Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2005, Síða 33
DV Menning
MÁNUDAGUR 9. MAl2005 33
í
Er ekki geggjun að ætla sér að draga kjarna í sögu þjóðar saman í eitt stórt verk
fyrir sjónvarp? Þýski leikstjórinn Edgar Reitz réðist í það verkefni fyrir þremur
áratugum og sér nú fyrir endann á sínum hluta í sögu sem gæti haldið áfram á
skjám og hvítum tjöldum. Þriðji hlutinn af Heimat hefur verið frumsýndur og tek-
ur til tímabilsins eftir fall múrsins til loka síðustu aldar í sögu Evrópu.
j'
Umfjöllun um Heimat.er fyrir-
ferðarmikil í bresku pressunni þessa
dagana: Heimat 3 fær takmarka
dreifingu í kvikmyndahús í Bret-
landi, sex kvikmyndir - samtafs 680
mínútur í útgáfu ieikstjórans. Eldri
bálkamir tveir hafa verið afar vin-
sælir á DVD um alia Evrópu, efdr að
ferli fyrri myndanna sem voru alls
24 lauk í sjónvarpssýningum. Reitz
getur sýnt myndir sínar erlendis í
sinni eigin útgáfu sökum þess að
hann á erlenda réttinn.
Höfundurinn
Reitz var einn þeirra sem skópu
þýsku nýbyigjuna. Hann tók nýlega
við heiðursverðiaunum á kvik-
myndahátíðinni í Mannheim ásamt
Wim Wenders fýrir ævistarf sitt sem
liggur að stærstum hluta í Heimat-
verkefrúnu. Hann þótti mikill von-
arpeningur í upphafi ferils síns með
myndinni Mahlzeiten sem fékk
verðlaun sem besta mynd í Feneyj-
um 1967. En feilspor og slakar við-
tökur leiddu hann burt frá kvik-
myndagerð. Eftir myndina Klæð-
skerinn í Ulm 1978 var hann sokk-
inn í skuldir með mynd á markaði
sem enginn vildi sjá og allir töluðu
illa um. Hann settist að á eyjunni
Sylt undan norðurströnd Þýska-
lands og ætlaði ekki að koma nálægt
kvikmyndagerð meir.
Saga í sápum
Þá sá hann Holocaust, ameríska
miniseríu um afdrif og örlög gyð-
inga í Þýskalandi sem var reyndar
sýnd hér á landi í árdaga Stöðvar 2
og var lengi fáanleg á myndbanda-
leigum. Reitz ofbauð hvemig þýska
þjóðin var sýnd í þessum þáttum og
fór að huga að hvemig mætti fjalla
um þá örlagamiklu sögu sem nú er
minnst víða um Evrópu, stríðsins,
forsögu og afleiðingum.
Reitz er fæddur í Morbach í Rín-
arhéraði 1932. Hann fór ungur að
heiman. Hann dregur enga dul á að
margt í sögu hans af þorpinu
Schabbach er sótt til bemsku hans.
Verkið vann hann fyrst úr minning-
um sfnum og dró saman söguþráð
upp á 250 síður. Hann kallaði til rit-
höfundinn Peter Steinbach og sam-
an unnu þeir handrit upp á 2000
síður.
Að koma sér burt
Sagan hefst þegar radíoamatör-
inn og bóndasonur, Páll, sem barð-
ist í skotgröfum fyrri heimstyrjaldar-
innar klæðir sig í betri fötin og segist
Edgar Reitz f Berlin 2002 - „Það ernauð-
synlegt fyrir mig að halda mig frá miðju at-
buröanna, halda mig í jaðri hinna söguiegu
tíðinda. Ijarðinum er best að finna góðar
sögur. I miðjunni er frægt fólk og stórir at-
burðir og þá ráða söguiegir fordómar svo
miklu um framgang sögunnar. Á stöðum
sem ekkiþykja merkilegir er að finna veröld-
ina i spegli. Allt sem skiptir máli er þar til
staðar en maður er laus við klisjurnar. “
íJ
ætla í næsta þorp til að fá sér bjór.
