Ægir - 01.06.2002, Side 12
„Við horfum til markaðssetningar
á tækjabúnaði okkar í Færeyjum,
hér í Noregi en ekki síst teljum
við tækifæri til að ná til íslenskra
saltfiskframleiðenda. Þess vegna
munum við koma á Íslensku sjáv-
arútvegssýninguna í byrjun sept-
ember og kynna okkar lausnir fyr-
ir saltfiskvinnslur,“ segir Jan
Håberg, framkvæmdastjóri Nor-
dic Supply í Noregi, en Ægir leit
við hjá fyrirtækinu á ferð sinni um
Noreg fyrir skömmu. Nordic
Supply er staðsett í Skodje, í jaðri
Álasundssvæðisins og er raunar
langt inni í skógi!
„Mörgum þykir skondið að hér
langt inni í skóginum skuli stað-
sett fyrirtæki sem er að framleiða
vélar fyrir fiskiðnaðinn en sannast
sagna er ágætt að vera hér í næð-
inu við þróunarvinnuna,“ segir
Jan og undir það tekur Endre
Larsen, þróunarstjóri fyrirtækis-
ins.
Sá vélbúnaður sem þeir hjá
Nordic Supply leggja höfuðár-
herslu á er flatningsvél fyrir salt-
fiskvinnslu. Nú þegar er fjöldi
slíkra véla kominn í gagnið í Fær-
eyjum og fyrstu kaupendurnir
hafa reynt búnaðinn hér á landi en
þeir félagar vilja komast í nánari
samband við íslenska markaðinn.
„Kannski þykir einhverjum skrýt-
ið að við skulum horfa til þess að
selja vélar fyrir fiskiðnað á Íslandi
þar sem Íslendingar hafa sjálfir
verið mjög framarlega í þróun á
vélbúnaði fyrir fiskvinnslu. Nægir
þar að benda á búnaðinn frá Mar-
el. Hins vegar er það svo að á
þessu sviði eru ekki aðrir að bjóða
hliðstæðar lausnir í vélbúnaði fyrir
saltfiskvinnslur. Við erum líka að
leggja áherslu á kynningu á bún-
aðinum hér í Noregi en við finn-
um að Íslendingar eru opnari fyrir
nýjungum en Norðmenn og þora
frekar að reyna fyrir sér. Við mun-
um í fyrsta skipti koma á sýningu
á Íslandi nú í byrjun september og
hlökkum til þeirra daga og við-
kynningar við íslenska saltfisk-
framleiðendur,“ segja Jan Haberg
og Endre Larsen hjá Nordic Supp-
ly.
12
F R É T T I R
OPTIMAR AS
Giske
Valderøy
N-6050 Valderøy
OPTIMAR AS
Herøy
Mjølstadnese
N-6092 Eggesbønes
OPTIMAR AS
Skodje
Haahjem
N-6260 Skodje
OPTIMAR AS
Sula
Holsneset 23
N-6030 Langevåg
OPTIMAR CHILE LTDA
Chile
Castellon 22
Dpto. 901 Concepcion
OPTIMAR FODEMA SA
Spain
Aptdo. 1977
E-36200 Vigo
Óskum útgerð og áhöfn Þorsteins EA-810
til hamingju með breytingarnar.
Frystikerfi skipsins er frá Optimar
Nordic Supply í Noregi framleiðir vélar til
saltfiskvinnslu og horfir til íslenska markaðarins:
„Íslendingar áhugasamir
um tækniframfarir“
Jan Håberg, framkvæmdastjóri Nordic Supply við flatningsvélina.