Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Blaðsíða 59
PV Sjpjtyarp
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 *
► Skjár einn kl. 21.30
► Stjaman
Boston Legal
Glæný og spennandi syrpa.
Persónurnar eru hver annarri
athyglisverðari. I þessum
fyrsta þætti verður hjarta-
knúsarinn og lögfræðingurinn
Brad hrifinn af konu sem réð
hann til að verja sig. Hún seg-
ist vera lesbísk en hann er
sannfærður um að svo sé ekki.
Cathrine Piper er ný á stofunni
og flestum starfsmönnum
finnst að hún mætti vanda mál
sitt örlítið betur.
M STJÖRNUFRÉTTIR^ LÍFSSTÍLL ^ ALVÖRU FÓLK
Ákvað ungur að slá í gegn
Stórleikarinn Nicolas Cage leikur í kvikmyndinni Matchstick Men sem sýnd
verður á Stöð 2 Bíó klukkan 22 á sunnudaginn. Nicolas fæddist þann 7. janúar
1964 i Kalífomíu. Nicolas Cage er sonur bókmenntafræðingsins August
Coppola en hann er einmitt bóðir leikstjóran Francis Ford Coppola. Cage vildi
ekki halda í Coppola-nafnið, vegna þess að hann vildi verða frægur á eigin
forsendum. Hann lærði fyrst leiklist í Beverly Hills-menntaskólanum en hætti í
skóla snemma. Hann fékk tvö hlutverk í röð árið 1983 í kvikmyndunum Valley
Girl og Rimble Fish en það voru hans fyrstu hlutverk. Nicolas varð þekktari og
þekktari innan kvikmyndabransans og fljótlega fór hann að láta að sér kveða.
f dag er Nicolas ein helsta stjarnan í Hollywood og þykir það ávísun á gróða að
hafa hann í aðalhlutverki. Drengnum, sem ætlaði að verða frægur á eigin
spýtur, tókst það heldur betur.
IÞorsteinn Guðmunds-
son Varplndur tilþess að
kynna Edduverðlaunin.
Verðlaunin verða
að vera árlega
Margir hafa deilt um mikilvægi
Edduverðlaunanna og vill stór hóp-
ur fólks meina að verðlaunin eigi
ekki að veita á hverju ári, heldur
frekar annað hvert eða þriðja hvert
ár. Þá er efnisúrvalið meira og svo
öðlast verðlaunin meira gildi um
leið. „Ég er ekki alveg sammála
þessu. Edduverðlaunin eru hálfgerð
árshátíð og hana verður að haida ár-
lega. Það skiptir mestu máli að horfa
á þetta réttum augum og taka þessu
ekki of alvarlega, þá er hægt að hafa
gaman af þessu, vonandi," segir
Þorsteinn og blæs á allar efasemdir
um verðlaunin. Hátíðin verður í
beinni útsendingu á Ríkissjónvarp-
inu klukkan 20 í kvöld. dori@dv.is
| EflSHPt ENSKI BOLTINN
14.30 Fulham - Man. City frá 5.11 16.30
Aston Villa - Liverpool frá 5.11
18.30 Everton - Middlesbrough frá 6.11
20.30 Spumingaþátturínn Spark (e) Spark er
splunkunýr spurningaþáttur um fót-
bolta og fótboltatengt efni. Höfundur
spurninga og spyrill er Stefán Pálsson
og með honum sem spyrill og sérleg-
ur stuðbolti er Pórhallur Dan.
21.00 Dagskrárlok
>