Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2005, Page 26
26 MÁNUDAGUR 9. MAÍ2005
Sport DV
Börsungar fóru létt meö meistara Valencia
dux &ixilqcll iuiu ictu meu íiieiöLdia v aiciit,ici
Barcelona í góðum málunrfK
Barcelona fór langleiðina með að
tryggja sér spænska meistaratitilinn í
knattspymu í gær þegar liðið lagði
Valencia að velli á útivelli. Þegar þtjár
umferðir eru eftir, hefur Barcelona 6
stiga forystu á Real Madrid og það er
erfitt að sjá Barcelona tapa þeirri for-
ystu niður. Til að byrja með var leik-
urinn í járnum en eftir að Ronaldin-
ho og Samuel Eto höfðu skorað tvö
mörk með mínútu millibili var ljóst í
hvað stefndi. Markið sem Ronaldin-
ho skoraði verður lengi í minnum
haft, hann fékk boltann u.þ.b. 25 m
frá marki, tók við boltanum og lét
vaða í skrefinu og boltinn hafnaði
efst í markhorninu, ótrúlegt mark hjá
þessum magnaða knattspyrnu-
manni. Litlu síðar lagði hann svo
mark upp fyrir markahæsta mann
spænsku deildarinnar, Samuel Eto
og hann gerði ekkert rangt heldur af-
greiddi boltann af öryggi í netið og
staðan orðin ansi vænleg fyrir
Barcelona.
Gestimir vom frekar lfklegri til að
bæta við mörkum en Valencia að
minnka muninn en þeim tókst ekki
að auka forskot sitt en 2-0 útisigur á
Valencia er eitthvað sem þeir
geta vel sætt sig við enda
liðin á toppnum, 6 stig-
um á undan Real Ma-
drid þegar þrjár um-
ferðir em eftir. Það
getur því fátt komið í veg fyrir að
Barcelona tryggi sér
spænska meistaratitil-
inn í fyrsta skipti
síðan 1999.
Það getur fátt
komið í veg fyrir
að Barcelona
tryggi sér spænska
meistaratitiiinn í
fyrsta skipti síðan
1999.
Mark David Trezeguet tryggði Juventus sigur í toppslagnum
gegn Milan í gær. Markið kom eftir stórkostlega fyrirgjöf
frá Alessandro Del Piero og var Frakkinn ekki í vand-
ræðum með að skalla knöttinn í netið. Úrslitin þýða
það að Juventus hefur teldð þriggja stiga forystu á
toppnum á Ítalíu þegar einungis þrjár umferðir
eru eftir af A-deildinni.
Úrslitin voru að mörgu leyti í
takt við leikinn en Juventus voru vel
skipulagðir og vörðust vel. Milan-
liðið virkaði slakt en liðið hefur
heldur betur slakað á að undan-
förnu og mátti teljast heppið að
leggja PSV að velli í undanúrslitum
meistaradeildarinnar. Carlo
Ancelotti var með fullmannað lið
fyrir leikinn en Fabio Capello var án
Jonathan Zebina og Alessio
Tacchinardi auk þess sem Zlatan
Ibrahimovic var í banni. Það þýddi
að David Trezuguet byrjaði í
fremstu víglínu ásamt Del Piero.
Milan byrjaði leikinn mun betur
og tvívegis gerðist Andriy
Shevchenko aðgangsharður upp
við mark Juventus en í bæði skiptin
brást honum bogalistin.
Juventus tókst að kom-
ast smátt og smátt inn
í leikinn og þeir
uppskám markið
mikilvæga eftir
frábæra sókn og
endahnútinn á
hana, batt Dav-
id Trezuguet
með fallegum
skalla. Milan missti
meðvitund eftir
markið og liðið virtist
eiga í miklum vandræðum
með að koma sér aftur í
gang og Juventus gekk á
lagið og náði betri tökum á
leiknum.
Ancelotti gerði róttækar
breytingar í hálfleik, tók Andr-
ea Pirlo út og setti Serginho inn
ásamt því að fara í 3 manna
varnarlínu. Þessar breytingar voru
til hins betra fyrir Milan sem komu
frískir til leiks. Filippo Inzaghi leystl
svo Jon Dahl Tomasson af hólmi og
þegar hann var nýstiginn inn á völl-
inn var hann nálægt því að jafna
metin en honum brást bogalistin í
tvígang. Eftir þetta skipust liðin á
að fá tækifæri. Shevchenko skaut
boltanum yfir á lofti eftir flotta fýr-
irgjöf frá Serginho. Skömmu síðar
var Juventus nánast búið að gera út
um leikinn þegar skalli Del Piero
hafnaði í þverslánni og Trezuguet
náði ekki að vinna nægilega vel úr
seinni boltanum.
