Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2005, Blaðsíða 23
DV Sport
MÁNUDAGUR 9. MAl2005 23
Einkunn:
7
WAYNE BRIDGE
Bridge var undir pressu í sinni stööu löngu áöur en hann braut á sér ökklann í
febrúar. Hans veikleiki eru skallaboltarnir og er það eitthvað sem Mourinho hef-
ur sagt að hann telji mjög stóran veikleika. Nánast öruggt að hann verður kom-
inn með keppinaut þegar hann snýr aftur úr meiðslunum, enda ekkert launung-
armál að Chelsea ætlar að kaupa vinstri bakvörð í sumar.
Einkunn
ALEXEISMERTIN
Mourinho fékk hann aftur eftir að hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Portsmouth. Smertin leit
mjög vel út í fyrstu leikjum tímabilsins en er sífellt verið að falla aftar og aftar. Upp á síðkastið
hefur hann varla komist í 18 manna hóp.
Ógnandi nærvera hans vinstri vængnum hefur verið
lykillinn ísóknarleik Chelsea á tímabiUnu. Á ekki eins
auðvelt og Robben með að skipta yfir á hægri kantinn
og virðist Dufflíða fyrir meiðsli Robbens að því leyti
að andstæðingarnir geta lagt meiri áherslu á að
stöðva hann einan. Hefur ekki verið upp á sitt besta
eftir áramót og aðeins náð að skora eitt mark.
Einkunn: f
Einkunn: 10
Einkunn: 9
CLAUDE MAKELELE
Lífæðin i Chelsea-liðinu í vetur og maðurinn sem allt fer
í gegnum. Enginn skilar betur stöðu djúpa miðjumanns-
ins en Makelele. Hann er ótrúlega agaður, vinnur ófáa
bolta og leggur þannig grunninn að hinum stórhættu-
legu skyndisóknum Chelsea, sem hafa verið eitt af
helstu aðalsmerkjum liðsins í vetur.
PETERCECH
Óþekkt stærð þegar hann kom frá
Rennes síðasta sumar fyrir rúmar
800 milljónir króna en hefur
sannað sig á tímabilinu sem
besti markvörður heims um
þessar mundir. Cech hefur
haldið marki sínu hreinu í 23
leikjum á leiktíðinni og færir
hann öryggi yfir varnarlínu
liðsins sem hefur fyrir löngu
sannað sig sem ein sú besta
i heimi.
EIÐURSMÁRIGUÐJOHNSEN
Hefur að öllum líkindum búið sig undir það versta með tilkomu
Drogbas og Kezmans en sem fyrr brást Eiður við samkeppninni
á þann máta að þróa og bæta leik sinn enn frekar. Var færður
mjög óvænt á miðjuna í vor með frábærum árangri og sannaði
þar með enn frekar fjölhæfni sína sem alhliða
sóknarmaður. Er kennslubókardæmi
um það hvernig aðrir erlendir leik-
menn ættu að hugsa um
enskan fótbolta.
m
Einkunn: Q
CARLO CUDICINI
Var frábær á síðustu leiktíð en
hvarfsporlaust með tilkomu
Peters Cech. Er afflestum talinn
einn afbestu markmönnum
deildarinnar en verður einfald-
lega að sætta sig við bekkjar-
setu þegar Cech er keppinautur
inn. Hefur ekki spilað einn ein-
asta leik í deildinni.