Freyr - 01.04.1979, Qupperneq 18
Þór Guðjónsson
veiðimálastjóri
eyristekjur af útlendum veiðimönnum 1978
hafi verið 760 milljónir króna.
Fram að þessu hefur mikil áhersla verið
lögð á að nýta sem best hin laxgengu vatna-
svæði og auka við þau með fiskvegagerð.
Rúmlega 30 fiskvegir hafa verið gerðir síð-
ustu þrjá áratugina og hafa opnast við það
um 400 km ársvæði til hrygningar, uppeldis
og veiða sjógenginna fiska. Auka má veru-
lega laxgengd frá því, sem nú er, með því að
fullnýta ár ofan ófiskgengra fossa, svo og
stöðuvötn til seiðauppeldis, með hjálp frá
fiskeldisstöðvum og með því að sleppa sjó-
gönguseiðum. Kannanir á ám og vötnum,
sem nú eru framkvæmdar af Veiðimála-
stofnuninni, munu væntanlega gefa vís-
bendingar um árangursríkustu aðferðirnar,
sem nota má við þessa ræktun. Sem dæmi
um slíka ræktun má nefna seiðasleppingar
Veiðimálastofnunarinnar og tilraunaeldis-
stöðvarinnar í Kollafirði í Fossá í Þjórsárdal
og stangaveiðifélagsins Ármanna í Kálfá í
Eystrihrepp nú síðustu árin, en þessar ár eru
þverár Þjórsár. Á árinu 1978 kom árangurinn
af ræktuninni fram. Þá varð laxveiðin í Þjórsá
nærfimmfalt meiri en meðalveiðin á árunum
1970—1977. Framlag Fossár í jDessari tilraun
er talið samkvæmt rannsókn Arna ísaksson-
ar, fiskifræðingsá Veiðimálastofnuninni, um
30% af veiðinni. Slík ræktun mun eingöngu
fást með eldisseiðum úr fiskeldisstöðvum.
Menn hafa velt því fyrir sér, með hvaða hætti
hinn ágæti árangur í laxveiðinni hefur náðst.
Augljóst er, að hann hefur fengist með góðu
skipulagi laxveiðimála hér á landi, svo sem
útlendingar hafa margsinnis komið auga á,
þótt það sé á hinn bóginn dulið mörgum
heimamanni. Við eigum skynsamleg lax- og
silungsveiðilög, höfum ákveðna stefnu-
mörkun af hálfu opinberra aðila, búum við
góðar undirtektir og ötult starf veiðifélaga,
sem nú eru um 130 talsins, og höfum góða
samvinnu við stangaveiðimenn. Sumir, sem
ókunnugireru þessari þróun mála, hafa leit-
að skýringa á aukinni laxgengd eingöngu í
aukinni áburðargjöf á gj-óðurlendi. Erlendir
vísindamenn telja, að fátt sé vitað um gildi
áburðargjafar fyrir fisklífið í straumvötnum,
en álíta það óverulegt. Hér á landi er mikið
strjálbýli samanborið við það, sem er í ná-
grannalöndum okkar, og magn áburðar því
tiltölulega lítið miðað við víðáttu lands og
vatnsmagn ánna. Þá ber þess og að gæta, að
Útitjörn í Kollafirði, í baksýn til vinstri gömlu bygg-
ingarnar í Kollafirði, sem notaðar eru m. a. sem
klakhús, til hægri eldishús.
208
FREYR