Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1979, Page 13

Freyr - 01.04.1979, Page 13
Ríkt land. sem gerir menn þarflausa, eykur verð- bólguna og teflir frelsi þjóðarinnar í hættu. Það er dýrara að hefja aftur búskap á eyðijörð eftir 10—15 ár en að halda henni í byggð í þessi ár, því eftir nokkur ár verður straumurinn ekki úr dreifbýlinu heldur í dreifbýlið. Þetta sést á þróuninni í ná- grannalöndum okkar, sem eru nokkrum ár- um á undan okkur í þessum efnum sem mörgum öðrum. En skrifstofumaðurinn í Reykjavík spyr enn: Hvers vegna á ég með mínum skatt- peningum að vera að kosta það að halda bóndabýli uppi á heiðum gangandi? Svar: Það er skynsamlegt, þjóðfélagslegt markmið að halda landinu í byggð, en það hefur aldrei verið viðurkennt, að einhverju þurfi að kosta til þess. Landbúnaður og útvegur hafa hins vegar tekið olnbogabarnið, dreifbýlisstefn- una, upp á sína arma og eru nánast einu forsvarar hennar. í því fjármagni, sem veitt er FREYR til þessara atvinnuvega, er raunar að hluta fólgin fjárveitingin til dreifingar byggðarinn- ar og þarf því engum að koma á óvart, þótt framleiðsluvörurnar séu dýrar. Mætti raunar spyrja, hvort ekki væri eðlilegra að veita dreifbýlispeninga sérstaklega á fjárlögum, því við verðum að gera okkur það Ijóst, að það kostar fjármagn að stefna að hinu þjóð- félagslega markmiði, að dreifa byggðinni. í borgríki nútímans er miðstýringin geigvænleg og vaxandi. Samhliða dreifingu byggðar verður því einnig að dreifa valdinu, það er sjálfsögð réttlætiskrafa. Rétt nýting. Hér að framan var minnst á það, að íslensk náttúra hefði nokkuð látið á sjá og að við þyrftum úr að bæta. Bændastéttin er borin þeim sökum að ofbjóða beitarþoli landsins til þess að framleiða óseljanlegt kjöt. Ég tel eðlilegt og auðséð, að búfjárbeitin á næstu 203 L

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.