanur.
Rændi bíl á Ijósum
Brjálæðisför mannsins, sem er
rétt rúmlega tvítugur, hófst á göngu-
ljósum við Hringbraut, steinsnar frá
bráðamóttöku geðdeildar. „Hann
stöðvar á gangbrautarljósi á Hring-
brautinni. Þar neyðir hann ökumann
út úr jeppa með hómnum um ofbeldi
og tekur bflinn traustataki," segir
Árni Þór Sigmundsson, aðalvarð-
stjóri lögreglunnar í Reykjavík.
Réðst á konu
Frá Hringbraut keyrði maðurinn
í ofsafengnu ástandi upp Miklu-
brautina. Hann hélt áfram upp Ár-
túnsbrekkuna og fór Vesturlands-
veginn til Mosfellsbæjar. Bílferðinni
lauk með því að hann ók bifreiðinni
út af við Hlégarð og 50 metra upp að
nærliggjandi garði.
Samviskusamur vegfarandi, kona
um fimmtugt, stöðvaði bifreið sína í
þeim tilgangi að aðstoða manninn
eftir slysið. Ekki fór betur en svo að
maðurinn réðst að henni og henti
henni í götuna. Hann tók bfl hennar
og hélt áfram för sinni í átt að með-
ferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti í
Mosfellsdal.
Róaðist á meðferðarheimili
Svanur Hauksson, umsjónar-
maður á
meðferðarheimilinu Hlaðgerðar-
koti, var hissa á að hitta skjólstæðing
sinn skömmu eftir að hafa sent hann
á geðdeild. Hafði hann róast eftir
tryllingslega bílferð, hótanir og of-
beldi. „Hann var sallarólegur þegar
hann kom til okkar," segir Svanur.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
verður málið rannsakað ofan í kjöl-
inn. Árni Þór Sigmundsson aðal-
varðstjóri segir lán að ekki fór verr.
„Við krossleggjum bara finguma yfir
að enginn skyldi hafa beðið alvar-
legra tjón af þessu."
Erfið greining
Starfsmenn bráðamóttöku geð-
deildar vildu ekki gefa upp hvort
maðurinn hefði sjálfirr beðið um að
útskrifast eða verið útskrifaður að
frumkvæði starfsmanna. Margrét
Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur
sagði að trúnaður ríkti um það gagn-
vart sjúklingum.
Halldóra Ólafsdóttir, yfirlæknir
bráðamóttöku geðdeildar, segist
ekki geta haldið fólki nauðugu nema
brýn ástæða sé til og þá samkvæmt
mjög ákveðnum lagaramma. Sjúk-
lingar séu teknir í viðtal fyrir brott-
för. „Við reynum alltaf að meta þetta
og koma í veg fyrir að slys verði, en
sfimdum er það hreinlega ekki
hægt. Þetta er eins og með hjarta-
sjúkdóma, það er ekki alltaf hægt að
sjá fyrir hvort einstaklingur fái
hjartaáfall sex vikum síðar eða ekki.
Við erum ekki óskeikul," segir Hall-
dóra. jontrausti@dv.is
„Út frá lögum frá 1998 sem gera
þennan aðskilnað að mestu
leyti að veruleika varkirkjan
gerð ábyrg fyrir fjármunum sín-
um og, á kirkjuþingi, ábyrg fyrir
lögum og reglum þannig að að-
skilnaðurinn er aö mestu leyti
genginn I gegn. Þegar það dynja
stór áföll hjá þjóðinni hefur kirkj-
an endurgjaldslaustopnað
faðm sinn I stuðningi og ég held
að þjóðin myndi ekki vilja missa
afþvl. 94%þjóðarinnarerkrist-
inn og tæplega 90% eru I þjóð-
kirkjunni. Að þvl leyti er ekki þörf
á frekari aöskilnaði'
Bára Friðriksdóttir,
héraðsprestur I Hallgrímskirkju
Hafnarfjarðarbær kemur Hvítasunnukirkju á uppboð
Sértrúarsöfnuður á
Hús hvítasunnusafhaðarins,
Kletturinn í Hafnarfirði, hefur verið
sett í nauðungarsölu og verður boðið
upp á þriðjudaginn klukkan tvö.
Gerðarbeiðandi er Hafnarfjarðarbær.
Enginn í söfhuðinum virðist hafa
hugmynd um hvers vegna en nokkuð
er síðan Kletturinn sameinaðist Fíla-
delfi'usöfnuðinum í Reykjavfk.
Síðustu misseri hefur Kletturinn
því leigt bækistöðvar sínar að Bæjar-
hrauni 2 til einkaaðila.
„Ég veit ekkert um þetta mál,"
segir Jón Þór Eyjólfsson, ffam-
kvæmdastjóri Fíladelfiusafhaðarins
og fyrrum forstöðumaður Klettsins í
Hafnarfirði. Hann segir þetta leiðind-
amál sem verði að fást botn í.
Annar meðlimur safiiaðarins,
Stefán Ágústsson, segir Klettinn hafa
leigt fyrrum bækistöðvamar út þegar
safnaðarstarfið breyttist. Leigan eigi
aðeins að mæta afborgunum af hús-
næðinu og þessi auglýsing, sem birt-
ist í Morgunblaðinu á laugardaginn,
hafi komið öllum á óvart.
Hvítasunnumenn koma því af
fjöllum en munu væntanlega mæta á
uppboðið á þriðjudaginn. Enda
þeirra eigin húsnæði sem bitist verð-
urum.
Höfuðstöðvar
Fíladelfíusafn-
aðarins Klettur-
inn 1 Hafnarfirði
sameinaðist
Fíladelfíu og
leigðiúteigin
bækistöðvar.