Hann snýr ekki aftur heim - fr á Am-
erflcu - fyrr en tveimur áratugum
síðar. María, kona hans, situr eftir
með tvö böm. f fyrstu mynd sög-
unnar er okkur ekkert sagt um
ástæður þess að Páll fer burtu. Er
ástæðan nakta gyðingastúlkan sem
finnst látin í skóginum skammt frá
þorpinu?
En fólkið í þorpinu verður drif-
krafturinn í sögunni. Mamma Páls
fer í heimsókn til borgarinnar að
heimsækja bróður sinn. Einn bróð-
ursonur hennar er handtekinn í
fyrstu hreinsunum nasista og hún
tekur dóttur hans, Lottu, með sér í
sveitina. Og þannig veltur áfram
sagan með breiðu persónugalleríi,
myndum sem hverfast úr lit í svart-
hvítt, eða svarthvítt og stakan lit
þegar rauður litur nasistafánanna
birtist skyndilega.
Rómantísk sýn
Reitz var mikilvægt að iosa um
frasagnarformið úr væmnum og
rómantíseruðum viðjum héraðs-
bókmennta. Samt var hann ásakað-
ur fyrir að hafa rómatíserað þorpslíf
fyrir stríð. Styrjöldin sjálf og efha-
hagsuppbyggingin eftir stríð er ekki
síður partur af sögunni sem hverfist
þá um þau sem eru böm í upphafi
sögunnar. Hann er sagður hafa
gengið í spor afturhaldsamra afla og
skapað verk sem er hlaðið gildum
sem mörg hver séu fjarri því
frelsandi heldur ffekar staðfestandi.
Á mótí kemur að frásögn myndanna
er býsna opin og mörgu verður
áhorfandinn að finna sínar eigin
skýringar á. Geðslag og vilji persóna
er tjáður á afar fínlegan hátt og
stundum bara alis ekki.
Evrópusaga
Hvað um erindi og árangur þá
hafa Heimat-myndirnar náð afar
sterkri fótfestu í Evrópu enda Iýsa
þær vel hinum smáa heimi sveit-
anna og hvernig styrjöldin lagði
hann í rúst. Hvernig allur þorri
almennings mátti þola skort og
síðan skömmtun og hvernig efna-
hagslífið byggðist smátt og smátt
upp. Þegar Heimat 3 hefst er Her-
mann Simon að snúa heim í þorp-
ið þar sem hann fæddist, leiður á
því frægðarlífi sem hann lifir.
Hann vill eignast heimili með ást-
konu sinni, en umhverfis þá til-
raun þeirra er heimurinn enn í
umbreytingu. Að austan er
straumur Þjóðverja sem vill byggja
sér nýtt framtíðarheimili og finna
þá velsæld sem er sögð rflcja vest-
anmegin.
Heima og heiman
Sagan hvarflar því stöðugt milli
þess sem er að heiman og þess
sem vill eiga heima. Að því leytinu
er hún ekki aðeins saga
Þýskalands á síðustu öld heldur
saga allrar álfunnar.
Reitz útilokar ekki að framhald
verði á þessari lengstu og dýrustu
sápu evrópskra sjónvarpsáhorf-
enda. Hans hlut að verkinu er lokið
enda lýkur Heimat 3 árþúsundarár-
ið. En eins og hann segir: ,AUar sög-
urnar í Heimat eiga sér þungamiðju
sem em hús. Þessi gömlu hús búa
yfir stærri sögu en fólkið sem þau
byggir. Þegar fólk deyr lifa staðir
áfram. Fyrir mig sem sögumann er
það nýtt upphaf. Það er alltaf mögu-
leiki á nýju upphafi."
Heimat 3 er í kvikmyndasýning-
um víða íEvrópu í sumar. Heimat 1
er fáanlegt á DVD og Heimat 2 kem-
ur útmeð enskum textum á Tartan í
lok maí. Á fjölvarpi og breiðbandi
má sjá Heimat í endursýningu um
þessar mundir á sunnudagskvöld-
um á DR2. Áhugasömum er bent á
vef aðdáenda þessa mikla verkefnis:
www.123Heimat.net
Fjórarsögubækur
úrsmiðju
Astridar Lindgren
Þau hjá Máliog menn-
ingu hafa drifið í endurút-
gáfu fjögurra afvinsælustu
bókum Astridar Undgren.
