Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER2005 3
Spurníng dagsins
Hefur þú lent í nágrannaerjum?
Hefþurft að beita kústskafti
„Ég heflent ínágrannaerjum. Bæöi hefég þurft að beita
kústskafti og banka upp á. Ég heflíka ient í vandræðum
vegna bilastæða."
Ludy Ólafsdóttir förðunarfræðingur.
„Nei,
ekkert til að
tala um."
Guðbrandur
Guðmunds-
son verkfræð-
ingur.
„Nei,
aldrei nokkurn-
tímann.Alltí
góðu með
mína granna."
Nína Heide
verslunareig-
andi.
„Nei. Ég
á svo góða
granna."
Jensína Ingi-
marsdóttir
læknaritari.
„Éinu
sinni þurfti ég að
berja kústskafti í
loftið hjá mér."
Brynhildur
Sædís
Pétursdóttir
verslunarstjóri.
Þéttbýlið á höfuðborgarsvæðinu hefur það í för með sér að nábýlið getur ver-
ið ansi þrúgandi og stundum spretta úr því illdeilur. DV greindi í vikunni frá
hatrömmum nágrannaerjum í Melasveit.
ErÁsta Möller vanhæf?
Það hlýtur að vera sér-
kennileg staða fyrir
Ástu Möller að reka
fyrirtaeki sem bæði
fyUir upp í göt í opin-
berri heUbrigðisþjónustu og er
að vissu leyti í samkeppni
við hana, hagnast með
nokkrum hætti á vankönt-
um hennar - en sitja einnig
í þeirri nefhd þingsins sem
mest áhrif hefur
á stöðu heilbrigð-
ismála og á stöðu
einstakra stofn-
ana sem þar eru
reknar og á stöðu
þjónustu ýmissar
sem þar er veitt.
Engar formleg-
j ar vanhæfis-
reglur ná yfir
Sffl
þingmenn. Mér
finnst eðlUegt að
slíkar reglur séu tU,
en eðli þingstarfa er
þannig að þær yrðu
að vera rúmar. SiðferðUegar kröf-
ur eru hinsvegar gerðar tU
þingmanna einsog annarra.
Ekki hafa komið upp nein
dæmi svo kunnugt sé um að
þessi þingmaður hafi beitt
sér á óeðlUegan hátt í þágu fyr-
irtækis sins. Hann hefur hinsveg-
ar almennt verið erindreki einka-
rekstrar og jafnvel einkavæðingar
í heilbrigðisþjónustu. Miðað við
íslensk fordæmi kemur hér
punktur og basta: Ásta verði að
meta það sjálf hvað henni finnst
smekklegt og viðeigandi að gera
gagnvart kjósendum sínum og
öUum almenningi.
Mörður Árnason alþingismaður ritar á mordur.is
Ráðherra á villigötum með RÖV
Menntamálaráðherra boðar
frumvarp á Alþingi um Rik-
isútvarpið fyrir næstu jól
og gerir ráð fyrir þvi að
rekstrarfyrirkomulagi
RÚV verði breytt. Sam-
kvæmt frétt Bylgjunnar seg-
ir ráðherrann að verið sé að
skoða hvort verði fyrir valinu, að
gera Rikisútvarpið að einka-
hlutafélagi eða sameignarfé-
lagi.
Það þykir mér hraustlega
mælt í ljósi þess að hluta-
félagavæðingunni hefur
verið hafnað. Flokksþing
Framsóknarflokksins 2001
ályktaði orðrétt
. „Ríksútvarpinu verði
tekki breytt í hlutafé-
'lag“ og sú samþykkt
* stendur enn óhögguð. Á
næsta flokks-
• J .1 . . þingi, sem
" • var2003,var
bætt við að „breyta skal rekstr-
arformi Ríkisútvarpsins í
sjálfseignarstofnun“. Loks
var ályktað á þessi ári á
flokksþingi Framsóknar-
flokksins að „mikilvægt er
að Rikisútvarpið verði áfram í
þjóðareigu“. Samþykktirnar eru
eðlilegu samhengi og mynda
skýra stefnu flokksins. Síðari
samþykktirnar styrkja þá
fyrstu, sem hafnar hlutafé-
lagavæðingu RÚV.
Menntamálaráðherra hef-
ur sjálfur hafnað hlutafé-
lagaforminu í frumvarpi
um Rikisútvarpið, sem
hann flutti á Alþingi á síðasta
þingi. Þar var lagt til að breyta RÚV
í sameignarfélag en ekki hlutafé-
lag. Rökin gegn hlutafélagaform-
inu voru þau að Rikisútvarpið hafi
sérstöðu, það eigi að vera í þjóðar-
eigu.
Hallgrímur Helgason skrifar um undarlega heimssýn auglýsinga.
