Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Page 59

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Page 59
PV Sjpjtyarp LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 * ► Skjár einn kl. 21.30 ► Stjaman Boston Legal Glæný og spennandi syrpa. Persónurnar eru hver annarri athyglisverðari. I þessum fyrsta þætti verður hjarta- knúsarinn og lögfræðingurinn Brad hrifinn af konu sem réð hann til að verja sig. Hún seg- ist vera lesbísk en hann er sannfærður um að svo sé ekki. Cathrine Piper er ný á stofunni og flestum starfsmönnum finnst að hún mætti vanda mál sitt örlítið betur. M STJÖRNUFRÉTTIR^ LÍFSSTÍLL ^ ALVÖRU FÓLK Ákvað ungur að slá í gegn Stórleikarinn Nicolas Cage leikur í kvikmyndinni Matchstick Men sem sýnd verður á Stöð 2 Bíó klukkan 22 á sunnudaginn. Nicolas fæddist þann 7. janúar 1964 i Kalífomíu. Nicolas Cage er sonur bókmenntafræðingsins August Coppola en hann er einmitt bóðir leikstjóran Francis Ford Coppola. Cage vildi ekki halda í Coppola-nafnið, vegna þess að hann vildi verða frægur á eigin forsendum. Hann lærði fyrst leiklist í Beverly Hills-menntaskólanum en hætti í skóla snemma. Hann fékk tvö hlutverk í röð árið 1983 í kvikmyndunum Valley Girl og Rimble Fish en það voru hans fyrstu hlutverk. Nicolas varð þekktari og þekktari innan kvikmyndabransans og fljótlega fór hann að láta að sér kveða. f dag er Nicolas ein helsta stjarnan í Hollywood og þykir það ávísun á gróða að hafa hann í aðalhlutverki. Drengnum, sem ætlaði að verða frægur á eigin spýtur, tókst það heldur betur. IÞorsteinn Guðmunds- son Varplndur tilþess að kynna Edduverðlaunin. Verðlaunin verða að vera árlega Margir hafa deilt um mikilvægi Edduverðlaunanna og vill stór hóp- ur fólks meina að verðlaunin eigi ekki að veita á hverju ári, heldur frekar annað hvert eða þriðja hvert ár. Þá er efnisúrvalið meira og svo öðlast verðlaunin meira gildi um leið. „Ég er ekki alveg sammála þessu. Edduverðlaunin eru hálfgerð árshátíð og hana verður að haida ár- lega. Það skiptir mestu máli að horfa á þetta réttum augum og taka þessu ekki of alvarlega, þá er hægt að hafa gaman af þessu, vonandi," segir Þorsteinn og blæs á allar efasemdir um verðlaunin. Hátíðin verður í beinni útsendingu á Ríkissjónvarp- inu klukkan 20 í kvöld. dori@dv.is | EflSHPt ENSKI BOLTINN 14.30 Fulham - Man. City frá 5.11 16.30 Aston Villa - Liverpool frá 5.11 18.30 Everton - Middlesbrough frá 6.11 20.30 Spumingaþátturínn Spark (e) Spark er splunkunýr spurningaþáttur um fót- bolta og fótboltatengt efni. Höfundur spurninga og spyrill er Stefán Pálsson og með honum sem spyrill og sérleg- ur stuðbolti er Pórhallur Dan. 21.00 Dagskrárlok >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.