Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 7. JÚLl2006
Fyrst og fremst DV
Fyrst og fremst
Kynferðís;
gagnvaif
irnum
tvöfalriast
•• --fSj i
Bls. 29-30 og 43\
Bls. 60-61
Hollráð um öryggi borgaranna
Páll Baldvln Baldvinsson
Dómsmálaráðherrann
vill efla öryggi borg-
ara í landinu gegn vá
sem stafar af innlendum og
erlendum ógnaröflum. Hann
vill stofna leynilögreglu sem
starfl með leynd og þefl uppi
alla þá sem geta verið til
vandræða í okkar kyrrláta og
friðsama samfélagi.
Þetta er fallega hugsað af
dómsmálaráðherranum.
Og honum líkt. Lengi hef-
ur hann hafl áhyggjur af því
að vondir menn í veröldinni
legðu landið undir sig. Sem
ekki má gerasL
öryggi borgaranna er h'ka
mikilsvert og nauðsyn gró-
andi þjóðlífí. Borgarar vilja
vera öruggir á vegferð sinni
um borgir og bæi á öllum
tímum sólarhringsins. Ekki
hefur dómsmálaráðherran-
um enn tekist að tryggja það,
hvorki í Skuggasundi né und-
ir veggjum Stjómarráðsins.
Þar er öryggi borgaranna
ótryggt.
Ekki er ástandið skárra á
vegum úti. Dómsmálaráð-
herranum hefur ekki tekist
að halda uppi nauðsynlegri
löggæslu á vegum
landsins. Þar æða
ökudólgar um á ólög-
legum hraða með
mánaðarlegum mann-
fórnum og örkumli
borgaranna. Löggæsl-
unni er svo naumt
skorinn stakur að
vegaeftirlit er nánast
ekkert. Það öryggis-
leysi er á ábyrgð ráð-
herrans.
Landhelgi til sjávar
og sveita er líka á hans
könnu. Loksins er að
rofa til í öryggi borgar-
anna til sjávar en um
landið vaða skemmd-
arvargar og spilla
landinu án þess að
dómsmálaráðherrann
missi svefn.
öryggi borgaranna
er ekki tryggt með
dómstólum. Friðhelgi
og nálgunarbann eru óvirk hug-
tök í lífl landsmanna. Jafnvel rík-
isstofnanir telja sig ekki þurfa að
hlíta dómstólum á lægri og æðri
stigum. Lítill má sín einskis gegn
margnum í réttarfari landsins
sem hentar einungis þeim sem
betur mega sín. Það haggar ekki
staðfastri ró ráðherrans.
Ekki geta landsmenn leng-
ur treyst því að hin fornu og
helgu lög samhjálpar sem lengst
afvoru óskráð í landinu stand-
ist sem stafir á bók. Öryrkjar,
sjúkir menn og vanheilir eru að
verða utangarðs í landinu, ekki
síst fyrir áhugaleysi ríkisstjóm-
ar sem ráðherrann á sæti í, þótt
ekki minnki vinsældir hennar
lyrir það.
Þó eru því mörg meinin sem
dómsmálaráðherrann getur bætt
í sínum ranni til að tryggja öryggi
borgaranna. Kæri hann sig um.
En er íslenska leynilögreglan
brýnasta og bráðasta hollráðið
sem ráðherrann kann til lausnar
þeim langa og stóra málaflokki
sem að honum snýr sjálfum,
beint eða óbeint? Varlaverða
tuttugu og fimm skrifstofumenn í
dökkum fötum og drögtum send-
ir í miðbæinn til að skakka ýfing-
ar með unglingum um helgar.
Ekki leggja þeir land undir fót og
hemja hraðafús flón á þjóðveg-
inum.
Verður þeirra hlutskipti ekki
að naga blýanta á góðum kontór
milli þess sem þeir elta uppi
nýjasta óvininn, náttúruvernd-
arsinna og óvildarmenn erlendra
harðstjóra sem hingað koma til
að borða lömbin mjúk á Bessa-
stöðum? Sú ógn er líka ráðherr-
anum að skapi og þjónar vel
hans mildu lund.
Við tillögum ráðherrans er
bara til eitt svar: „Maður, líttu
þér nær." Nógu brýn eru verkin á
borðinu þínu og ekki er þetta efst
áblaði.
a: ‘i:
Með einu pennastríki hefurJón Sigurössoj^jatað yfir stóríöjustefnu flokks síns. Njest á dagskrá^
Kvótabrask Glgantlskur arður af
sameign þjóöarinnar hefur ekki
runnið Ivasa útvalinna sægreifa.
