Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1972, Page 27

Freyr - 15.05.1972, Page 27
A3 fyrirbyggja graskrampa Það segir sig sjálft, að einhver leið hlýtur að vera til þess að takmarka beitarkrampa eða takmarka hann að minnsta kosti. í því ljósi, sem fóðurrannsóknir hafa varpað yfir þessi fyrirbæri, og svo lífeðlisilegar athug- anir til samanburðar, hefur það sýnt sig, að sé verið á verði í þessum efnum er hægt að takmarka vá og vanda, sem hér um ræðir. í fyrsta lagi er um að gera að viðbrigðin frá húsvist til beitar séu sem allra minnst. í upphafi beitarskeiðs er eðlilegt að skepn- urnar fái talsvert trénismagn í fóðrinu, helzt með því að gefa þeim hey með beit- inni, það eta þær gjarnian ef byrjað er að veita þeim útivist áður en gróður er kom- inn. í öðru lagi þarf að forðast eftir megni að skepnumar ofkælist, en hætta á ofkæl- ingu er mest fyrstu dagana eftir að kýrnar koma á beit og þá einkum í vætusömu veðri og blæstri. I þriðja lagi er svo að sjá kúnum fyrir því fóðri, sem í er meira magn af magníum en gerist á öðrum tímum. Á síðari árum er víða leitast við að gefa mjólkandi kúm sérstök magníumauðug sölt eða steinefnablöndur. Magníumsúlfat eða dólómítíkalk hefur verið valið til þessa í fyrstu röð, gjarnan blandað öðrium stein- efnum. Spurning er hvort við eigum að fara að eins og gerist hin síðari ár meðal grann- þjóða okkar, en það er að gefa steinefna- blöndur með ríkulegu magni magníumsalta svo sem 2—3 vikna skeið áður en kýrnar fara á beit svo að í vefi þeirra safnist nokkurt magn, er tæra má af fyrsta skeiði beitartímans. Þetta hlýtur að gilda við ýmiss skilyrði, einkum þar sem magníums- skorts hefur sannanlega orðið vart fyrr. í flestum steinefnablöndum, sem á markaði eru og í eru snefilefni, er jafnan einnig eitthvert magníumsalt, en þó ekki svo mikið að nægilegt sé á þessum sérstaka tíma árs þegar hættan á graskrampa er mest. Á þeim tíma er viðeigandi að hafa handbæra sérstaka steinefnablöndu, með miklu meira magníum en venjulega er um að ræða í steinefnablöndum. Talið er að það magn, sem mjólkandi kýr þarf af magníum daglega fyrir beit og fyrstu vikur beitartímans, sé 15—20 g. iHvernig þess skal aflað verða ráðiuniautar og dýralæknar að ráðleggja bændum. Og svo er vert að minnast þess, að ef skepn- umar eru viðkvæmar, hafa vöðvasamdrætti og minnkandi nyt, eru líkur til þess, að um magníumskort sé að ræða. Ber þá að leita dýralæknis áður en krampi drepur þær skepnur, sem svo er ástatt um. Sjá einniq qrein urn sama efni í Frey bls. 211—212, 1967. F R E Y R 219

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.