Freyr - 01.04.1979, Side 33
Tilraunir með að flytja frjóvgaðar eggfrumur úr einni
kú í aðra hafa staðið alilengi yfir í Kanada. Þessar
tilraunir hafa hingað til gefið góða raun, að því er
segir í blaðinu Landsbygdens folk.
Frjóvguð egg flutt milli kúa
Markmiðið með þessum eggjaflutningum er
að nýta betur erfðaeiginleika afurðamikilla
og hraustra kúa. Kýr, sem notuð ertil þessara
hluta, myndar að meðaltali á ári 12 egg, sem
frjóvgast.
í raun er þessu hagað þannig, að tekin eru
tvö frjóvguð egg úr kúnni, annan hvern
mánuð. Til þess að fá kýrnar til að beiða
annan hvern mánuð verður að gefa þeim
hormónalyf. Hormónagjöfin stendur í 10
daga. Kýrin er sædd fjórum sinnum á beið-
máli. Sjö dögum eftir síðustu sæðingu má
nema burt hin frjóvguðu egg.
Áður voru eggfrumurnar fjarlægðar með
skurðaðgerð, en nú er þeim skolað burt.
Aðferðin við það er svo einföld, að henni má
beita úti á túni. Venjulegafást 7 — 8 frjóvguð
egg í hvert skipti. Af þeim eru venjulega að-
eins fjögur nothæf.
Þar eð aðeins er sóst eftir hraustum og
góðum eggjum, fást venjulega ekki fleiri en
tvö nýtileg í hvert sinn. Þannig fást að
meðaltali tvær frjóvgaðar eggfrumur annan
hvern mánuð úr hverri kú, eða alls 12 á ári.
Með þessu móti er hægt að láta afurða-
mikla kú geta af sér 12 kálfa á ári. Aðrar kýr
eru svo látnar hafa fyrir því að ala önn fyrir
fóstrinu og fæða fullburða kálfa.
Þegar frjóvguðu eggi er komið fyrir í ann-
arri kú, verðurenn sem komið er að gera það
með skurðaðgerð. Þessi aðgerð er þó mjög
einföld. Ef eggfruman er flutt ,,fersk“ á milli,
verður að koma henni fyrir þegar eftir, að
hún hefur verið numin úr annarri kú. Einnig
er algengt, að frjóvgaðar eggfrumur séu
Þessi kálfur, sem maðurinn er að leika sér við er egg-
flutningskálfur. Hann byrjaði lífsskeið sitt, sem frjóvg-
að egg í náttúrulegri móðursinni, en það varsíðanflutt
í aðra kú til fósturs
FREYR
223