Stöðuveitingaspill-
ing Ftokkurinn hefur
aldrei raöað sfnum á
garöana. Bara aldrei.
Landbúnaðarhelsi Toliaein-
angrunarstefnuerekkium
aö kenna aö bændur eru
fátækastir stétta.
Hækja íhaldsíns
Framsóknarflokkur-
inn hefur ekki haldiö
Ihaldinu aö völdum
heldurléleg
stjórnarandstaða.
Einkavinavæðing
Flokkurinn gafsínum
aldrei Búnaöarbank-
ann. Bara aldrei.
Hóruhús light
Það á ekki af dómsmálaráðherra
að ganga. Ameríska sendiráðið
gengur í hlutverk hans, hefur sjálf-
stæða rannsókn á íslensku vændi og
kemst að því að landið er eins kon-
ar hóruhús light.
Ameríkanar ættu ekki að þurfa
að stunda þannig rannsóknir, eng-
inn veit þetta betur en bandaríski
herinn, hæfari en dómsmálaráð-
herrann. Kaninn hefur verið með
limina í íslensku kleinunum leng-
ur en elstu menn muna, en ráðherr-
ann dvelur á æðri
stöðum. Hann
á þá hugsjón
að koma upp
nýju varnar-
liði, eflaust til
að verja amer-
ísk álver.
Rannsókn
sendiráðsins
hláleg
fyrir ráðherra háleitra hugsjóna en
leiddi ekkert í ljós nema eitthvað
sem það sjálft og almenningur vissi,
aðrir en menn með þörf sem hægt
er að kalla rannsóknaræði byggt á
blindu.
Á því ber gjarna hjá drengjum í
fjölskyldum valdamanna. Þeir hafa
verið dálítið vanræktir í æsku og
dunduðu í einverunni við það að
hræða sig með skelfilegum ytri ógn-
um. Síðan gerist það, þegar þeir
taka við hlutverki pabba, þeir hafa
fæðst inn f völdin, þá rugla þeir
saman veruleika og ímyndun svo úr
verður þrálátur hrærigrautur bor-
inn fram af ráðvilltum vitsmunum í
líki þrjósku og einþykkni.
Um leið og bandaríska sendiráð-
ið gengur með háði í hlutverk ráð-
herrans hefst kveðjuhóf hins lof-
sungna hers fyrir fólkið.
Þetta er önnur tegund af vændi,
hlutavændi light.
Kanadraslið er flutt til Reykjavík-
ur og Jón og Gunna fá að gramsa í
því í hinsta sinn. Nú eru síöustu for-
vöð. Dýrðin er rifin út og fyllír stof-
ur, næstum ókeypis eins og við upp-
hafið þegar Kaninn kom með allt í
byrjun heimsstyrjaldarinnar.
Þannig er endurtekningin í hóru-
húsinu sem er light og minnir helst á
tófugreni. Fyrir bragðið er það laust
við sérstaka hörku, iðnþjálfun kven-
holdsins með karlmönnum sem
hafa starfskrafta til að reka húsi
Allt er dálítið svipað dómsir
ráðherra í sinni drengslegu j
og löngun til að vera maður
mönnum en hafa ekki döngun
nema til þess að dýrka aðra og
eftir þeim, líkt.og venjulegur kí
karl í stjórnmálum sem heldu;
borubrattri heimasíðukompu.
Guöbergur Bergsson rithöfundur
Indíana Ása Hreinsdóttir - indiana@dv.is
Jakob Bjarnar Grétarsson - jakob@dv.is
Jakobína Davíðsdóttirjakobina@dv.is
DV Sport:
Óskar Ófeigur Jónsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550 5090
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is
Auglýsingar: auglysingar@dv.is.
Umbrot: 365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf. - dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjóri:
Páll Baldvin Baldvinsson - pbb@dv.is
Aðstoðarritstjóri:
Freyr Einarsson - freyr@dv.is
Fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson - oskar@dv.is
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir
- annakristine@dv.is
Ásgeir Jónsson - asgeir@dv.is
Edda Jóhannsdóttir - edda@dv.is
Frjðrik Indriðason - fridrik@dv.is
Garðar Úlfarsson - gardar@dv.is
Guðmundur Steindórsson
- gudmundur@dv.is
Hanna Eiríksdóttir - hanna@dv.is