Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Side 22
22 LAUGARDACUR 11. MARS 2006
Helgarblað DV
Anna Þór Auðunsdóttir og
Hanna Rún Þór eru lesbíur
sem langaði til að eignast
barn. Þær fóru sínar eigin
leiðir til þess að æðsti draum-
ur þeiiTa gæti ræst. Að vera
fjölskylda. Anna og Hanna
eiga í dag átta ára gamla dótt-
ur, Örnu Sigríði Þór, sem þær
ákváðu að Hanna skyldi ganga
með. Vinur þeirra bauðst til ac
gefa þeim „efnið“ og úr varð
barn. Þær áttu engan ann-
an kost því á íslandi
geta lesbíur ekki farið
1 tæknifrjóvgun.
Þær eru opinskáar
um íjölskyldu
sína og tilurð
hennar og
segja að sann-
leikurinn sé
alltaf bestim*.
og á þeiiTc
heimili
séu engin
■■■■■■ 'W':
•■m
'Sit
.. ; :;f|||g||:
Hamingjusöm fjölskylda í
Hafnarfirði Þaðgeislarafþeim
mæðgum Önrtu, Örnu og Hönnu.
ssu var a enn
. ástríku heimili í Hafnarfirði býr fjölskylda sem ekki er hægt að
segja að sé mjög hefðbundin. Lesbíurnar Anna Þör Auðunsdóttir
og Hanna Rún Þör eignuðust dóttur þann 30. nóvember 1997
með gjafasæði frá vini sínum. Arna Sigríður Þór kom í heiminn
heilbrigð og falleg eftir erfiða fæðingu sem endaði í keisaraskurði.
Líffræðileg móðir hennar, Hanna, var flutt á gjörgæslu eftir mik-
inn blóðmissi og fékk ekki að sjá dóttur sína fyrr en sólarhring
seinna. Hanna var keyrð á skrifstofustól á vökudeild daginn eftir
og hjarta hennar rúmaði ekki allar þær tilfinningar sem hún fann
þegar hún sá dóttur sína í fyrsta skipti.
Lesbíur og einstæðar konur á ís-
landi hafa hingað til ekki átt kost á
því að fara í tæknifrjóvgun hér á
landi. í lögum stendur að einungis
gagnkynhneigð pör sem eru í stað-
festri sambúð eða gift geti sótt um
tæknifrjóvgun. Lesbíur sem vilja
eignast barn hafa því þurft að fara
sínar leiðir til þess að láta draum
sinn rætast.
Margar lesbíur hafa farið til Dan-
merkur á Stork Klinik en þar er ekki
spurt um hjúskaparstöðu og allar
konur geta farið í tæknifrjóvgun þar.
í viðtali sem DV tók við eiganda
Stork Klinik, Ninu Stork, segir hún
að fjöldi íslenskra kvenna hafa kom-
ið til hennar í tæknifrjóvgun og 20
börn hafa fæðst á íslandi með
dönsku gjafasæði frá Stork Klinik.
Loksins virðast íslensk stjórn-
völd vera að taka við sér varðandi
rétt samkynhneigðra og liggur nú
fyrir til samþykkis á Alþingi frum-
varp til laga um að lesbísk pör njóti
sömu réttinda og gagnkynhneigð
pör á íslandi til að fara í tæknifrjóvg-
un. Allt stefnir í að frumvarpið verði
samþykkt fyrir þinglok og er það
stórt skref í réttindabaráttu sam-
kynhneigðra.
Hlýtt viðmót
Þegar blaðamaður gekk upp að
húsinu þeirra var krítað á helluna
fyrir framan dyrnar orðin „inn" og
„út“. Þetta var ábending til þeirra
sem heimsækja fjölskylduna að
„Við vorum að tala
um það i gríni og al-
vöru að okkur vantaði
„efni" til að búa til
barn. Þá sagði bróðir
vinkonu okkar sem
var staddur í afmælis-
veislunni að hann ætti
nóg af„efni" og að
hann væri alveg til í
að gefa okkur smá-
vegis afþví."
öðrum megin á að ganga inn og hin-
um megin út. Blaðamann grunaði
að þetta væri verk Örnu Sigríðar,
átta ára dóttur Önnu og Hönnu og
skemmtileg aðferð hennar til að
bjóða gesti velkomna.
Og það reyndist svo sannarlega
rétt að gestir væru velkomnir því
hlýtt viðmót Önnu og Hönnu og fal-
lega brosið hennar Örnu litlu gerðu
það að verkum að blaðamanni
fannst hann hafa þekkt þessa fjöl-
skyldu alla ævi. Ilmandi kaffi úr ekta
expressó-kaffivél gaf til kynna að
konurnar sem búa í þessu húsi eru
vandlátar og bjóða aðeins upp á það
besta og blaðamaður hafði ekki
bragðað svona gott kaffi síðan hann
var á Spáni síðast.
Kynntust fyrir 20 árum
Þegar blaðamaður spyr önnu og
Hönnu hvenær þær kynntust kem-
ur sposkur svipur á þær og þær
flissa báðar hálfvandræðalega en
svo verður Anna fyrir svörum: „Það
var á milli jóla og nýárs fyrir 20
árum en við munum ekki hvaða dag
því það liðu einhverjir dagar þar
sem við vorum í vímu og misstum
allt tímaskyn." Hanna glottir og seg-
ir að tilfinningarnar hafi verið svo
sterkar að fýrstu dagana sem þær
voru saman að henni hafi fundist
sem hún væri í öðrum heimi.
Þær horfa hvor á aðra ástföngn-
um augum og ekki virðist ástin hafa
dvínað eftir allan þennan tíma.
„Þegar við byrjuðum saman þá viss- •
um við ekki hvort sambandið
myndi endast því við höfðum enga
fyrirmynd, og þekktum engin les-
bísk pör í löngu sambandi. Svo
þegar við veltum því fyrir okkur að
eignast barn þá vissum við báðar að
við yrðum að treysta á sambandið
og hella okkur út í skuldbindingu
sem við þekktum ekki. Við vorum
alltaf á flakki og ferðuðumst mikið
fyrstu árin sem við vorum saman,"
segir Anna.
Vildi gefa sæði
Anna og Hanna voru staddar f af-
mælisveislu hjá vinkonu sinni fýrir
níu árum þegar það kom til tals í
veislunni að þær vildu eignast barn.
„Við vorum að tala um það í gríni og
alvöru að okkur vantaði „efni" til að
búa til barn. Þá sagði bróðir vin-
konu okkar sem var staddur í af-
mælisveislunni að hann ætti nóg af
„efni" og að hann væri alveg til í að
gefa okkur smávegis af því," segir
Hanna.
Þær ákveða að slá til og taka
hann á orðinu. Anna segir að þetta
hafi gerst allt svo fljótt. „Hann var
að fara til útlanda og það hittist
þannig á að Hanna var líklegri til að
verða ólétt daginn áður enn hann
átti að fara. Vinkona okkar sem er
systir hans fór á netið að kynna sér
hversu lengi sæði getur lifað utan