Freyr - 15.05.1972, Page 17
LI.'V— 1 5 = C 11 W&pWt.
verður þó að telja, að ráðlegt sé að hafa
svo langt milli langbanda hér á landi, og
sennilega ekki að ráði yfir 1,0 m. Ljós-
streymi er 85—90%. Hitatap er mjög svip-
að eða ívið minna en í gleri, og heildar-
hitatap eflaust minna vegna þess, að hús
verða mun þéttari. Þessar plötur eru sér-
staklega framleiddar til gróðurhúsabygg-
inga, og eru nokkuð dýrar, og mun mega
reikna með rúmlega 300 kr. á fermetra.
Önnur ný gerð af trefjaplasti er hið svo-
nefnda c-11 trefjagler, sem upprunalega er
komið frá bandaríska fyrirtækinu Deer-
field í U.S.A. Hér er um að ræða trefja-
glerstyrktar polyesterplötur, þar sem yfir-
borðið er meðhöndlað með svonefndri Gel-
coat-húð, sem hindrar veðrun og ytri áhrif.
í plöturnar er ennfremur blandað acryl-
plasti, en það er löngu reynt, að acrylplast
hefur mjög mikið ljósstreymi og ljóshæfni
þess minkar lítt eða ekki með aldrinum.
Eftir plötunum endilöngum liggja nylon-
þræðir með ca. 12—14 cm millibili. Bylgju-
stærð er 15—75 mm. Þykkt er ca. 1 mm
(standard). Stöðluð plötustærð er 110x650
cm. Ljósstreymi er gefið upp um 92%
(gler 85—90%). Magn blárra — útfjólu-
blárra — geisla minnkar mun minna en
gegnum gler, sem hleypir sáralitlu útfjólu-
bláu Ijósi í gegn um sig. Verskmiðjuábyrgð
er á því, að ljóshæfni minnki ekki sem neinu
nemur á fyrstu 10 árum. (Ef tekið er magn,
sem svarar til 500 ferm. er verð um 11 DM
á fermetra, en ef tekið er yfir 2000 m2,
lækkar verðið í 10 mörk, en eigi að síður
yrði þetta nokkuð yfir 300 ísl. kr. á m2
hingað komið). (Teikning af UV húsi frá
Kráhe og Wáhr). í Þýzkalandi og U.S.A.
hefur nú þegar verið byggt nokkurt magn
húsa úr þessum plötum og húsin í veru-
F R E Y R
209