Freyr

Årgang

Freyr - 15.05.1972, Side 7

Freyr - 15.05.1972, Side 7
Engilbert Ingvarsson. þessara svo að í meðferð þeirra alla hefur verið lögð mikil vinna. Helztu breytingar, sem Búnaðarþing samþykkti til frávika frá gildandi jarð- ræktarlögum voru þessar: 1. Lagt er til að framlag til nýræktar hækki verulega og að ekki verði fram- vegis bundið við stærð túna á bújörð- unum. 2. Að aukið verði framlag til grænfóð- urræktar, áburðarhúsa og votheys- geymslna, frá því sem nú er. 3. Að hreinsun framræsluskurða njóti opinbers framlags. 4. Að veittur verði stuðningur við vatns- veitur á sveitaheimilum. 5. Að stuðningur verði veittur til kölkunar túna þar sem þess þarf, til þess að auka ræktunarhæfni landsins. 6. Lagt er til að inn í lögin verði tekin ákvæði um stuðning við ræktun hag- 'lendis. 7. Ákveðin sjónarmið voru uppi um auka- stuðning við félagsræktun einkum með tilliti til aukins öryggis um nægilega fóðuröflun 1 erfiðu árferði. í sambandi við endurskoðun búfjárræktar- laganna komu m. a. fram eftirtaldar breyt- ingar frá gildandi lögum: 1. Búnaðarsambönd, tvö eða fleiri, geti í félagi haft ráðunaut sameiginlega í þjón- ustu sinni þegar hagkvæmt þykir. 2. Að aukin áherzla verði lögð á afkvæma- rannsóknir nautpenings. 3. Ákvæði um Nautastöð B. í. og starfsemi hennar felld inn í lögin. 4. Að aukin áherzla verði lögð á stofn- ræktun og afkvæmarannsóknir sauðfjár. 5. Varðandi hrossarækt er lagt til að þar verði auknar afkvæmarannsóknir og að stofnað verði hrossaræktarbú á Suður- landi. 6. Að útflytjendur greiði visst gjald af út- fluttum hrossum og að gjald það renni í sjóð, er veiti stuðning til að kaupa úr- valskynbótagripi, sem annars er hætta á að seldir verði úr landi. 7. Lagt er til að viðurkennd leiðbeininga- þjónusta verði upp tekin í loðdýrarækt og æðarrækt, svo og fjárhundarækt. Menntun bændastéttarinnar var rækilega rædd, enda hafði milliþinganefnd starfað í því máli. Kom þar til álita allt mennta- kerfið og að sjálfsögðu fyrst og fremst frá sjónarhódi sveitamannsins skoðað, allt frá grunnskólastigi, framhaldsskóíanám og búnaðarmenntun. Voru flestir því fylgj- andi, að menntastofnunum skuli dreift um Guttormur Þormar. F R E Y R 199

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.