Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Side 17
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 17
Haukartöp-
uðu á Spáni
Kvennalið Hauka í
körfubolta tapaði í fyrra-
kvöld fyrir spænska liðinu
CajaCanari-
as, 91-51, á
útivelli í Evr-
ópubikar-
keppni
kvenna.
Haukar hafa
því tapað öll-
um leikjum
sínum til
þessa í
keppninni
en næst
mæta þær
franska liðinu Pays D'iAix á
heimavelli á fimmtudaginn
næstkomandi. Kesha Tardy
var stigahæst Hauka í
leiknum með 28 stig en Jel-
ena Jovanvic gerði átta stig.
Helena Sverrisdóttir náði
sér ekki á strik og gerði
fjögur stig í leiknum.
Birqir Leifur
lék á 75 högg-
um í gær
Birgir Leifur Hafþórs-
son, kylfingur úr GKG, lék í
gær annan hringinn í loka-
úrtökumótinu fyrir Evrópu-
mótaröðina í golfi sem fer
fram á Spáni. Birgir lék
hringinn á 75 höggum og
var í 84.-97. sæti. 75 kepp-
endur fá að halda áfram
eftir fjórða hringinn en þá
verða leiknir tveir hringir til
viðbótar og aðeins 30 sem
tryggja sér þátttökurétt á
mótaröðinni. Það er því
ljóst að Birgir Leifur þarf að
bæta sinn leik ætli hann sér
ætlunarverk sitt.
Liverpool á
eftir Srna
Enska úrvalsdeildarliðið
mun vera á höttunum eftir
króatíska lansdliðsmannin-
um Dario Srna. Þessi 23 ára
gamli vængmaður átti frá-
bæra leiki með Króatíu í
undankeppni HM og ekki
síst gegn íslendingum.
Hann er 23 ára gamall og er
á mála hjá Shaktar Donetsk
í Úkraínu en nú munu
mörg stórlið f Evrópu vera á
eftir honum. Liverpool
gerði félaginu tilboð í sum-
ar en því var hafnað.
Champion far-
innheim
Ashley Champion,
Bandaríkjamaðurinn sem
leikið hefur með KR
í Iceland Express
deild karla það
sem af er vetri,
hefur haldið
heim á leið.
Champion hefur
átt í erfiðum
ökklameiðslum og komst
körfuknattleiksdeild KR að
samkomulagi við Champ-
ion um starfslok. KR-ingar
leita þessa dagana af nýjum
kana.
Undankeppni HM 2006 í Evrópu lýkur í næstu viku
Umspil um þrjú laus sæti á HM hefjast í dag
| Raul Gonzalez og
John Carew Verða í
eldlínunni með lands■
liðum sínum í daq.
Þau sex lið sem tryggðu sér
þátttökurétt í umspilinu um i
þrjú laus sæti á heimsmeistara-
mótinu í Þýskalandi næsta
sumar hefja keppni í dag. Norð-
menn mæta Tékkum, Spánn og 1
Slóvakía keppa sem og Sviss og
Tyrkland. Það verður því eflaust'
hart barist enda til mikils að vinna.
Norðmenn og Tékkar hafa áður
mæst í undankeppni en það var fyr-
ir Evrópumeistaramótið sem hald-
ið var í Englandi árið 1996. Tékkar j
unnu þá í Osló og svo aftur á
heimavelli. Þeir komust svo alla leið
í úrslit á keppninni sjálfri og komu
par með morgum a ovart.
Þeir lentu einnig í því að
i taka þátt í umspili um
I laust sæti fyrir sfðustu
heimsmeistarakeppni en
þá --------------------
en
töpuðu þeir fyrir
Belgum, 1-0, í báð-
um leikjum. Þeim
liggur því mikið á
að bæta fyrir það
nú.
Landslið Sviss
náði að tryggja sér
sæti á EM í Portú-
gal í fyrra
það áttu fáir von á því að sjá liðið í
Þýskalandi. Sviss lenti í riðli með
Frökkum og írum en náði engu að
síður að gera tilkall til toppsæti rið-
ilsins. Það tókst ekki og þurfa þeir
nú að mæta Tyrkjum, bronsliði síð-
asta heimsmeistaramóts. „Við lítum
á þessa leiki eins og tvo bikarúrslita-
leiki," sagði Alexander Frei, marka-
hæsti maður Sviss í undankeppn-
inni með sexmörk skoruð. „Við ber-
um vonir og væntingar allrar þjóð-
arinnar á herðum okkar," sagði
hann og hið sama má væntanlega
segja um landslið hinna landanna
fimm.
11. NÚVEMBER 2005121.
áskrífenda DV
RUSL?
45 GAGNLEGAR
ÁBENDINGAR
ii »j ■fil
iHj
+ ALLT UM JÓLABÓKAFLÓÐIÐ