Ægir - 01.06.2002, Page 38
38
S K I PA S T Ó L L I N N
að setja upp frystitæki og gera
endurbætur á öðrum kæli- og
frystibúnaði skipsins. Lloyds sá
um flokkunina. Skipt var um ein-
angrun og klæðningu á milli-
dekki og úretan kvarsefni frá
Sjöfn hf. var lagt á vinnsluþilfar-
ið. Ljósavélin er frá MD-vélum,
en hún er af gerðinni Mitshubishi
M.A.S. 1330, 3x400 volt – 1331
kva. Afl vélarinnar svarar til um
1600 hestafla.
Teiknistofa KGÞ hannaði
breytingarnar á Mánaberginu í
samvinnu við tæknimenn Slipp-
stöðvarinnar hf.
Mikið að gera í sumar
„Aðilar hafa fylgst með hvernig
þessu verki hefur miðað og í und-
irbúningi eru fleiri svona stærri
viðgerðir. Í sumar verðum við í
hefðbundnum viðhaldsverkefnum
og það verður augljóslega mikið
að gera í stöðinni í allt sumar og
nú þegar erum við byrjaðir að
bóka verkefni í haust,” segir
Baldvin.
Útgerðarmenn Þormóðs ramma-Sæbergs hf., Ólafur Marteinsson (til vinstri) og Gunnar Sigvaldason (til hægri). Á milli þeirra er
Baldvin Valdemarsson, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri.
Nýr vinnslubúnaður Mánabergsins kominn á sinn stað.