Hvimleiðar auglýsingar
Nýju Lottó-auglýsingarnar sem gengið hafa í allt
haust eru skemmtilegar. En samt fara þær í taugarnar
á manni. Vegna þess að boðskapurinn er ansi dapur:
Láttu þig dreyma um að verða svo ríkur að þú getir
hætt að vinna.
Þetta er gott dæmi um auglýsingar sem virka öfugt:
Því lengur sem þær dynja á manni, því ákveðnari
verður maður að kaupa ekki Lottó-miða.
Auglýsingafólk býr í skrýtnum heimi; veröld þar
sem sjampó getur gert fólk hamingjusamt og nýr sími
breytt lífi þess. Menn sem búa í raunveruleiicanum
eiga erfitt með að skilja þennan gerviheim, en samt
meðtökum við skilaboðin frá honum af vissri þolin-
mæði, ef ekki sofandahætti. Það var ekki fyrr en ég var
búinn að brosa að fjórum útgáfum af Lottó-auglýsing-
unni að ég hætti að hafa gaman af henni. í sínu
fimmta tilbrigði hætti hún að vera fyndin og boðskap-
urinn birtist nakinn; markmið okkar í þessu lífi
er að þurfa ekki að vinna, þurfa ekki að gera
neitt. Hér er boðað algleymi markaðsþjóðfé-
lagsins, nirvana neytandans: Að sitja heima
með humarhala í sófanum og góna á MTV.
Það er vart hægt að hugsa sér ömurlegra hlut
skipti en að sitja allan daginn heima í helvfti
einbýlishússins með tærnar upp í loft. Ég
get ekki ímyndað mér að orkuþjóðin
Islendingar láti sig dreyma um slíkt
stofufangelsi.
í vikunni hófst síðan önnur auglýs-
ingaherferð sem reynir jafnvel meir á
þolrifin. Hugbúnaðarrisinn HIVE
vinnur að því að „frelsa" ísland.
Hvorki meira né minna. Rosknar
mæður eru látnar tala inn á útvarps-
auglýsingar í nafni barna sinna: „Son
ur minn er búinn að frelsa 2300 ís-
lendinga." „Dóttir mín hefur frelsað
2700...“ Sonur þeirrar stolt
ustu fær síðan orðið og
segist ekki komast
sextugsafmælið
,5>Her
boðað
, rii m
Þjoðféla
al-
gLe^markaðs
mrvana
Að
ffsms,
rjeyfandans:
‘íffiJp&Hr
sitja allan dacrinn
teíí1® * helvíf?ein-
byishnssins með
terndíuppí
hennar
því hann sé
svo önnum kafinn „að frelsa" fólk.
Stemmningin og tónninn eru stolin úr
harð-væmnustu Hollywood-kvikmyndunum þar
sem hetjur síga niður úr háværum þyrlum og daðra
glæsilega við lífshættuna þegar þeir á síðustu stundu
frelsa gísla eða stríðsfanga. Á hvíta tjaldinu er alla-
vega um „líf fólks" að ræða, þótt ímyndað sé, en í aug-
lýsingunni er hinsvegar verið „að frelsa fólk" frá þeirri
ánauð að þurfa að bíða sekúndunni lengur eftir
nettengingu eða að eyða krónunni minna í „niður-
hal".
Ég fæ aumingjahroll í hvert sinn sem ég
heyri þetta í bílnum. Það er eitthvað svo yfirmáta
hvimleitt við það að heyra hversdagsvandamáli
hins stríðalda íslendings líkt við þjáningar
stríðshrjáðra þjóða. Eða finnst mönnum þetta
smekklegt?
í heimi auglýsinganna getur sjampó fýllt
okkur gleði. í raunheiminum getur sú blekking fyllt
okkur ógleði.
1
Hallgrímur Helgason
Svefnsófar með heilsudýnu
Recor
'mm,
NSE0 SVEFNSÓFI160 / 209x95tnt - SENSE0 SVEFNSÓFI 140 / 187x95tm - Margir litir
Komdu í verslun okkar að Faxafeni 5
og sjóðu glæsilegan sýningarsal okkar.
fullan af nýjum svefnsófum.
Svefnsófar með heilsudýnu og MicroFiber
óklæði í mörgum litum og steerðum.
r i
Wimtex
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður ritar á kristinn.is
Kim svefnsófi J ™ svefnsófi
203x95 cm-Litir lf .. M 184x91 cm - Litir Brunt
i sssafe—.
Svefnsvæði
143x193/215 tm. Sýningarsalur á neðri hæð fullur af nýjum
svefnsófum, glæsileg tilboð f gangi!
Wimtex svefnsófar eru allir með
rúmfatageymslu.
BoffCI Faxafeni 5 • Sími 588 8477 • www. betrabak. is
Opib virka daga frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 11-15