Freyr - 01.04.1979, Qupperneq 27
geti fengið hagstæð lán til uppbyggingar-
innar. Fyrir Alþingi liggur nú til afgreiðslu
frumvarp með tillögu um myndarleg fjár-
framlög í þessu skyni, en eftir er að sjá,
hverja afgreiðslu málið fær. Það tekur jafn-
aðarlega mörg ár að byggja upp fiskeldi, og
ienast af, meðan á því stendur, eru tekjur
litlar eða engar. Þeim, sem fiskeldi stunda, er
nauðsynlegt að komast yfir byrjunarörðug-
leikana, sem getur tekið upp undir áratug.
Uppbygging fiskeldis.
Veiðimálastofnunin hefur látið kanna hátt á
annað hundrað svæði á landinu með tilliti til
fiskeldis. Kannað hefur verið fáanlegt kalt,
volgt og heitt vatn. Þessi könnun hefur leitt í
Ijós, að óvíða eru staðir, sem henta vel til
fiskeldis með tilliti til vatnsþarfanna. Þetta
breytist á hagstæðan hátt eftir því, sem hita-
veitum frá jarðhitasvæðum til þéttbýla
fjölgar, því að væntanlega má fá heitt vatn til
fiskeldis úr heitavatnsleiðslum þar, sem
nægjanlegt kalt vatn erfyrir hendi í námunda
við leiðslurnar, eins og gert er í fisk-
eldisstöðinni að Laxamýri.
Við uppbyggingu fiskeldis og hafbeitar hér
á landi má hugsasér, að reistarverði nokkrar
fremur stórar seiðaeldisstöðvar víðs vegar
um landið, t. d. ein að minnsta kosti í hverju
kjördæmi, sem sjá fyrir seiðaþörf til fisk-
ræktar, hafbeitar og sjóeldis. Stöðvar þessar
verði eign veiðifélaga og annarra hugsan-
legra þátttakenda, helst í viðkomandi kjör-
dæmi. Hafbeit verði síðan stunduð í ánum
eftir því, sem hagkvæmt reynist, og sjóeldi á
laxi til sláturstærðar þar, sem hagstætt er, á
landinu. Er heppilegt, að framangreindar
stöðvar framleiði um 150 til 200 þúsund
gönguseiði á ári. Sumir leggja mikið upp úr
ennþá stærri eldisstöðvum og þá einnig
þeim möguleika, að erlendir auðhringar
byggi hér risaeldisstöðvar. Verður að telja
óæskilegt, að farið verði út í stóriðju á þessu
sviði. Norðmenn hafa lagt áherslu á að miða
kvíaeldi hjá sér við margar minni stöðvar,
sem séu sem mest í eigu fólks í dreifbýlinu,
Eldisseiði í keri. Fóðrun laxaseiða var hafin hér í smá-
um stíl 1944, en eiginlegt seiðaeldi ekki að ráði fyrr en
upp úr 1950.
og í þessum efnum ættum við að sækja
fyrirmynd til Norðmanna.
Lokaorð.
Veiðimál, eins og þau hafa verið skilgreind
hér að framan, eru landbúnaðarmál, og er
landbúnaðarráðherra æðsti yfirmaður
þeirra. Honum til aðstoðar við stjórn veiði-
mála eru veiðimálastjóri og Veiðimálanefnd.
Veiðimálastjóri sér um framkvæmd veiði-
mála, og tilraunastöðin í Kollafirði fram-
kvæmir tilraunir með fiskeldi og heimtur í
eldisstöðinni úr sjó í samvinnu við Veiði-
málastofnunina og hefur jafnframt á boð-
stólum hrogn og seiði vatnafiska til fisk-
ræktar, hafbeitar og sjóeldis.
FREYR
217