Ægir - 01.06.2002, Blaðsíða 29
29
H A R Ð F I S K V I N N S L A
með þær vörur sem við erum að
framleiða og það er besta auglýs-
ingin,” segir Heimir.
Hann segir að í raun sé eitt erf-
iðasta viðfangsefnið í harðfisk-
vinnslunni að afla hráefnis, en það
er keypt á fiskmörkuðum um allt
land. „Það þarf ekki nema eina
brælu til þess að setja allt úr
skorðum. Það getur því oft verið
stressandi hvort maður nái í hrá-
efni til þess að láta hjólin snúast.”
Frá því að hráefni er komið í
hús á Grenivík og þar til varan er
tilbúin á markað líður um það bil
hálfur mánuður. Darri ehf. fram-
leiðir nokkrar gerðir af harðfiski.
Hinn klassíski harðfiskur í flök-
um er alltaf vinsæll og sömuleiðis
bitafiskurinn. Auk þess þurrkar
fyrirtækið steinbítskinnar, sem er
nýjung á markaðnum og hreint
ljómandi góð.
Um þriðjungur framleiðslunn-
ar til Færeyja og Noregs
Heimir Ásgeirsson segir að Darri
framleiði um 12 tonn af harðfiski
á ári undir vörumerkinu Eyjabiti.
Rýrnunin á fiskinum er gríðarleg,
enda er það svo að í mánuði
hverjum er fyrirtækið að kaupa
12-15 tonn af ferskum fiski til
vinnslu. Af tólf tonna framleiðslu
á ári eru um 30% seld til Noregs
og Færeyja. Þetta er nokkuð at-
hyglisvert í ljósi þess að til dæmis
í Norður-Noregi er framleiddur
harðfiskur, en harðfiskurinn frá
Grenivík þykir einfaldlega miklu
betri. „Salan til Færeyja hófst
þannig að Færeyingur nokkur
sem hér var á ferð keypti fisk frá
okkur í Leirunesti á Akureyri og
hreifst mjög af. Í framhaldinu
hafði hann samband við okkur og
nú sér hann um sölu á harðfiskin-
um frá okkur í Færeyjum,” segir
Heimir Ásgeirsson.
Hér innanlands segir Heimir að
séu tveir sölutoppar í harðfiskin-
um. Annars vegar á þorranum og
hins vegar í júlí. „Salan rýkur upp
yfir sumarið sem kemur til af því
að ferðafólk kaupir fisk til þess að
hafa með sér í í sumarbústaðinn
eða útileguna,” sagði Heimir og
bætti við að fyrirtækið hafi einnig
farið út í að pakka harðfiski í litla
poka fyrir öskudaginn. „Þetta
hefur reynst mjög vinsælt og sl.
vetur seldum við milli 8 og 10
þúsund slíka poka,” sagði Heim-
ir.
Darri ehf. framleiðir nokkrar gerðir af harðfiski. Hinn klassíski harðfiskur í flökum er
alltaf vinsæll og sömuleiðis bitafiskurinn.
Guðmundur Þór Sæmundsson að störf-
um.
„Það má eiginlega segja að okkur vörur hafi auglýst sig sjálfar. Í það minnsta höfum við ekki lagt mikið í eiginlegt markaðsstarf,”
segir Heimir Ásgeirsson, annar tveggja eigenda Darra.