Freyr

Årgang

Freyr - 01.10.1972, Side 15

Freyr - 01.10.1972, Side 15
12. Tillögur allsherjarnefndar. Hermann Guðmundsson á Eyjólfsstöðum var framsögumaður nefndarinnar. Hann lýsti fyrst þessari tillögu: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í Reykjavík 10.—11. júlí 1972 telur, að starf það, sem unnið er af nefnd til aðstoðar þeim bændum, sem lent hafa í miklum fjárhagserfiðleikum, muni koma að verulegu gagni og koma flestum þessara bænda út úr tímabundnum erfiðleikum. Því skorar fundurinn á landbúnaðarráðherra að tryggja áframhaldandi fjárveitingu til þessa máls næstu fjögur ár, ekki lægri árlega en á fjárlögum ársins 1972.“ Samþykkt með samhljóða atkvæðum. Hermann Guðmundsson flutti síðan aðra tillögu allsherjarnefndar. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1972 ályktar að auka beri hagfræðilegar leiðbeiningar fyrir bændur og felur stjórn Stéttarsambandsins að leita samstarfs við Búnaðarfélag íslands um þetta efni. Jafnframt verði tekið til athugunar, hvort tíma- bært sé, að ákvæði bókhaldslaga taki til bænda eins og annarra framleiðenda í landinu og á hvern hátt hagkvæmt sé að veita þeim aðstoð við bók- hald.“ Samþykkt samhljóða. Hermann Guðmundsson talaði næst fyrir tillögu allsherjarnefndar um búvélaverzl- un, en hún var flutt í tilefni af greinar- gerð millifundarnefndar um búvélainn- flutning. Ingimundur Ásgeirsson ræddi um tillög- una og taldi þurfa að breyta einu orði til að forðast misskilning. Gunnlaugur Finnsson gerði grein fyrir því, hvað fyrir nefndinni vakti með tillög- unni og var fallizt á að breyta orðalagi í samræmi við ábendingu Ingimundar. Þá var tillagan borin undir atkvæði svo- hljóðandi: , Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1972 telur að- kallandi, að koma á fót þjónustu við bændur, er hafi því hlutverki að gegna að bæta véla- og vara- hlutaþjónustuna þannig, að bændur geti snúið sér til hennar, þegar eðlileg fyrirgreiðsla búvélainn- flytjenda bregzt. Því felur fundurinn stjóm Stéttarsambandsins að beita sér fyrir því, að slíkri þjónustu verði komið á fót innan Stéttarsambandsins eða Búnaðarfélags íslands." Samþykkt samhljóða. Enn flutti Hermann Guðmundsson tvær tillögur allsherjarnefndar. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1972 beinir þeirri áskorun til Búnaðarfélags íslands, að það birti sem fyrst niðurstöður tilboða tryggingafélaga í á- byrgðar- og slysatryggingar í landbúnaði og þær verði síðan kynntar bændum ítarlega." Samþykkt samhljóða. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1972 sam- þykkir að fela stjórn sambandsins að kanna á hvern hátt hagkvæmast væri að koma á vinnuaðstoð við bændur í veikinda- og slysatilfellum. Stjórnin leiti samvinnu við Búnaðarfélag íslands um málið.“ Samþykkt samhljóða. 13. Tillögur verðlagsnefndar. Sveinn Jónsson var framsögumaður nefnd- arinnar og talaði fyrir þessari tillögu um markaðsleit. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1972 leyfir sér enn á ný að setja fram þá kröfu, að hafin verði raunhæf markaðsleit fyrir íslenzka dilkakjötið, sem sérhæfða gæðavöru fyrir hótelmarkað. Fyrir því skorar fundurinn á háttvirta ríkisstjórn, að hún hrindi nú þegar í framkvæmd á þessu ári slíkri markaðsleit og ætla til þess nægilegt fjár- magn. Fundurinn samþykkir, að Stéttarsambandið taki þátt í þessum kostnaði með allt að 2ja milljóna framlagi á þessu ári.“ Framsögumaður lagði mikla áherzlu á stóraukna markaðsleit og ræddi sérstaklega um hótelmarkað í Bandaríkjunum, en þar taldi hann að afla mætti mikils markaðs fyrir íslenzkt dilkakjöt á háu verði. Hann taldi einnig, að allt of lítið hefði verið unnið að markaðsleit á undanförnum árum. Gunnar Guðbjartsson benti á, að enn væri ekki nema eitt sláturhús hér á landi sem hefði viðurkenningu fyrir Bandaríkja- F R E Y R 389

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.