Þrátt fyrir innkomu Rui Costa og
harða atíögu
að marki
Juventus þá
tókst Milan ekki
markinu sem
þeir þurftu til að
jafna leikinn og
halda toppsæt-
inu á Ítalíu. Þeir
vildu svo fá vítar-
spyrnu þegar Fabib
Cannavaro handlék
knöttinn innan teigs þegar
Cafu skaut að marki
Juventus. Dómarinn
taldi Cannavaro ekki
hafa gerst brotíegan
og því ekkert dæmt.
Það er því ljóst eft-
ir þennan leik að
Juventus hefur tekið
þriggja stiga
forystu
Milan missti meðvit-
und eftir markið og
liðið virtist eiga í
miklum vandræðum
með að koma sér aft-
ur í gang.
sem kemur sér vel á loka
sprettinum. Að margra
mati hefur Milan-liðið
verið sterkara í vetur en
það er ekki spurt að því
á lokasprettinum og
Juventus virðist koma
upp á hárréttum tíma
á meðan Milan dalar
og það á versta hugs-
anlega tíma þegar
lokaspretturinn er
framundan sem og
úrslitaleikur meist-
aradeildar Evr-
ópu.
Sviþjoð vann
Kanada
Tékldand og Svíþjóð eru einu
taplausu liðin á heimsmeistara-
mótinu í íshokkíi sem fram fer í
Austurríki. Svíar unnu Kanada-
rnenn í miklum baráttuleik í fyrra-
dag, 5-4, en margir spá Kanada
sigri á mótinu. Bengt-Ake Gustafs-
son. þjálfari Svía, var hæstánægð-
ur með sigurinn gegn Kanada-
mönnum. „Við erum mjög sáttir
við þennan sigur en hann er engu
að síður bara eitt skref f áttina að
því sem við viljmn ná," sagði
Gustafsson. Þess má
geta að lið Banda-
tr. ' l rfkjamanna
^ hefur
X, 0 jfc átt
erfitt
/j UPP-
f/ dráttar á mótinu og
á aðeins unnið einn
þremur
þessa.
Sögulegt 100
metra hlaup
Þriðji besti tími sögmmar í 100
metra hlaupi leit dagsins Ijós á
frjálsfþróttamóti í
Kingston í Jamaíka
þegar Jamaíkubúinn
Asafa Powell kom .
í mark á 9,84 sek- f0'
úndum. Tíminn j «. jBk
var jafnframt sá
besti sem að ^
Jamaíkumaðm
áð.
Fram til þessa
hafa tveir menn
náð betri tíma;
Tom
Montgomery,
heimsmethafi jn f |
frá Bandaríkj-
unum og landi
hans, Maurice í tg
Greene. Dwight
Thomas var í öðru
sætí á 10,05 og Michael Frater
náði þriðja sæti á 10.09 sek-
úndum.
Snæfel! fyrir
blóðtöku
Sigmðm Þorvaldsson og Hlyn-
m Bæringsson eru hugsanlega á
förrnn frá Snæfelli sem endaði í
öðm sæti á íslandsmótinu í
körfuknattíeik á nýafstöðnu tíma-
bili. Hugsanlegm áfangastaðm
þeirra félaga er Holland en lið þar
í landi, Woonaris, hefur sett sig í
samband við þá. Sigmðm var kos-
inn bestí leikmaður íslandsmóts-
ins og Hlynm hefm verið eirrn
allra besti leikmaðurinn hér á
landi undanfarin ár og það yrði því
gríðarlegt áfall fýnir Snæfell að
missa þessa tvo máttarstólpa.
„Þetta kemur okkur mjög
skeimntilega fyrir
sjónir
enda enim
við miklir
áhugamenn |
mn vindmyllu- ’
smíði,'' sagði Hlynur í
samtali við DV.
Juventus stígur fram á besta tíma og sigurinn gegn Milan setur þá í vænlega stöðu
fyrir lokasprettinn í hinni ítölsku A-deild.
AC Milan latast flunið