Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Blaðsíða 54
66 FÖSTUDAGUR 7. JÚLl2006
Helgin DV
Utvarpsmönnunum Andra Frey Viðar-
syni og Búa Bentsen hefur verið sagt upp
störfum hjá íslenska útvarpsfélaginu
Capone-DræourreKnir
„Okkur var bara sagt upp," seg-
ir Andri Frey Viðarson annar stjóm-
enda útvarpsþáttarins Capone á X-
fm. Andri hefur stjómað þættinum
ásamt Búa Bendtsen síðan 14. janúar
2005 þegar stöðin var stofnuð í kjölfar
þess að X-ið 977 var lagt niður.
Síðan þá hefur útvarpsstöðin
heldur betur fest sig í sessi í íslensku
útvarpi og á breiðan og dyggan hóp
hlustenda. Stöðin er í eigu íslenska
útvarpsfélagsins en það vom Andri
Freyr, Mattías Már og fleiri kraftmikl-
ir útvarpsmenn sem vom drifkraftur-
inn á bak við stofnun stöðvarinnar.
Ég er Nói
„Við vorum að fara í sumarfrí og
vorum svo reknir sama dag. Alveg
einstaklega hentugt að það skildi
vera gert sama dag," segir Andri og er
greinilega ekki ánægður með stöðu
mála. „Það er hart að vera sparkað
af skipinu sem maður smíðaði sjálf-
ur. Ég er Nóisegir Andri sem stadd-
ur er í sumarfríi í Hollandi um þess-
ar stundir.
Þá var Gunnari Lárusi Hjálmars-
syni eða Dr. Gunna einnig sagt upp
störfum, en hann hefur verið með
fjölbreyttan og líflegan tónlistarþátt
einu sinni í viku á stöðinni.
Fást engin svör
„Ég tjái mig ekki um málefni ein-
stakra starfsmanna," sagði Axel Ax-
elson framkvæmdastjóri íslenska
útvarpsfélagsins þegar blaðamaður
DV hringdi í hann í leit að svörum. X-
fm hefur mælst vel í hlustendakönn-
unum og er vinsælli en X-ið 977 sem
var sett aftur á laggirnar eftir að X-fm
sýndi berlega að markaður væri fyr-
ir slíka útvarpsstöð. Capone hefur átt
stóran þátt í velgengni stöðvarinnar
enda verið einn beittastí morgun-
þáttur landsins undanfarin misseri.
Vangaveltur vöknuðu þá í kjöl-
far uppsagnarinnar hvort að Capone
yrði færður yfir á X-ið 977 en Frosti
Logason dagskrárstjóri X-ins kaus að
tjá sig ekki um málið að svo stöddu.
Aðdáendur þáttanna verða því
að lifa í óvissu enn um sinn og mun
framtíð þeirra Capone-bræðra ekki
ráðast strax. En það er klárlega mikill
missir fyrir íslenskt útvarp snúi þeir
félagar ekki aftur.
myrdal@dv.is
Ósáttir Andri Freyrsegir uppsögnina hafa
komið sér i opna skjöldu, enhannogBúi
voru reknir sama dag og þeir hófu sumarfri
sitt. AxelAxelson framkvæmdastjóri
íslenska útvarpsfélagsins vildi ekkert tjá sig
um málið við blaðamann DV.
Ungfrú fsland 2006
Sifmun keppa i sama
kjólog I Ungfrú Island,
enda stórglæsilegur
kjóllþarna á ferðlnni.
Sif Aradóttir mun taka þátt í keppninni Ungfrú Alheimur 23. júlí
og fór utan í gær til að hefja undirbúning
PRINSESSA í BORG ENGLANNA
„Ég verð úti í þrjár vikur og er
orðin virkilega spennt og hlakka
bara til," sagði Sif Aradóttir, ungfrú
ísland 2006, í samtali við DV en hún
hélt til Bandaríkjanna í gærkvöldi
til að taka þátt í keppninni Ungfrú
Alheimur. „Þetta er gríðarlega stór
keppni og mikil umgjörð í kringum
hana." En keppnin er í eigu auðkýf-
ingsins Donalds Trump sem marg-
ir þekkja úr þáttunum The Apprent-
ice.
„Það eru í kringum 85 stelpur
sem taka þátt og er öryggisgæslan
í kringum okkur og hátíðina gríðar-
lega mikil." En hátíðin fer fram í Los
Angeles að þessu sinni. „Það eru
tvær og tvær saman í herbergi og yf-
irleitt keppendur sem eiga eitthvað
sameiginlegt og geta talað saman."
Keppnin fer fram sunnudaginn
23. júlí og verða Sif og aðrir kepp-
endur í stífum æfingum fram að
því. „Það eru æfingar, uppákom-
ur, kvöldverðir og aðrir atburðir á
hverju kvöldi fram að keppni," seg-
ir Sif sem hefur æft mikið hér heima
fýrir keppnina. „Ég er búinn að fá
frábæran stuðning alls staðar að en
ég vil sérstaklega þakka Next, Per-
sóna, Gasa og Salon VEH fyrir að
hjálpa mér með föt, förðun og hár-
ið,“ segir Sif þakklát.
asgeir@dv.is
Sif Aradóttir Tekurþátti
Ungfrú Alheimi en keppnin
er I eigu Donalds Trump.