Elsku Míó minn, Kalli á þak-
inu, Bróðirminn Ljóns-
hjarta og Una á Kattaratt-
ey eru komnar útáný, en
allarhafa verið ófáanlegar
um nokkurt skeið.
Elsku Mló minn fjallar
um níu ára gamlan dreng,
Búa Vilhjálm Ólafsson. Búi
finnur pilsnerflösku í garð-
inum hjá sér sem reynist
innihalda anda. Andinn
segistkominn frá Landinu t
fjarska að sækja hann og
þannig hefstsagan um
Mfó. Elsku Mió minner ein
afperlunum úrsagnasafni
Astridar Lindgren. Heimir
Pálsson þýddi. Verð:2490
kr.
Kalli á þakinu er mikið
umtalaður meðal ungra
lesenda og áhorfenda um
þessarmundirvegna svið-
setningar á samnefndu verki f Borgarleik-
húsinu. Kalli er frlöur og vitur og hæfílega
feitur maður á besta aldri. Það segir hann
sjálfur þegar hann flýgur inn um gluggann
hans Bróa í fyrsta sinn og upp frá þeirri
stundu verða þeir perluvinir. Kalli er sannar-
lega óvenjulegur vinur. Kalli á þakinu er
eitt afsígildum meistaraverkum Astridar
Lindgren. Bókin hefur notið mikilla vin-
sælda um hálfrar aldar skeið, meðal annars
verið kvikmynduö ogsettá sviö. Hér kemur
húnútí nýrri þýðingu Silju Aðalsteinsdótt-
ur.Verð:2490 kr.
Lína langsokkur á Kattarattaey er byggð
á texta Astridar Lindgren f bókinni Lína
Langsokkur I Suðurhöfum.
Langsokk skipstjóra langar að sýna Línu
dóttursinni Kattarattaey - sólrlku suður-
hafseyjuna þar sem hann ríkirsem kon-
ungur.Ásvölu vorkvöldi lætur Æðikolla úr
höfn ÍSvíþjóð og stefnir til Suðurhafa. Sig-
rún Árnadóttir þýddi. Verð: 1990 kr.
Bróðir minn Ljónshjarta erað margra
mati ein fallegasta saga Astridar Lindgren.
Jónatan segir litla bróður sínum, Snúði sem
er dauðvona, frá Nangijala, landinu sem
maður fer til þegar maður deyr. Bræðurnir
hittast í Nangijala ogþá hefst stórkostlegt
ævintýri um barátta góðs'og ills. Þorleifur
Hauksson þýddi og er verð nú 2490 kr.
Auglýsing um framlagningu
skattskrár 2004 og virðisaukaskatts
skrár fyrir rekstrarárið 2003
í samræmi við 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt er
hér með auglýst að álagningu skatta og kærumeðferð er lokið á alla aðila sem
skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laganna.
Tekin hefur veríð saman skattskrá þar sem fram koma barnabætur,
vaxtabætur, tekjuskattur, eignarskattur og önnur þau gjöld sem skattstjóri lagði á
hvern gjaldanda í umdæmi sínu álagningarárið 2004, vegna tekna ársins 2003 og
eigna í lok þess árs.
Einnig hefur, samkvæmt 46. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt verið tekin
saman virðisaukaskattsskrá fyrir rekstrarárið 2003. Tilgreindur er ákvarðaður
virðisaukaskattur eða endurgreiddur virðisaukaskattur virðisaukaskattsskyldra aðila.
Skattskrár ng virðisaukaskattsskrár verða lagðar fram í öllum skatt-
umdæmum mánudaginn 9. maí 2005 og liggja frammi hjá skattstjórum í hverju um-
dæmi og hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í
hverju skattumdæmi dagana 9. maí til 20. maí 2005 að báðum dögum meðtöldum.
9. MAf 2005
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.